Fréttablaðið - 05.12.2019, Side 41

Fréttablaðið - 05.12.2019, Side 41
BÍLAR Nýtt útlit Jagúar F-Type sportbílsins var sýnt á sérstakri kynningu síðast-liðið mánudags-kvöld. Bíllinn hefur fengið nýtískulegt útlit sem ætti að duga honum þar til næsta kynslóð hans verður kynnt árið 2022, en sú verður líklega rafdrifin. Það er aðallega framendinn sem fengið hefur yfirhalningu en einn- ig innréttingin enda veitir ekki af í sterkri samkeppni frá Porsche 911. Grillið er stærra í stíl við þá hefð frá öðrum framleiðendum. Loftinn- Það er aðallega framendinn sem fengið hefur nýjan svip þótt margt sé breytt við nýja bílinn. Hyundai hefur sett nýtt met fyrir lengsta akstur vetnis-knúins bíls á einum tanki. Metið var sett í síðustu viku á Hyundai Nexo og var 778 kílómetrar um sveitir Frakklands. Sá sem var við stýrið er ekki óvanur því að setja met af ýmsu tagi. Bertrand Piccard er frægastur fyrir að f ljúga fyrstur kringum hnöttinn á sólarorkunni einni saman, en hann var einnig fyrstur til að fljúga loftbelg kringum hnöttinn í einni ferð en það gerði hann 1999. „Með þessu litla ævintýri höfum við sýnt fram á að það þarf ekki lengur dýrar frumgerðir til að slá met,“ sagði Piccard að akstrinum loknum. „Hver sem er getur nú reynt það á hefðbundnum vistvænum ökutækjum. Nýtt tímabil sam- keppni er nú byrjað með áherslu á að bjarga umhverfinu,“ sagði Picc- ard. Hyundai ætlar að leggja áherslu Hyundai Nexo setur met – aftur Bertrand Piccard á áfangastað ásamt framkvæmdastjóra Hyundai í Frakklandi, Lionel French-Keogh, að vonum hæstánægðir með árangurinn. HDC-6 Neptune er vetnisknúinn flutningabíll sem frumsýndur var nýlega. Elon Musk er duglegur að segja frá nýjustu bílum Tesla þessa dagana og nú er hann farinn að tala um Roadster-sportbílinn. Bíll- inn var forsýndur snemma á árinu en lítið var gefið upp um hvað hann gæti. Elon Musk segir að Tesla Road ster eigi að vera aðeins 1,9 sekúndur í hundraðið og 4,2 sekúndur í 160 km á klst. Aflið kemur frá 200 kWh rafhlöðu og fer til þriggja rafmót- ora. Tveir þeirra eru á afturöxli en einn er fyrir framdrifið. Togið út í hjólin er 10.000 newtonmetrar svo það er ekkert skrítið að hann skuli vera fljótur af stað. Samkvæmt Elon Musk á Roadster að taka míluna á 8,9 sekúndum sem þýðir að hann verður fyrsti óbreytti fjöldafram- leiddi bíllinn til að gera það undir níu sekúndum. Tesla Roadster verður fljótasti bíllinn á mílunni Franz von Holzhausen, yfirhönn- uður Tesla, hefur verið duglegur að birta myndir af Roadster-sport- bílnum á Twitter að undanförnu. Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is Andlitslyfting Jagúar F-Type Nýr Jagúar F-Type sportbíll er kominn fram á sjónarsviðið en hann er á miklum samkeppnismarkaði. Nægir þar að nefna Porsche 911 og BMW Z4 svo að talsverðu máli skiptir að vel takist til við hönnunina. á fleiri en eina gerð vistvænna öku- tækja en Hyundai býður upp á breiða línu raf bíla og tengiltvinn- bíla ásamt tvinnbílum og vetnis- bílnum Nexo. Hyundai sýndi nýlega HDC-6 Neptune sem er frumgerð f lutningabíls sem er knúinn vetni, en Hyundai horfir nú á möguleika á framleiðslu slíkra tækja. tökin eru stærri og stuðarinn situr lægra en áður. Það eru þó framljósin sem setja mestan svip á hann en þau eru nú staðsett fyrir ofan stuðarann í stað þess að vera í frambrettunum. Grunngerðir fá díóðuljós en dýrari útfærslur svokölluð pixel-ljós sem breyta stöðu ljósgeislans eftir umferð á móti. Í innréttinguna er nú komið 12,3 tommu mælaborð og í miðjustokknum er tíu tommu snertiskjár með Apple Carplay og Android Auto. Tvær gerðir innrétt- inga verða í boði, Sport eða Per- formance. Aðeins verða tvær gerðir véla í boði, fjögurra og átta strokka. P300 vélin er tveggja lítra og er 296 hestöfl en fimm lítra V8-vélin hefur fengið endurhönnun og skilar nú 444 hest- öf lum. Hægt verður að velja um afturdrif eða fjórhjóladrif. Í R-útgáfu sinni verður bíllinn 566 hestöfl með 700 newtonmetra togi en hætt hefur verið við SVR-útgáfuna. R-útgáfan verður aðeins 3,5 sekúndur í hund- raðið með átta þrepa sjálfskipting- unni sem verður sú eina í boði. Með V8-vélinni er bíllinn með 285 km hámarkshraða en með tveggja lítra vélinni er hámarks- hraðinn bundinn við 250 km á klst. Tveggja lítra bíllinn verður aðeins í boði með afturdrifi. Kosturinn við bílinn með minni vélinni er hversu léttur hann er en hann er heilum 120 kílóum léttari en V8-bíllinn. Eiginþyngd bílsins með fjögurra strokka vélinni er 1.520 kg en 1.640 með stærri vélinni. Með léttari vél er framendinn léttari og bíllinn því minna undirstýrður og léttari í stýri. Þegar F-Type V8 er pant- aður í R-útgáfu með fjórhjóladrifi er þyngdin komin upp í 1.760 kg. Allar útgáfur bílsins fá nýtt púst- kerfi og er kerfið fyrir V8-vélina með sérstakri hljóðlátri stillingu til að lækka hávaða í bílnum þegar komið er heim seint að kvöldi. Verð bílsins byrjar í 8,5 milljónum króna í Bretlandi en með V8-vélinni kostar hann frá 11,1 milljón króna. Í R-ÚTGÁFU SINNI VERÐUR BÍLLINN 566 HESTÖFL MEÐ 700 NEWTON- METRA TOGI EN HÆTT HEFUR VERIÐ VIÐ SVR-ÚTGÁFUNA. HYUNDAI ÆTLAR AÐ LEGGJA ÁHERSLU Á FLEIRI EN EINA GERÐ VIST- VÆNNA ÖKUTÆKJA EN HY- UNDAI BÝÐUR UPPÁ BREIÐA LÍNU RAFBÍLA OG TENGIL- TVINNBÍLA ÁSAMT TVINN- BÍLUM OG VETNISBÍLNUM NEXO. Elon Musk lætur ekki þarna staðar numið en hann hefur einn- ig gefið í skyn að sérstök Space X útgáfa verði enn öf lugri. Ekki verður drægnin síðri en hann mun brjóta 1.000 km markið. Hámarks- hraði er ekki gefinn upp nákvæm- lega en verður í kringum 380 km segir Musk. Tesla Roadster mun fara í framleiðslu seint á næsta ári. Þetta mun vera nokkuð endanlegt útlit Tersla Roadster sportbílsins. TOGIÐ ÚT Í HJÓLIN ER 10.000 NEWTONMETRAR SVO ÞAÐ ER EKKERT SKRÍTIÐ AÐ HANN SKULI VERA FLJÓTUR AF STAÐ. 5 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.