Fréttablaðið - 17.12.2002, Blaðsíða 24
17. desember 2002 ÞRIÐJUDAGUR
flugfelag.is
Tryggðu þér sæti - bókaðu strax á
VOPNAFJARÐAR
5.500kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Akureyrar og
EGILSSTAÐA
6.300kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
ÍSAFJARÐAR
5.400kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
4.500kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Grímseyjar
Milli Akureyrar og
AKUREYRAR
5.500kr.
Flug, aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
16. – 22. des. og
26. – 31. des. 2002
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
FL
U
1
94
13
11
/2
00
2
TÓNLIST „Þetta eru verk sem flest
hafa fylgt mér mjög lengi,“ segir
Sif Tulinius fiðluleikari um verk á
nýútkomnum diski. „Diskurinn
heitir „Poème“ og má segja að
hann innihaldi uppáhaldsverk
sem eru öll meðal fegurstu tón-
verka fiðlubókmenntanna. Flest
verkin eru skrifuð í kringum alda-
mótin 1900 og í þeim fær fiðlan að
njóta sín til hins ítrasta og fiðlu-
leikarinn að sýna listir sínar bæði
á ljóðrænan og virtúósískan hátt,“
segir Sif.
„Það er til svo margs konar
fiðlutónlist, en þegar þessi verk
eru samin er mikil gróska í tón-
listinni og tækninni hefur fleygt
fram. Fiðluleikarar voru á þess-
um tíma mikið að útsetja sjálfir,“
segir hún. „Þetta eru í bland hug-
ljúf verk tengd fiðlunni, sem er
svona strengur eins og hjarta-
strengur, og verk sem leikur er í
og brögð með hljóðfærið. Ég hef í
gegnum tíðina hlustað mikið á
gamlar upptökur með eldri fiðlu-
leikurunum og þessi diskur er
kannski innblásinn af því. Fiðlu-
leikarar í þá daga settu oft saman
prógramm sem voru stutt verk,
svona litlir konfektmolar.“
Þetta er fyrsti einleiksdiskur
Sifjar en með henni á diskinum er
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
sem leikur á píanó. „Við höfum
leikið saman á fjölmörgum tón-
leikum á síðustu árum,“ segir Sif,
sem nú gegnir stöðu 2. konsert-
meistara við Sinfóníuhljómsveit
Íslands.
Í haust mun Sif flytja fiðlu-
konsert eftir Mendelssohn með
hljómsveitinni. ■
MYNDLIST Bæjarstjórn Árborgar
hefur leigt listakonunni Sjöfn Har
gömlu áhaldageymslu bæjarins á
Eyrarbakka og ætlar listakonan
að vinna að list sinni þar:
„Þarna er sex og hálfur metri
upp í loft enda legg ég mikið upp
úr því að vera með gott rými þar
sem ég vinn. Það er ekki verra að
hafa það upp í loft,“ segir Sjöfn,
sem ætlar að setja upp keramik-
ofn í gömlu áhaldageymslunni,
sem reyndar var eitt sinn raf-
veitustöð bæjarins: „Þarna var
líka slökkviliðsbíllinn eitt sinn
geymdur og það er hægt að aka
inn í húsið af götunni. Ég var búin
að leita að hentugu húsnæði fyrir
vinnustofu hér á Eyrarbakka í
fjögur ár þegar þetta barst upp í
hendurnar á mér. Hér verð ég
ánægð,“ segir Sjöfn, í sjöunda
himni með greiðvikni bæjar-
stjórnarinnar í Árborg. ■
SIF TULINIUS FIÐLULEIKARI
Gaf nýlega út geisladisk með uppáhaldsverkum sem hafa fylgt henni gegnum tíðina.
Nýr geisladiskur:
Fegurstu tónverk fiðlubókmenntanna
SJÖFN HAR
Sex metrar upp í loft.
Eyrarbakki:
Listakona í áhaldageymslu