Fréttablaðið - 07.02.2020, Page 10
að Njarðvíkurbær hefði stutt dyggi-
lega við bakið á Eðvarði Þór Eðvars-
syni á sínum tíma þegar hann var að
ná lágmörkum á Ólympíuleikana í
Seúl 1988. „Ég minnist þess að þegar
ég var í íþróttaráði Njarðvíkur
vorum við að styrkja Eðvarð Þór
gríðarlega mikið. Það var ekki bara
til keppni. Hann var á fullum laun-
um hjá bænum, ef ég man rétt. Hann
fékk mikla styrki hvort sem var til
æfinga eða keppni. Líka þjálfarinn
hans. Það var alveg til fyrirmyndar.“
Hún spurði líka hvort bæjarbúar
ættu að standa saman eins og
gert var í tilfelli Eðvars. „Ég sem
bæjarbúi spyr hvort við eigum að
standa saman eins og gerðist með
Eðvarð. Það voru líka fyrirtæki og
einstaklingar sem studdu hann.
Eigum við pening til að hjálpa?“
Friðjón Einarsson, bæjarfull-
trúi Samfylkingarinnar, benti á að
kjörnum fulltrúum bæri að fara
eftir reglum. „Við erum ekki að
veita styrki í æfingaferðir, þannig
eru reglurnar. Það var engin leið
að veita þennan styrk.“ Hann bætti
svo við að hann sjálfur vildi fara á
Ólympíuleika eldri borgara. „Ég er
ánægður með að við séum að standa
við þær reglur sem við settum. Mér
finnst það eðlilegt. Hvar eru mörkin
á þessu? Ég væri til í að keppa á Ól
eldri. Er bærinn til í að styrkja mig?“
spurði hann.
Friðjón benti einnig á í pontu
að styrkveitingar til landsliðsfólks
Reykjanesbæjar hefðu verið auknar
úr 20 þúsundum í 40 þúsund eftir að
Margrét, sem vill að bærinn stofni
afrekssjóð, enda dugi 40 þúsund
lítið upp í ferðakostnað, hafi tekið
dæmi máli sínu til stuðnings. „Það
var einstaklingur valinn til að leika
með U-18 ára landsliði í körfubolta
síðasta sumar, fyrst á EM og svo á
NM. Kostnaður viðkomandi var
538.700. Þar sem hann fékk styrk
fékk hann tvisvar 20 þúsund og
10 þúsund eða samtals 50 þúsund
krónur. Það vantar talsvert til að
þetta gangi upp.“
Gunnar Þórarinsson bæjarfull-
trúi Frjáls afls benti á að fyrirtæki
á svæðinu væru því miður ekki að
setja neinn pening í íþróttir og vildi
sjá þau gera betur. Þá var komið að
Guðbrandi Einarssyni Beinnar
leiðar. „Af hverju á að veita sér-
staka afreksstyrki frekar en aðra?
Hverjir eru afreksmenn? Eru það
þeir sem komast í landsliðin. En
hin börnin? Ég næ þessu ekki,“ sagði
Guðbrandur og yppti öxlum. Hann
hélt svo áfram. „Ætlum við bara að
hlúa að svokölluðum afreksfólki. Ég
vil frekar hugsa um hina og láta þá
sitja við sama borð.“
Af hverju á að veita
sérstaka afreks-
styrki frekar en aðra?
Hverjir eru afreksmenn? Eru
það þeir sem komast í
landsliðin. En hin börnin?
Ég næ þessu ekki.
Gunnar Þórarinsson,
bæjarfulltrúi Frjáls afls
Ég er ánægður með
að við séum að
standa við þær reglur sem
við settum. Mér finnst það
eðlilegt. Hvar eru mörkin á
þessu? Ég væri til í að keppa
á Ól eldri. Er bærinn til í að
styrkja mig?
Friðjón Einarsson,
bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar
SUND Margrét Þórarinsdóttir,
bæjarfulltrúi Miðf lokks, bókaði
á bæjarstjórnarfundi Reykjanes-
bæjar að hún hreinlega trúði því
ekki að bærinn gæti ekki styrkt þrjú
ungmenni sem reyna að komast á
Ólympíuleikana um 300 þúsund
krónur. „Við eigum frábært íþrótta-
fólk sem er að standa sig mjög vel og
við getum verið stolt af þeim og þau
eru stolt að bera merki Reykjanes-
bæjar, sem er þekktur fyrir að vera
íþróttabær,“ segir meðal annars í
bókun hennar.
Bókun Margrétar kemur í kjöl-
farið á frétt Fréttablaðsins um ungt
sundfólk sem sótti um styrk til að
æfa sig til að komast á Ólympíu-
leikana í Tókíó í sumar. Bærinn
sagði nei því þetta væri æfingaferð
en ekki keppnisferð. Bærinn setti þó
500 þúsund krónur í körfuboltamót
yngri flokka í bænum svo hægt væri
að halda glæsilegt og veglegt opn-
unar- og lokakvöld.
Margrét Ólöf A. Sanders, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, benti á
Jón og Séra Jón
í Reykjanesbæ
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar tók mál sundfólksins
sem neitað var um styrk frá bænum vegna æfinga-
ferðar upp á síðasta fundi. Fordæmi um að bærinn
hafi haft sundmann á launum til að auðvelda það
að komast á Ólympíuleikana 1988. En ekki núna.
Már Gunnarsson, ein stærsta íþróttastjarna landsins, er mjög líklegur til árangurs á Ólympíuleikum fatlaðra. Hann
sló tíu Íslandsmet á HM fatlaðra í sundi í september en Reykjanesbær vill ekki styrkja hann til að æfa sig erlendis.
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Nýtt!
kolvetnum
Minna af
7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT