Fréttablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 55
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Þegar þingmaður yfirgefur þingflokk felast alltaf í því pólitísk tíðindi og það eru pólitísk stórtíðindi þegar sá þingmaður tilheyrir meirihlut- anum. Meirihlutinn minnkar um mann. Og á Íslandi munar yfirleitt alltaf um mann. Og auðvitað er það þannig að í þessum skilnaði felast hraustleg skilaboð af hálfu þingmannsins. Hann hefur hugsað málið og vill frekar vera einn, og með engum, en með flokknum sínum og félögum sínum. Einsemd og útlegð kitlar hann frekar. Eðlilega hefur þess vegna tölu- vert verið fjallað um þessi tíðindi og hvað gerðist. Var þarna kannski sjálft hjartað í f lokknum að mót- mæla þingflokknum? Og hvar situr hann núna í matsalnum? Þingmenn VG hafa verið spurðir um þennan nýja veruleika og allir svarað af mikilli yfirvegun og ein- hvers konar virðingu og eins og í kór: „Það er alltaf leiðinlegt þegar leiðir skilja.“ Sumir þingmenn hafa bætt við orðinu „auðvitað“ til að undirstrika þungann. „Það er auð- vitað alltaf leiðinlegt þegar leiðir skilja,“ segja þau og það er einhver stóísk kyrrð í þessu svari. En þetta svar er líka dálítið áhugavert. Það er líka alltaf „auðvitað leiðinlegt“ þegar maður ýtir óvart á lítinn kaffibolla á kaffivélinni þegar maður ætlaði að fá sér stóran, það er alltaf leiðinlegt þegar morg- unninn hefst á því að brennt brauð skoppar upp úr brauðristinni og græna avókadóið sem átti að fara ofan á brauðið er orðið brúnt. Og líka alltaf dálítið leiðinlegt þegar það kemur blettur í kjólinn. En það má alltaf ýta aftur á takkann á kaffivélinni, borða bara súkku- laði í staðinn fyrir brúnt avókadó og svo var kannski kominn tími á kjólinn og yfirveguð og vönduð afstaða að kaupa nýjan. Samt. Alltaf leiðinlegt. Það er ekki ég – það ert þú Þorbjargar Gunnlaugsdóttur BAKÞANKAR FRÍTT KAFFI Í DESEMBER Gjafakort Borgarleikhússins er ávísun á upplifun GJAFAKORT borgarleikhus.is Herring Salad FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO *síldar * / SALAT / JÓL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.