Fréttablaðið - 07.02.2020, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 07.02.2020, Blaðsíða 9
Kannski er svarið frekar að gefa fólki einfaldlega meiri vinnu- frið með svigrúmi til að vinna að heiman. Í DAG Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir Alla morgna er haf bíla á ferð um höfuðborgar-svæðið til að koma börn-um í leikskóla og skóla áður en foreldrar fara til vinnu. Alla daga hefst sami öldugangurinn og ölduniðurinn í lok vinnudags. Án þess að ætla að teikna upp mynd af langleiðinlegustu konu í heimi þá var ég mjög mikið að hugsa um Norðurlöndin í bílnum í gær eftir vinnu, þegar ég var á leið að sækja dóttur mína á fótboltaæfingu. „Við erum 15 árum á eftir Norður- löndunum“ er yfirleitt niðurstaðan þegar opinberir aðilar rýna einhverja stöðu eða stefnu. Verandi þessu yfir- leitt sammála hef ég verið í hlutverki biluðu plötunnar á fundum með því að spyrja alltaf sömu spurningar þegar eitthvert álitaefni eða vandamál er til umræðu. „Hvernig er þetta leyst á hinum Norðurlöndunum?“ (Hér hjálpar að þessi spurning hljómar alltaf gríðarlega faglega. Þegar spurningin smellpassar kannski ekki við efnið þá getur fundarmaður samt staðið beinn í baki á fundi því umræða um Norður- löndin þykir nefnilega alltaf vönduð.) Svarið við því hvernig einhver systur- þjóðanna á Norðurlöndunum hefur tæklað eitthvert mál hentar okkur yfirleitt líka alveg glimrandi vel. Í umferðinni í gær hugsaði ég einmitt að varðandi samgöngur og borgar- skipulag erum við einhverjum árum á eftir bræðrum okkar og systrum á Norðurlöndum. Fyrir vikið finnst mér ég líka verja árum í bílnum. Við virðumst líka vinna lengri vinnudag án þess þó að framleiðni sé meiri. Bak við þá staðreynd er einhver sannleikur sem við erum ekki búin að meðtaka. Ég er ekki viss um að eina svarið sé styttri vinnuvika talin í fjölda klukkustunda þegar stefnan er að festa fólk á vinnu- staðnum. Kannski er svarið frekar að gefa fólki einfaldlega meiri vinnufrið með svigrúmi til að vinna að heiman. Auðvitað krefjast mörg störf fastrar viðveru öllum stundum en alls ekki öll. Sennilega fer þeim fækkandi störf- unum þar sem viðveran er nauðsynleg alla daga frá 9-5. Finnar eiga svarið Í Finnlandi er takturinn annar og það er opinber stefna að hvetja þá sem geta unnið heima til að gera það. Eftir ein- hver ár þegar starfshópur verður settur á laggirnar til að rýna hvers vegna framleiðni er ekki meiri á Íslandi, hvers vegna starfsfólk kvartar undan álagi og hvernig megi gefa fjölskyldufólki séns á að mæta kröfum vinnu og veruleika barnanna, þá kemur kannski fram skýrsla sem boðar finnsku leiðina. Upp úr 1990 fór stefnan um sveigjanlegan vinnutíma að ryðja sér til rúms í Finn- landi og er núna hluti af þeirra vinnu- kúltúr. Í ár boða Finnar lög sem eiga að taka þessa hugmyndafræði enn lengra, með því að veita fólki meira svig- rúm um hvenær og hvar það vinnur vinnuna (í þeim störfum þar sem það gengur upp). Finnska ríkisstjórnin er líka að sýna stórleik með því að leggja til 7 mánaða rétt hvors foreldris um sig til fæðingarorlofs. Finnarnir eru meira en bara sauna, Finnar virðast skilja lífsins takt. Á höfuðborgarsvæðinu myndi finnska leiðin þýða að við þyrftum ekki öll að fljóta um í bílahafinu á sama tíma á morgnana. Þessi pólitíska stefna myndi hafa jákvæð áhrif á umferð og draga úr mengun því færri bílar væru á ferðinni. Þessi stefna myndi sömu- leiðis gera að verkum að það þyrfti ekki að rífast um hvort börn fari hálftíma fyrr eða seinna í leikskólann því for- eldrar hefðu eitthvert dagskrárvald sjálfir. Foreldrar lítilla barna gætu veitt þeim rólega byrjun á deginum. Þessi stefna myndi þannig draga úr stöðugu samviskubiti foreldra. Jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs yrði betur náð. Þessi stefna hefur sýnt sig leiða til færri veikindadaga, því fólk treystir sér oft til að vinna heima þó það hafi ekki heilsu til að vera innan um aðra. Finnska leiðin gæti líka stuðlað að því að jafna leikinn milli borgar og landsbyggðar því staðsetning vinnustaðarins væri ekki lengur mikilvægari en hæfileikar starfsfólks, sem í mörgum störfum getur verið staðsett hvar sem er. Finnar hafa áralanga reynslu af þessum sveigjanleika og rannsóknir sýna að þessi slaki eykur framleiðni, ánægju og sköpunargáfu. Niðurstaðan er því ekki bara að starfsfólk sé ánægðara. Vinnustaðir fá meira frá starfsfólki með því að veita því svigrúm. Seðla- bankastjóri hefur talað fyrir því að sveigjanleiki í hagkerfinu og á vinnu- markaði séu mikilvægir þættir til að örva hagvöxt og að fyrsta skrefið sé að horfa til framleiðni í kjaraviðræðum. Getur verið að við séum ekki að horfa í rétta átt þegar við ræðum aðallega um lengd vinnuvikunnar og fjölda vinnu- stunda á vinnustað? Finnarnir hafa svarað þessari spurningu og svarið felst í því að gefa fólki svigrúm til að vinna vinnuna sína. Finnska leiðin - sauna og sveigjanleiki Bretland gekk út úr Evrópu-sambandinu 31. janúar síð-astliðinn. Árið 2020 verður ár aðlögunartímabils þar sem núverandi samningar Bretlands og ESB munu áfram gilda. Það á einnig við um Ísland, og verða því engar áþreifanlegar breytingar fyrir íslenska og breska ríkisborgara eða fyrirtæki til ársloka. Útgöngudagurinn 31. janúar markar þó nýjan kafla í sögu Bret- lands. Við höfum ákvörðunarvald yfir eigin framtíð og styrkjum samstarf við gamla bandamenn og ný vina- ríki um heim allan. Við horfum fram veginn full sjálfstrausts. Helstu styrkleikar Bretlands eru enn til staðar. Við erum fimmta stærsta hagkerfi heims. Breski markaðurinn er heillandi nú þegar, jafnvel áður en við ryðjum brautina og sköpum ný viðskipta- og fjárfest- ingatækifæri á alþjóðavísu. Iðnaðar- og nýsköpunarstefna Bretlands og aukin fjárfesting í rannsóknum leiðir hagkerfi okkar inn í framtíðina. Við erum leiðandi af l þegar kemur að nýjum tæki- færum í gervigreind, líftækni og grænu hagkerfi. Breski fjármála- markaðurinn stuðlar að nýsköpun, og er Bretland ein af fjármálamið- stöðvum heims. Breskir háskólar eru meðal þeirra 10 bestu í heimi. Við erum nú þegar helsti áfanga- staður fjárfestingar í Evrópu. Nú þegar við höfum frjálsar hendur til að móta eigin fríverslunarstefnu munum við berjast fyrir fríverslun á heimsvísu. Þegar við náum nýjum samningum við þau ríki sem vaxa hvað hraðast mun Bretland verða brú út í hinn stóra heim m.a. fyrir íslensk fyrirtæki. Fyrir lok þessa árs, mun stækk- un á utanríkisþjónustu okkar gera bresku utanríkisþjónustuna þá stærstu í Evrópu, og þá þriðju stærstu í heiminum, á eftir Banda- Nýtt upphaf Michael Nevin breski sendi- herrann ríkjunum og Kína. Við munum halda áfram að stuðla að útbreiðslu lýðræðis, réttarríkisins, friðar og öryggis, með leiðandi þátttöku í alþjóðastofnunum á borð við Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, Atlantshafsbandalagið Alþjóða- viðskiptastofnuninni, og Evrópu- stofnanir á borð við Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu. Við munum nýta tækifærið til að tryggja enn nánara samband við Ísland, eins og kom fram á fundi mínum með Guðlaugi Þór Þórðar- syni utanríkisráðherra, 3. febrúar síðastliðinn. Margþætt samband byggir ekki einungis á viðskiptum heldur einnig samstarfi í sjávarút- vegi, nýsköpun og alþjóðamálum. Í gegnum allt útgönguferlið úr ESB, höfum við átt gott samstarf við Ísland og hin EFTA-ríkin. Þar skiptir mestu máli að við höfum náð samningum sem tryggja að Bretar búsettir á Íslandi og Íslend- ingar búsettir í Bretlandi fyrir 31. desember 2020 geta haldið áfram að búa þar, vinna og stunda nám. Íslendingar verða áfram velkomnir til Bretlands, hvort sem það er í stuttar heimsóknir eða viðskipta- ferðir, eða til að stunda nám. Og við munum áfram vera trygg- ur bandamaður í Evrópu, og horfa til sameiginlegrar sögu, hagsmuna og gilda. Við viljum að framtíðar- samband okkar við ESB sé byggt á vingjarnlegu samstarfi tveggja fullvalda jafningja til að tryggja hagsæld allra ríkisborgaranna. Við viljum tryggja samning við ESB svipaðan þeim sem Kanada og ESB hafa samþykkt, sem nær yfir frí- verslun og afnemur tolla og kvóta. Að auki munum við halda áfram að vinna að alþjóðlegum málefnum í samstarfi við vini okkar í Evrópu, eins og utanríkis- og öryggismálum og baráttunni gegn loftslagsbreyt- ingum. Þar sem ríkin tvö leggja áherslu á mikilvægi fríverslunar, geta Bretar og Íslendingar ákvarðað nýtt sam- band þar sem viðskipta- og fjár- festingasamstarf getur vaxið og dafnað. Saman, með yfirgripsmikla og blómlega rannsóknastarfsemi, mennta- og ferðamannasamstarf (og einstaka ósigra í íþróttum), höldum við inn í nýtt, kraftmikið, tímabil tvíhliða samstarfs. mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is Þú færð gómsætar bollur hjá okkur allar helgar í febrúar. VELDU GÆÐI! S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9F Ö S T U D A G U R 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.