Fréttablaðið - 05.12.2019, Síða 3
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 8 4 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 5 . D E S E M B E R 2 0 1 9
Skannaðu kóðann
eða kíktu á elko.is
til að lesa blaðið
100 bls.
af frábærum
hugmyndum
er komin út
jólagjafahandbókin
STJÓRNSÝSLA Stjórnarformaður
RÚV og framkvæmdastjóri Capa-
cent vísa hvor á annan um hvers
vegna ekki var tekið fram í auglýs-
ingu um starf útvarpsstjóra að listi
yfir umsækjendur yrði ekki birtur.
Ákvörðun þess efnis var tekin á
stjórnarfundi RÚV 13. nóvember,
áður en auglýsingin fór í birtingu.
Sú ákvörðun var tekin að ráði Capa-
cent sem taldi að með því myndu
líklega berast f leiri umsóknir.
Úrskurðarnefnd um upplýsinga-
mál segir RÚV heimilt að birta ekki
listann.
Ha l ldór Þorkelsson, f r a m-
kvæmdastjóri Capacent, veit ekki
hvers vegna það er ekki tekið fram
í auglýsingunni. „Það er ekki okkar
að segja til um það,“ segir Halldór.
Kári Jónasson, stjórnarformaður
RÚV, segir ákvörðunina á vegum
Capacent. „Þeir sjá um þetta. Við
treystum þeim fyrir þessu. Við
komum ekki nálægt þessu umsókn-
arferli.“ – boa
Vísa ábyrgð
hvor á annan
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mætir glaðbeitt til leiðtogafundar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var í Lundúnum í gær. Leiðtogarnir hittust í tilefni af því að
sjötíu ár eru liðin frá því að bandalagið var stofnað. Katrín ræddi á fundinum meðal annars um áskoranir í öryggis- og varnarmálum, afvopnunarmál og lofslagsmál. NORDICPHOTOS/AFP
SAMHERJAMÁL Samherji hyggst
birta tölvupósta uppljóstrarans
Jóhannesar Stefánssonar, fyrr-
verandi stjórnanda Samherja-
félaganna í Namibíu. Ekki verða
þó birtir póstar sem snúa að per-
sónulegum málefnum Jóhannesar,
heldur eingöngu þeir sem snúa að
starfi hans. Einnig verða birt önnur
gögn. Þetta hefur Fréttablaðið eftir
öruggum heimildum.
Jóhannes af henti uppljóstr-
unarsíðunni WikiLeaks meira en
18 þúsund tölvupósta frá árunum
2014 til 2018. Gögnin voru notuð í
umfjöllun Kveiks og Stundarinnar
um starfsemi Samherja í Afríku.
Gefa þau til kynna að háar mútu-
greiðslur hafi ratað til ráðamanna
í Namibíu í skiptum fyrir fiskveiði-
kvóta og að háum fjárhæðum hafi
verið stungið undan skatti. Bæði
sjávarútvegsráðherra og dóms-
málaráðherra Namibíu hafa sagt af
sér og verið ákærðir ásamt f leirum
fyrir að þiggja rúmlega 860 millj-
ónir króna í mútugreiðslur. Málið
er einnig til rannsóknar hjá Emb-
ætti héraðssaksóknara.
Samherji sendi frá sér yfirlýsingu
í gær þar sem Jóhannes er sagður
hafa einungis af hent WikiLeaks
hluta af tölvupóstum sínum, sem
telja í heild 44 þúsund. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins er tregða
við að birta þá af ótta við að brjóta
persónuverndarlög.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Samherja, vildi ekki staðfesta að
póstarnir yrðu birtir. Hann segir
það þó koma til greina að birta
alla póstana. „Það kann alveg að
vera. Ég hef ekki sjálfur litið á þessa
tölvupósta en mér finnst það hljóta
að koma til greina, ef það er eitt-
hvað í þeim sem styður þá skoðun
okkar að starfsemin hafi ekki verið
eins og lýst hefur verið í þessum
þáttum,“ segir Björgólfur.
„Mér finnst það vera alvarlegt
áhyggjuefni að aðeins 42 prósent
af tölvupóstunum séu birt inni á
WikiLeaks og að þarna vanti heilt
ár. Mér finnst það vekja upp spurn-
ingar og maður veltir því fyrir sér
hvað sé í hinum tölvupóstunum,
hvort það sé verið að teikna upp
einhliða frásögn og birta eingöngu
þau gögn sem styðja við þær ásak-
anir.“
Allir póstarnir verða af hentir
lögmannsstofunni Wikborg Rein
sem rannsakar nú málið fyrir
hönd Samherja, lýkur þeirri rann-
sókn eftir nokkra mánuði. Björg-
ólfur segir niðurstöður þeirrar
rannsóknar verða opinberaðar
og að henni megi treysta þar sem
Wikborg Rein færi ekki að leggja
orðspor sitt að veði fyrir Sam-
herja. – ab, ds
Ætla að birta Namibíupósta
Samherji hyggst birta tölvupósta uppljóstrarans Jóhannesar Stefánssonar. Forstjóri Samherja telur að
póstarnir sem ekki voru afhentir WikiLeaks geti dregið upp aðra mynd af starfseminni í Namibíu.
Björgólfur
Jóhannsson,
forstjóri
Samherja.