Fréttablaðið - 17.12.2002, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 17.12.2002, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 17. desember 2002 Tilboðsverð án vsk. 2992.- m.vsk. 3.725.- Sölumenn okkar eru við símann frá kl. 8:00 – 17:00. Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. – fös. 8:00 – 18:00. • Þvottavatn í einu hólfi • Skolvatnið i öðru hólfi • Fótstigin rúllupressa Tvær í einni Tveggja hólfa Rocket-ræstifatan (15 l) hefur fótstigna rúllupressu sem kemur í veg fyrir hokur við þrifin. Einföld og þægileg lausn fyrir heimilið og minni svæði hjá stofnunum og fyrirtækjum. Hreinna gólf og beinna bak RÆSTIFATA DÓMSMÁL Maður sem stundaði að kaupa bílhræ og svíkja lán út úr tryggingarfélögum gegn veði í bíl- unum hefur í Hæstarétti verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi. Hann segist ekki hafa þurft að sýna tryggingarfélögun- um bílana til að fá lánin. Maðurinn, sem er tæp- lega 36 ára, sveik 8,6 millj- ónir króna út úr tryggingar- félögum með því að ljúga til um ástand sex tjónabíla sem hann keypti á árinu 1998. Bílana keypti hann ávallt af einu tryggingarfélagi og fékk síðan lán hjá næsta félagi gegn veði í bíl- unum. Bílarnir voru að raunvirði langt frá því að svara til þeirra upp- hæða sem hann tók að láni. Þar sem maðurinn er gjaldþrota notaði hann nöfn systur sinnar og kunningja síns í bílaviðskiptunum. Lánin sem hann tók eru öll í vanskil- um. Sumir bílanna hafa ekki fundist við eftirgrennslan. Fyrir utan þessi glæpsam- legu bíla- og lánaviðskipti stundaði maðurinn það að rífa í sundur bíla sem hann hafði veðsett. Hluti úr bílunum not- aði hann síðan í aðra bíla. Einnig gaf hann út innistæðu- lausar ávísanir að andvirði rúmar 500 þúsund krónur. Fyrir bílana sex sem maðurinn fékk lánaðar áðurnefndar 8,6 millj- ónir króna út á greiddi hann sjálfur alls rúmar 1,9 milljónir króna. Fyrir einstaka bíla greiddi hann á bilinu 180 þúsund til 840 þúsund krónur. Lánin sem hann sveik út voru að andvirði 630 þúsund til 2,5 milljóna króna. Athygli vekur hvernig mann- inum tókst að blekkja tryggingarfé- lögin eins rækilega og raun ber vitni. Starfsmenn Sjóvár-Almennra og VÍS sögðu það vera skilyrði fyrir bílalánum að viðkomandi bíll væri kaskótryggður hjá félaginu. Ekki væri hægt að fá kaskótryggingu nema sýna bílinn þó jafnframt væri treyst upplýsingum bílasala. Eng- inn starfsmannanna mundi eftir viðskiptunum við svikahrappinn. Sagðist maðurinn yfirleitt hafa fengið bílana kaskótryggða með einu símtali og ekki sýnt neinn bíl. gar@frettabladid.is ALÞINGI 47 frumvörp urðu að lög- um frá Alþingi í haust. Velflest frumvarpanna, 40 talsins, voru samþykkt í síðustu viku, á loka- sprettinum áður en jólaleyfi þingsins hófst. Mikill meirihluti þeirra frumvarpa sem urðu að lögum voru samþykkt mótat- kvæðalaust. Það gerðist ekki nema í fimm tilfellum að þing- menn greiddu atkvæði gegn frumvörpum sem urðu að lögum. Þingmenn vinstri grænna greiddu atkvæði gegn lagafrum- varpi um póstþjónustuna og gagn- rýndu að verið væri að fella niður í þrepum einkarétt og ábyrgð rík- isins á póstþjónustu. Þeir greiddu einnig atkvæði gegn lagafrum- varpi um tekju- og eignaskatt, þar sem hátekjuskattur er framlengd- ur og lækkaður, og rekstrartap fyrirtækja gert frádráttarbært í átta ár frekar en tíu. Því frum- varpi var Sverrir Hermannsson einnig andvígur. Vinstri grænir greiddu at- kvæði gegn því að Norðurorku yrði breytt í hlutafélag. Pétur H. Blöndal greiddi einn þingmanna atkvæði gegn því að stjórn Íbúðalánasjóðs yrði heimilt að semja við félagasamtök um niðurfellingu á hluta skulda þeirra vegna vanskila í tengslum við heildarendurskipulagningu á fjármálum viðkomandi samtaka. Sverrir Hermannsson greiddi einn atkvæði gegn frumvarpi um heildarlöggjöf um fjármálafyrir- tæki. ■ ATKVÆÐAGREIÐSLA Í GANGI 16 frumvörp urðu að lögum á lokadegi þingsins, föstudag. Næstu daga á undan hafði þingheimur sett 24 lög. Lagasetning á haustþingi: Flest samþykkt samhljóða Sveik út milljónir gegnum síma Hálffertugur maður blekkti tryggingarfélög til að veita sér 8,6 milljóna bílalán gegn veði í bílhræjum. Maðurinn segist aðeins hafa þurft eitt símtal til að fá bílana skráða sem óskemmda og lánin afgreidd. Hann hefur verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi. Lánin sem maðurinn tók eru öll í van- skilum. Sumir bílanna hafa ekki fundist við eftirgrennslan. Golfgræjur - um jólin Smáralind - Glæsibæ Simi 545 1550 og 545 1500 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 1 94 42 11 /2 00 2 Ambassador kerrupoki 9.990 kr. á›ur 14.990 kr. Bite golfskór 6.990 kr. á›ur 13.990 kr. 20 - 50% afsláttur af öllum golfvörum og fatna›i. Sigurstjarnan, Bláu húsin Fákafeni, s. 588-4545 Einnig opið um helgar. Verið velkomin. 100% mesta vöruúrval á fermetra, allt frá magadans- búningum til ekta pelsa. Hátíðarföt, perlutoppar, og brjóstahöld, perlujakkar stuttir og síðir. Jólagjöfin í ár. Heitasta búðin í bænum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.