Fréttablaðið - 07.02.2020, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.02.2020, Blaðsíða 10
að Njarðvíkurbær hefði stutt dyggi- lega við bakið á Eðvarði Þór Eðvars- syni á sínum tíma þegar hann var að ná lágmörkum á Ólympíuleikana í Seúl 1988. „Ég minnist þess að þegar ég var í íþróttaráði Njarðvíkur vorum við að styrkja Eðvarð Þór gríðarlega mikið. Það var ekki bara til keppni. Hann var á fullum laun- um hjá bænum, ef ég man rétt. Hann fékk mikla styrki hvort sem var til æfinga eða keppni. Líka þjálfarinn hans. Það var alveg til fyrirmyndar.“ Hún spurði líka hvort bæjarbúar ættu að standa saman eins og gert var í tilfelli Eðvars. „Ég sem bæjarbúi spyr hvort við eigum að standa saman eins og gerðist með Eðvarð. Það voru líka fyrirtæki og einstaklingar sem studdu hann. Eigum við pening til að hjálpa?“ Friðjón Einarsson, bæjarfull- trúi Samfylkingarinnar, benti á að kjörnum fulltrúum bæri að fara eftir reglum. „Við erum ekki að veita styrki í æfingaferðir, þannig eru reglurnar. Það var engin leið að veita þennan styrk.“ Hann bætti svo við að hann sjálfur vildi fara á Ólympíuleika eldri borgara. „Ég er ánægður með að við séum að standa við þær reglur sem við settum. Mér finnst það eðlilegt. Hvar eru mörkin á þessu? Ég væri til í að keppa á Ól eldri. Er bærinn til í að styrkja mig?“ spurði hann. Friðjón benti einnig á í pontu að styrkveitingar til landsliðsfólks Reykjanesbæjar hefðu verið auknar úr 20 þúsundum í 40 þúsund eftir að Margrét, sem vill að bærinn stofni afrekssjóð, enda dugi 40 þúsund lítið upp í ferðakostnað, hafi tekið dæmi máli sínu til stuðnings. „Það var einstaklingur valinn til að leika með U-18 ára landsliði í körfubolta síðasta sumar, fyrst á EM og svo á NM. Kostnaður viðkomandi var 538.700. Þar sem hann fékk styrk fékk hann tvisvar 20 þúsund og 10 þúsund eða samtals 50 þúsund krónur. Það vantar talsvert til að þetta gangi upp.“ Gunnar Þórarinsson bæjarfull- trúi Frjáls afls benti á að fyrirtæki á svæðinu væru því miður ekki að setja neinn pening í íþróttir og vildi sjá þau gera betur. Þá var komið að Guðbrandi Einarssyni Beinnar leiðar. „Af hverju á að veita sér- staka afreksstyrki frekar en aðra? Hverjir eru afreksmenn? Eru það þeir sem komast í landsliðin. En hin börnin? Ég næ þessu ekki,“ sagði Guðbrandur og yppti öxlum. Hann hélt svo áfram. „Ætlum við bara að hlúa að svokölluðum afreksfólki. Ég vil frekar hugsa um hina og láta þá sitja við sama borð.“ Af hverju á að veita sérstaka afreks- styrki frekar en aðra? Hverjir eru afreksmenn? Eru það þeir sem komast í landsliðin. En hin börnin? Ég næ þessu ekki. Gunnar Þórarinsson, bæjarfulltrúi Frjáls afls Ég er ánægður með að við séum að standa við þær reglur sem við settum. Mér finnst það eðlilegt. Hvar eru mörkin á þessu? Ég væri til í að keppa á Ól eldri. Er bærinn til í að styrkja mig? Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar SUND Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Miðf lokks, bókaði á bæjarstjórnarfundi Reykjanes- bæjar að hún hreinlega trúði því ekki að bærinn gæti ekki styrkt þrjú ungmenni sem reyna að komast á Ólympíuleikana um 300 þúsund krónur. „Við eigum frábært íþrótta- fólk sem er að standa sig mjög vel og við getum verið stolt af þeim og þau eru stolt að bera merki Reykjanes- bæjar, sem er þekktur fyrir að vera íþróttabær,“ segir meðal annars í bókun hennar. Bókun Margrétar kemur í kjöl- farið á frétt Fréttablaðsins um ungt sundfólk sem sótti um styrk til að æfa sig til að komast á Ólympíu- leikana í Tókíó í sumar. Bærinn sagði nei því þetta væri æfingaferð en ekki keppnisferð. Bærinn setti þó 500 þúsund krónur í körfuboltamót yngri flokka í bænum svo hægt væri að halda glæsilegt og veglegt opn- unar- og lokakvöld. Margrét Ólöf A. Sanders, bæjar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, benti á Jón og Séra Jón í Reykjanesbæ Bæjarstjórn Reykjanesbæjar tók mál sundfólksins sem neitað var um styrk frá bænum vegna æfinga- ferðar upp á síðasta fundi. Fordæmi um að bærinn hafi haft sundmann á launum til að auðvelda það að komast á Ólympíuleikana 1988. En ekki núna. Már Gunnarsson, ein stærsta íþróttastjarna landsins, er mjög líklegur til árangurs á Ólympíuleikum fatlaðra. Hann sló tíu Íslandsmet á HM fatlaðra í sundi í september en Reykjanesbær vill ekki styrkja hann til að æfa sig erlendis. Afgreiðslutímar á www.kronan.is Nýtt! kolvetnum Minna af 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.