Fréttablaðið - 17.12.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.12.2002, Blaðsíða 6
6 17. desember 2002 ÞRIÐJUDAGUR STUTT VEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 30 1. 2. 3. Það styttist í tónleika Coldplay í Laugardalshöll. Hvað heitir söngvari hljómsveitarinnar? Einn þingmanna Sjálfstæðis- flokksins íhugar sérframboð í alþingiskosningunum í vor. Hvað heitir hann? Hvað heitir forstjóri Útlendinga- eftirlitsins? GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 83.18 0.31% Sterlingspund 132.14 0.28% Dönsk króna 11.44 0.07% Evra 84.95 0.06% Gengisvístala krónu 126,06 -0,57% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 363 Velta 6.736 milljónir ICEX-15 1.328 0,17% Mestu viðskipti Skeljungur hf. 297.000.000 Baugur Group hf. 165.271.083 ACO-Tæknival hf. 157.563.172 Mesta hækkun Kögun hf. 14,00% Baugur Group hf. 2,86% Össur hf. 1,90% Mesta lækkun Nýherji hf. -17,16% AFL fjárfestingarfélag hf. -4,57% Flugleiðir hf. -3,03% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8551,3 1,4% Nasdaq*: 1383,6 1,6% FTSE: 3982,1 2,7% DAX: 3320,9 0,5% Nikkei: 8450,9 -0,8% S&P*: 902,6 1,5% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 HEILBRIGÐISMÁL Útséð virðist með að heilsugæslulæknar á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja verði ráðnir að nýju til starfa við stofnunina. Sigríður Snæbjörnsdóttir, fram- kvæmdastjóri Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja, sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis fyrir helgi að ekki væri hægt að ráða lækn- ana á þeim kjörum sem þeir fóru fram á. Í bréfi Þóris Kol- beinssonar, for- manns Félags heim- ilislækna, sem ritað var fyrir helgi til Sigríðar Snæbjörns- dóttur og Árna Sigfússonar bæjar- stjóra, segir að forsöguna megi rekja örfá ár aftur í tímann. Orð- rétt segir: „Þá ríkti hið mesta vandræðaástand í málum heilsu- gæslulækna á Suðurnesjum. Lækna vantaði í stöður og þær voru oftar en ekki mannaðar í skamman tíma í senn. Erfiðleikar voru meðal annars við mönnun vakta. Þáverandi yfirmenn á stofn- uninni leituðu þá uppi lækna sem voru í eða höfðu nýlokið fram- haldsnámi í heimilislækningum erlendis og buðu þeim störf á Suð- urnesjum gegn betri kjörum en tíðkast höfðu þar. Afleiðing þessa var að nýir læknar hófu störf sem styrktu þann hóp sem fyrir var og hefur starfsemi heilsugæslunnar verið með miklum sóma þar til að uppsögnum lækna kom. Bryddað var upp á nýjungum og fræðastarf stóð með blóma, gæðaverkefna- vinna hófst og meðal annars öðlað- ist einn af læknunum doktorsnafn- bót í heimilislækningum. Gott orð fór af kennslu við stofnunina og var Maríu Ólafsdóttur veitt kennslustaða við Læknadeild, sem er gífurlega þýðingarmikið fyrir stofnun af stærð Heilbrigðisstofn- unar Suðurnesja og skapar aðsókn nema.“ Voru ung og fersk María Ólafsdóttir, fyrrverandi yfirlæknir, segir að forsendan fyrir ráðningu þeirra á sínum tíma hafi verið að þau voru svo mörg saman sem raun bar vitni. „Við vorum ung og fersk og tilbúin að takast á við krefjandi verkefni en fæst okkar voru tilbúin til að búa á Suðurnesjum,“ segir hún. Fram hefur komið að læknarnir sinntu bráðaþjónustu því Suðurnes eru skilgreind sem dreifbýli. Það þýðir að eftir dagvinnu voru þeir á bakvöktum. Þar sem þeir búa á höfuðborgarsvæðinu fóru þeir ekki heim heldur voru á vinnustað á meðan þeir sinntu þeim vöktum. Því höfðu þeir svigrúm til að sinna pappírsvinnu milli verkefna sem þeir að öðrum kosti önnuðust í vinnutíma. Það skýrir að afköst þeirra yfir daginn voru meiri en annars. Þannig réttlæta þeir akst- ur til og frá vinnu á vinnutíma. Þeir benda á að tveir elstu lækn- arnir taki ekki bakvaktir enda skil- uðu þeir átta klukkustunda vinnu á dag á móti og urðu að annast papp- írsvinnu í vinnutíma. Á svæðinu eru 17.200 manns. Samkvæmt þeim viðmiðum sem stuðst hefur verið við er reiknað með einum heilsugæslulækni fyrir 1500 manns á höfuðborgarsvæðinu og fyrir 1000 manns í dreifbýli. Samkvæmt því þyrfti að minnsta kosti 11,5 stöður heilsugæslu- lækna á þetta svæði. Í tilboði Heil- brigðisstofnunarinnar var talað um að ráða aðeins sjö heilsugæslu- lækna. Bundin af Kjaradómi Læknarnir benda á að ef þeir hefðu sótt um hver fyrir sig og ekki hugsað um kollegana hefðu fjórir staðið út af borðinu. „Það gátum við ekki sætt okkur við. Auk þess hefði vinnuálagið á þá sjö til átta lækna sem ráða átti, verið allt of mikið. Við hefðu mekki getað sinnt neinu upp- byggingarstarfi en til stóð að halda því starfi áfram og byggja upp öldrunarþjónustuna,“ segir María. Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra sagði í samtali við Fréttablaðið á mánudag að stefna ráðuneytisins væri skýr. „Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er bundin af úrskurði Kjaradóms og getur ekki boðið neitt umfram það,“ sagði Jón. Hann sagði að ef læknarnir hefðu ekki sagt upp þá hefði í öllu falli þurft að gera eitthvað til að koma launum aft- ur í samræmi við úrskurðinn. Gunnar Þór Jónsson, einn lækn- anna í hópnum, bendir á að þá hefði þurft að segja þeim upp. Ekkert hefði þokast Margir hafa velt því fyrir sér hvers vegna þessi hópur, ásamt læknum á Sólvangi, stendur fyrir uppsögnum til að knýja á um auk- in réttindi en heilsugæslulæknar í Reykjavík halda sig til hlés. María segist ekki vera með skýringu á takteinum en bendir á að þau séu með yngstu læknum í stéttinni, með ferskar hugmyndir. „Það sama á við læknana í Hafnarfirði. Við horfum fram á næstu 30 ár og sjáum ekki fram á neinar breyt- ingar nema að við knýjum á um þær. Mér er það til efs að nokkuð hefði gerst án þess að við hefðum farið út í þessar aðgerðir. Ég sé ekki að ráðherra hefði skrifað und- ir þessa viljayfirlýsingu ef ekkert hefði verið að gert,“ segir hún. Spurning um sveigjanlegan vinnutíma María vekur athygli á viðbrögð- um sveitarstjórnarmanna á Suður- nesjum í ljósi þess að bæjaryfir- völd í Hafnarfirði hafi risið upp og sannarlega ekki verið tilbúin til að láta það ganga yfir bæjarbúa að vera án læknisþjónustu. „Það er erfitt að átta sig á hvers vegna ekki heyrist frá þessum mönnum þrátt fyrir að héraðið hafi verið meira eða minna án lækna á annan mánuð,“ segir hún. Í yfirlýsingu Sigríðar Snæ- björnsdóttur kom fram að hún teldi ekki þörf á að ráða fleiri lækna ef þeir ynnu átta tíma á dag. Því vísar María alfarið á bug og segir það alls ekki hafa bitnað á vinnu þeirra. Þeir hafi tekið á móti 14-16 sjúklingum á dag en reiknað hefur verið út að heilsugæslu- læknar í Reykjavík taki að jafnaði á móti 12-14. „Ástæða þess að við komumst yfir svo marga þrátt fyr- ir að vera sjö klukkustundir að störfum er að við gátum helgað okkur því að taka á móti sjúkling- um allan tímann. Þetta er því ein- faldlega spurning um sveigjanleg- an vinnutíma,“ bendir María á. bergljot@frettabladid.is FRÉTTASKÝRING Spurning um sveigjanlegan vinnutíma Skilaboð úr ráðuneytinu voru að ekki væri hægt að ráða læknana að nýju á sömu kjörum. Áður en læknarnir komu til starfa hafði verið viðvarandi læknaleysi. Þeir segjast hafa byggt upp heilsugæslustöðina á þremur árum. HEILBRIGÐISSTOFNUN SUÐURNESJA Vildi ekki ráða nema 7-8 af læknunum til baka á þeim forsendum að ynnu þeir átta tíma á dag væri ekki þörf fyrir fleiri. JÓN KRISTJÁNSSON Sagði að það hefði aldrei gengið að ráða læknana á öðrum kjörum en úrskurður Kjaradóms kveður á. „Ef við byggj- um á svæðinu værum við heima hjá okkur á bak- vöktum og ynnum átta tíma á dag. Það kemur í sama stað niður.“ Utanríkisráðherra Tyrklands: Kýpurdeila leyst fyrir febrúarlok ISTANBÚL, AP Yasar Yakis, utanríkis- ráðherra Tyrklands, segist sann- færður um að lausn á Kýpurdeil- unni náist fyrir febrúarlok. Mið- jarðarhafseyjan Kýpur hefur verið klofin milli tyrkneskra og grískra íbúa hennar frá því tyrkneski her- inn lagði undir sig hluta eyjunnar árið 1974. Evrópusambandið bauð Kýpur aðild eftir hálft annað ár á leiðtoga- fundi sínum í Kaupmannahöfn fyr- ir helgi. Vonast er til að Kýpurdeil- an verði leyst áður en aðild eyjunn- ar að Evrópusambandinu verður að veruleika. Á sama fundi var Tyrkjum gert að gera margvíslegar umbætur á stjórnkerfi sínu. Fyrr geti þeir ekki fengið aðild að Evrópusambandinu. Sömuleiðis krefst Evrópusam- bandið þess að lausn á Kýpurdeil- unni verði í sjónmáli áður en Tyrk- land fær aðild. Tyrkjum er því mjög í mun að leysa Kýpurdeiluna. Utanríkisráðherrann Yakis sagði á sunnudaginn að Tyrkir gætu lent í þeirri stöðu að verða sakaðir um að vera með her- námslið á landsvæði Evrópusam- bandsins ef eyjan verður áfram tvískipt. „Ef engin lausn verður á Kýpur- deilunni, þá myndi Evrópusam- bandið taka að sér veikt barn,“ sagði hann einnig. ■ Á TVÍSKIPTRI EYJU Grískur Kýpurbúi stendur vörð við landa- mærin sem skipta Kýpur í tvennt. Fáni tyrkneska hlutans sést málaður á fjallshlíð á tyrkneska hlutanum. AP /D IM IT R I M ES SI N IS Ölvaður ökumaður: Ökklabraut vegamálara DÓMSMÁL Þrítugur karlmaður sem ók drukkinn yfir fætur átján ára vegamálara og ökklabraut hann hefur verið dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi. Hann var einnig sviptur ökuréttindum í eitt ár og gert að greiða 80 þúsund króna sekt. Atburðurinn varð í júní á Ný- býlavegi við BYKO í Kópavogi. Þrátt fyrir slysið hélt ökumaður- inn ferðinni áfram og ók á vegrið. Ferð hans lauk á Breiðholtsbraut við gatnamót Jaðarsels. Þar ók hann aftan á bíl á rauðu ljósi. Sérfræðingur segir góðar líkur á að pilturinn nái sér að fullu. ■ Prentmiðjan GuðjónÓ: Hangikjöt í stað korta JÓLIN Prentsmiðjan GuðjónÓ mun ekki senda út jólakort í ár heldur nota andvirði þeirra í þágu Mæðrastyrksnefndar. Talsvert magn af hangikjöti var keypt frá Kaupfélaginu á Hvammstanga og í stað þess að jólakort berist við- skiptavinum prentsmiðjunnar þá údeilir Mæðrastyrksnefnd kjöt- inu til þurfandi fyrir jólin. Í frétt frá GuðjóniÓ segir að fyrirtækið eigi tíu ára afmæli um þessar mundir og þykir stjórn- endum þess tilhlýðilegt að þeir sem meira þurfi á glaðningi að halda njóti í stað hinna sem af- lögufærir eru. ■ LÖGREGLUMÁL Um 42 grömm af hassi fundust við húsleit lögregl- unnar í Vestmannaeyjum á sunnu- dagskvöld. Þrjú voru handtekin í kjölfarið, tveir karlar og ein kona. Húsleit var gerð á heimili annars mannanna í kjölfarið og fundust þar tæki til fíkniefnaneyslu. Fólkið, sem er allt á þrítugsaldri, var yfirheyrt og sleppt nokkru seinna. Á meðan húsleitinni stóð stöðvaði lögreglan tæplega tvítug- an pilt sem kom akandi að húsinu. Við athugun kom í ljós að pilturinn var ekki í ökuhæfu ástandi og var hann handtekinn grunaður um að vera undir áhrifum kannabisefna. Tengsl hans við fyrrnefnt mál er í rannsókn. Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur gert á fimmta hundrað gramma af hassi upptæk á þessu ári. Frá Þjóðhátíð hafa komið upp átta fíkniefnamál á staðnum. Í fimm af þessum málum hafa fund- ist fíkniefni. Í stærsta málinu fund- ust 250 grömm af hassi. Lögreglu- hundurinn Tanja hefur átt stóran þátt í að finna fíkniefni í flestum þessara mála. Tanja kom til starfa í lögreglunni í Vestmannaeyjum á síðasta ári. ■ HASS 42 grömm af hassi fundust í húsi í Eyjum á sunnudagskvöld og voru þrjú handtekin í kjölfarið. Óvenju mikið af eiturlyfjum í Eyjum: Hálft kíló af hassi gert upptækt á þessu ári MIKIL UMFERÐ Á AKUREYRI Mik- il umferð hefur verið á Akureyri undanfarna daga. Að sögn lög- reglunnar sækir utanbæjarfólk mikið til Akureyrar fyrir jólin, allt frá Egilsstöðum til Blöndu- óss. Líklegt þykir að umferð eigi eftir að aukast þegar nær dregur jólum og opnunartími verslana lengist. ÖLVAÐUR MISSIR ÖKURÉTTINDI Rúmlega fertugur karlmaður hef- ur verið sviptur ökuréttindum í sjö mánuði fyrir að aka drukkinn. Hann bar að óþekktur maður hefði ekið bílnum en hann sjálfur aðeins verið farþegi. LÁT 12 ÁRA DRENGS RANNSAKAÐ Lögreglan í Bretlandi rannsakar nú lát 12 ára gamals drengs. Fregnir herma að drengurinn hafi átt í deilu við samnemanda sinn í skóla í austurhluta Lund- úna seinnipart miðvikudags. Drengurinn var fluttur á sjúkra- hús úr skólanum og var úrskurð- aður látinn við komuna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.