Fréttablaðið - 17.12.2002, Blaðsíða 18
TÓNLEIKAR
20.30 Jóel Pálsson saxófónleikari, held-
ur útgáfutónleika í Iðnó. Þar leikur
hann tónlist af plötunni Septett
sem kom út fyrir skömmu hjá
Eddu miðlun & útgáfu.
SÝNINGAR
Myndlistasýning Bryndísar Brynjars-
dóttur, Elsu Soffíu Jónsdóttur, Hilmars
Bjarnasonar og Þórdísar Þorleiksdótt-
ur stendur yfir í Bankastræti 5 (áður Ís-
landsbanki). Myndlistarmennirnir stund-
uðu nám Í Myndlista- og handíðaskóla
Íslands og Listaháskóla Íslands. Sýningin
er opin mánudaga og þriðjudaga kl.13
til 18 og stendur til 23. desember.
Iréne Jensen, Marilyn Herdís Mellk og
S. Anna E. Nikulásdóttir sýna í Rauðu
stofunni í Galleríi Fold við Rauðarárstíg.
Listakonurnar eru allar í grafíkfélaginu
Áfram veginn og sýna nú ný grafíkverk
og verk unnin með blandaðri tækni.
Sýningin er þriðja í röð fjögurra stuttsýn-
inga sem Gallerí Fold stendur fyrir nú á
aðventunni og lýkur 20. desember.
Magnús Guðjónsson og Gunnar Geir
sýna í húsi Gráa kattarins, Hafnargötu
18 í Keflavík. Magnús sýnir verk sem
unnin eru í grjót og smíðajárn. Gunnar
Geir sýnir málverk, teikningar og lág-
myndir frá ýmsum tímabilum. Sýningin
stendur út desember og verður opin frá
kl. 14 til 18 alla daga nema sunnudaga.
Odd Nerdrum sýnir þrjú stór verk á
Kjarvalsstöðum undir yfirskriftinni Gestur
á aðventunni. Verkin eru unnin á árun-
um 2001-2002 og eru í eigu lista-
mannsins.
Einar Hákonarson og Óli G. Jóhanns-
son sýna verk sín í Húsi málaranna við
Eiðistorg. Í nýjum sýningarsal í Húsi mál-
aranna sýna Bragi Ásgeirsson, Einar
Þorláksson, Guðmundur Ármann, Jó-
hanna Bogadóttir og Kjartan Guðjóns-
son. Sýningin stendur til 23. desember
og er opin frá 14 til 18 fimmtudaga til
sunnudaga.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir smá-
myndir og skúlptúra sem unnin eru í
anda jólanna í Kompunni, Kaupvangs-
stræti 23, Listagili. Sýningin stendur til
23. desember og er opin alla daga frá
klukkan 14 til 18.
Í hers höndum er yfirskrift á sýningu
sem stendur yfir í Borgarskjalasafni
Reykjavíkur í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15,
6. hæð. Sýningin er opin alla daga
klukkan 12-17 og stendur til 2. febrúar.
Guðjón Ketilsson sýnir á myndvegg
skartgripaverslunarinnar Mariellu, á
Skólavörðustíg 12, til 5. janúar.
Elva Hreiðarsdóttir sýnir grafíkverk í
Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5. Sýn-
inguna nefnir Elva Grjót og sækir hún
efnivið myndverka sinna til náttúrunnar
eins og nafn sýningarinnar gefur til
kynna. Sýningin verður opin á verslunar-
tíma og stendur til 18. desember.
Sýning á frummyndum Brians Pilk-
ingtons úr bókinni Jólin okkar stendur
yfir í Hafnarborg til 22. desember.
Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur
sýningu á verkum sínum í Kaffitári,
Bankastræti 8. Sýningin er opin frá 7.30
til 18.00 og stendur til 10. janúar.
Í Hafnarborg stendur yfir sýningin
“Sambönd Íslands“, alþjóðleg sýning
með þátttöku erlendra listamanna sem
hafa heimsótt Ísland og íslenskra lista-
manna búsettra erlendis. Sýningin
stendur til 22. febrúar.
Sýningin Reyfi stendur yfir í Gallerí
Skugga, Hverfisgötu 39. Myndlistarkon-
urnar Anna Þóra Karlsdóttir og Guðrún
Gunnarsdóttir vinna saman undir nafn-
inu Tó-Tó og á sýningunni sýna þær
flókareyfi úr lambsull. Sýningin stendur
til 22. desember og er opin alla daga
nema mánudaga frá kl. 13-17.
Sýning á málverkum Aðalheiðar Val-
geirsdóttur stendur yfir í Hallgríms-
kirkju í Reykjavík. Á sýningunni eru mál-
verk unnin á þessu ári sérstaklega fyrir
sýninguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er
Lífið, tíminn og eilífðin. Sýningin í Hall-
grímskirkju er haldin í boði Listvinafé-
lags Hallgrímskirkju og stendur til loka
febrúarmánaðar.
Sigríður Gísladóttir stórgöldrótt mynd-
listakona sýnir Vörður í Salnum #39,
nýju galleríi við Hverfisgötu 39. Sýningin
stendur til 12. desember.
Sýningin Heimkoman eða: heimurinn
samkvæmt ART stendur yfir í Listasafni
Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum. Sýningin
samanstendur af málverkum og ljós-
myndum danska myndlistarmannsins
Martin Bigum frá árunum 1997-2002.
Sýning á jólamyndum teiknarans Brians
Pilkingtons stendur yfir í Kaffistofu
Hafnarborgar. Sýningin er opin alla
daga og lýkur 22. desember.
Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista-
safni Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um
draumsýnina um hið fullkomna samfé-
lag. Hún leggur fram hugmynd að millj-
ón manna borgarskipulagi í Borgarfirði
og á norðanverðu Snæfellsnesi.
Samsýning Bryndísar Jónsdóttur, Ásu
Ólafsdóttur, Kristínar Geirsdóttur,
Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur
og Þorgerðar Sigurðardóttur, Samspil,
stendur yfir í Hafnarborg. Sýningin er
opin alla daga nema þriðjudaga frá kl.
11 til 17 og henni lýkur 22. desember.
Sýningin Milli goðsagnar og veruleika
er í Listasafni Reykjavíkur. Sýningin
kemur frá Ríkislistasafni Jórdaníu í
Amman og er ætlað að varpa ljósi á
heim araba.
Lína Rut Wilberg sýnir olíumálverk á
Café Presto, Hlíðarsmára 15, Kópavogi.
Opið 10-23 virka daga og 12-18 um
helgar.
Sýningin Þetta vilja börnin sjá er haldin
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Sýndar verða myndskreytingar úr nýút-
komnum barnabókum. Sýningunni lýkur
6. janúar 2003.
Hildur Margrétardóttir myndlistarkona
sýnir nokkur óhlutbundin málverk á
Mokka-kaffi. Sýningunni lýkur 15. janúar.
Sýning á nokkrum verkum Guðmundar
Hannessonar ljósmyndara stendur yfir
í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja-
víkurminningar en myndirnar tók Guð-
mundur um miðja síðustu öld í Reykja-
vík.
Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista-
safni Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um
og endurvekur draumsýnina um hið full-
komna samfélag. Hún leggur fram hug-
mynd að milljón manna borgarskipulagi
í Borgarfirði og á norðanverðu Snæfells-
nesi.
Sýning á útsaumuðum frummyndum
Elsu E. Guðjónsson úr bók hennar
Jólasveinarnir 13 stendur yfir í
Bókasafni Kópavogs á opnunartíma
safnsins og lýkur 6. janúar.
18 17. desember 2002 ÞRIÐJUDAGUR
Gestir frá Alfljó›ahúsi
segja frá jólum og jólaundirbúningi í
Ghana og Mexico
Dagskrá Litlu jólanna á Hressó er að finna á www.reykjavik.is
Þriðjudagur 17. desember
Opið frá kl 14 - 18. Dagskrá frá kl 16:30
/ T
ei
kn
in
g:
H
al
ld
ór
B
al
du
rs
so
n
Alda Ingibergsdóttir
óperusöngkona
syngur lög a› n‡útkomnum
diski sínum „Ég elska flig“
*Umsögn Jóns Ólafs Sigurðssonar (Mbl. 6.12.´02)
Laxness ljóð
og fögur lög
í flutningi hins velsyngjandi
Álafosskórs*
MÁLog MENNING
Sölustaðir:
NETTÓ
ÚTGÁFA Nýlega voru gefin út jóla-
kort til styrktar Kristínu Ingu
Brynjarsdóttur, sem lamaðist var-
anlega í bílslysi í sumar. Kristín
Brynja er ein með þrjú börn og
móðir hennar þurfti vegna slyss-
ins að flytja frá Vestmannaeyjum
til að aðstoða Kristínu og börnin.
Kortin voru hönnuð af grafísk-
um hönnuðum sérstaklega fyrir
Kristínu, og öll vinna við gerð
kortanna, prentun, pappír, umslög
og pökkun var gefin. Ágóði söl-
unnar rennur óskiptur til Kristín-
ar. Nokkrir skólar í Hafnarfirði
hafa tekið að sér að dreifa kortun-
um og einnig liggja kortin frammi
hjá fyrirtækjum í Hafnarfirði. ■
ÞRIÐJUDAGUR
17. DESEMBER
hvað?
hvar?
hvenær? LJÓSMYNDUN Í gluggum Heima erbest, Vatnsstíg 9, er Guðlaugur
Valgarðsson með sýningu á verk-
um sínum undir yfirskriftinni
Myndir úr lífinu. Á sýningunni eru
átta ljósmyndir, allar frá þessu ári,
og er þeim komið fyrir í gluggum
Heima er best á þann hátt að þær
snúa að vegfarendum.
Guðlaugur útskrifaðist frá
Listaháskóla Íslands árið 2001 með
skúlptúr sem sérgrein og hefur
síðan starfað að myndlist á ýmsum
vettvangi. Hann tók meðal annars
þátt í örverkum á vegum Listahá-
tíðar síðastliðið vor, en örverkin
voru fimm mínútna uppákomur
sem myndlistarmaður og rithöf-
undur sömdu saman og var síðan
útvarpað á Rás 2.
Heima er best er nafn yfir
menningarstarfsemi Margrétar O.
Leópoldsdóttur sem hún hýsir á
heimili sínu á Vatnsstíg 9. „Ég býð
listamönnum og öðrum lífs-
kúnstnerum að sýna verk sín í
gluggunum heima hjá mér svo
vegfarendur geti notið þeirra á
leið sinni upp og niður Vatnsstíg-
inn,“ segir Margrét. „Þannig tekst
mér að mæta áhorfandanum, hlúa
að listinni og síðast en ekki síst
listamönnum sem fá sálgæslu
meðan verkin þeirra tala í glugg-
unum.“ Sýning Guðlaugs í Heima
er best stendur til 6. janúar 2003. ■
LJÓSMYND EFTIR GUÐLAUG
Guðlaugur sýnir nú verk sín í gluggum
gallerísins Heima er best.
Heima er best:
Öðruvísi gallerí fyrir lífskúnstnera
EITT KORTANNA SEM GEFIÐ VAR ÚT
TIL STYRKTAR KRISTÍNU
Allir sem komu að kortagerðinni gáfu
vinnu sína og ágóðinn rennur til Kristínar
Ingu, sem lamaðist í bílslysi sumar.
Samvinna grafískra hönnuða:
Jólakort til
styrktar Kristínu
1902 – 2002
Gull-úrið
Axel Eiríksson
úrsmíðameistari
Álfabakka 16
Sími 587 4100
MJÓDDINNI
Blóm og
gjafavara
aðventukransar
og skreytingar.
Öðruvísi blómabúð
Dalvegi 32, s. 564 2480, www.birkihlid.is
Peysur
2 fyrir 1
Flott í jólapakkann
Jól í Flash