Fréttablaðið - 05.12.2019, Síða 20

Fréttablaðið - 05.12.2019, Síða 20
Jólamánuðurinn er skollinn á og á þessum árstíma langar marga að gefa af sér. Auðvitað eru til alls konar góð málefni sem má styðja og við knúsum fjölskylduna. Fyrir suma eru jólin samt erfiður og jafn- vel bölvanlegur tími og mig langaði að semja stuttan pistil til að hjálpa fólki að styðja þá sem þurfa. Fátækir, einmana og veikir eru meðal þeirra sem finnst jólin vera erfið. Ef þú þekkir einhvern sem glímir við slíkt eða jafnvel erfiðar minningar tengdar jólunum eru hérna nokkrar leiðir til að gera jólin þeirra bærilegri ef þú átt aukajóla- skap til að gefa. Hugsaðu út í það hvort þú þekkir einhvern sem er einangraður eða á erfitt með að ferðast og bjóddu við- komandi með í jólainnkaup, á jóla- markaði eða annað slíkt eða bjóddu þeim að kaupa inn fyrir þá. Hringdu í einhvern sem þarf hlýju eða samskipti. Hlustaðu vel á það sem viðkomandi segir og taktu þér tíma til að spjalla. Kannski þarf viðkomandi einhverja aðstoð aðra sem þú getur auðveldlega veitt. Áttu laust pláss við jólaborðið fyrir einhvern sem er nýfluttur til landsins eða á fáa að? Þekkirðu einhvern sem er félítill en skammast sín fyrir að þiggja hjálp? Stingdu seðli eða gjafabréfi í umslag og inn um lúguna. Nafn- lausar gjafir gleðja líka ótrúlega. Er einhver í kringum þig heilsu- veill eða aðstæður einhvern veginn þannig að þeir ná ekki að sinna heimilinu? Bjóddu þeim að kíkja við og gera eitthvað, sama hve smá- legt það er. Setja upp jólaskraut, taka til það sem ekki hefur náðst að fara yfir og kannski strjúka úr hill- um sem er erfitt að komast að. Nú eða sækja jólaskrautið í geymsluna. Þekkirðu bugaða foreldra? Auka- vinnan um jólin og allt annað á fullu og þeim finnst þeir ekki standa sig í að „jólast“ með börnunum. Bjóddu þeim að stela börnunum í jóla- bakstur eða föndur og sendu þau heim með afraksturinn meðan for- eldrarnir fá langþráða hvíld. Bættu enn um betur og bjóddu einmana ættingja eða vini líka í samveruna. Ertu að moka snjóinn af tröpp- unum eða berja klakann? Er einhver í sama húsi sem á erfitt með gang og mokstur? Taktu þeirra tröppur líka. Bakaðu aukalega fyrir einhvern sem það myndi gleðja. Oft hafa efnalitlir ekki efni á nein- um jólaatburðum fyrir sig og sína. Ef þú tengist einhverjum slíkum viðburði bjóddu þeim. Nú eða ef þú tengist engu kauptu miða og gefðu þeim eða bjóddu þeim með þér. Kíktu í kaffispjall hjá einhverjum sem þarf á því að halda eða bjóddu þeim í heimsókn. Hafðu svo augun opin fyrir, þreytu, streitu og vanlíðan í kring- um þig og bjóddu jólaknús eða skelltu einu hrósi eða brosi á þá sem þurfa og ekki gleyma að ofgera þér ekki heldur og fara vel með þig í þessum myrka mánuði. Jólin koma þótt allt sé ekki fullkomið. Gleðilega hátíð. Áttu auka jólaskap? Birgir Jónsson, forstjóri Íslands-pósts, var í viðtali í Markaði Fréttablaðsins í síðustu viku. Þar var dregin upp jákvæð mynd af þróun mála hjá ríkisfyrirtækinu, undir fyrirsögninni „Öflugur við- snúningur hjá Íslandspósti“. Var meðal annars sagt frá því að dregið hefði úr hallarekstri fyrirtækisins og stefndi í að af koman yrði við núllið á næsta ári. Misheppnaðar f jár festingar fyrrverandi stjórnenda í sam- keppnisrekstri keyrðu Íslandspóst í greiðsluþrot. Það eru að sjálfsögðu góðar fréttir ef tekizt hefur að koma böndum á óráðsíuna og vitleysuna, sem viðgekkst árum saman hjá fyr- irtækinu, á ábyrgð og undir eftirliti stjórnar fyrirtækisins sem valin er af stjórnmálaflokkunum á Alþingi. Myndin er samt kannski ekki alveg eins falleg og viðtalið við nýja for- stjórann gaf til kynna. Skattgreiðendur til bjargar Í fyrsta lagi hefði Íslandspósti ekki verið haldið gangandi nema með aðstoð skattgreiðenda. Fyrirtækið hefur ekki verið rekstrarhæft í langan tíma. Hlutafé Póstsins hefur verið aukið um milljarð til að gera honum kleift að standa við skuld- bindingar sínar. Þann milljarð borga skattgreiðendur. Þá hefur Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) tekið (afskaplega hæpna) ákvörðun um að Pósturinn fái um 1.500 milljóna króna framlag úr alþjónustusjóði vegna meints taps af millilanda- sendingum. Væntanlega munu þeir peningar líka koma frá skattgreið- endum, því að sjóðurinn er tómur. Viðskiptavinirnir ættu að fá verðlækkun Í öðru lagi mega nýir stjórnendur Íslandspósts eiga að þeim hefur tekizt að lækka kostnað hjá fyrir- tækinu umtalsvert, enda blasti það við þeim sem til þekkja að fyrirtækið hafði verið afskaplega illa rekið. Upplýst hefur verið að kostnaður hafi verið lækkaður um hálfan milljarð hið minnsta á árs- grundvelli og svigrúm sé til frekari hagræðingar. Ek k i hef ur feng izt upplýst hvernig hagræðið skiptist á milli rekstrarþátta, en ætla má að það sé fyrst og fremst í alþjónustunni, sem ber allan fastan kostnað fyrir- tækisins. Birgir forstjóri gleymir að nefna að í póstlögum, sem hafa gilt um starfsemina, er innbyggð hag- ræðingarskylda. Samkvæmt lög- unum á gjaldskrá fyrir alþjónustu, sem Póst- og fjarskiptastofnun tekur ákvarðanir um, að taka mið af raunkostnaði, að viðbættri hæfi- legri álagningu. Í reglugerð um bók- haldslega og fjárhagslega aðgrein- ingu í rekstri póstrekenda er að finna skýra heimild PFS til að hafna kostnaði sem ekki er nauðsynlegur til að veita viðkomandi þjónustu. Það blasir því við að hafi kostn- aður við að veita alþjónustu lækkað, eiga viðskiptavinir Póstsins að njóta þess í lækkun gjaldskrár. Gjaldskrár andstæðar lögum? Sú lækkun bætist við það sem við- skiptavinirnir eiga inni hjá fyrir- tækinu vegna oftekinna gjalda á árunum 2016 og 2017, en PFS hefur staðfest að umframhagnaður af einkaréttarrekstri á þessum árum nam tæplega milljarði króna. Ef gjaldskrá Póstsins fyrir bréfasend- ingar verður óbreytt eða hækkar jafnvel, er það lögbrot. Neytendasamtökin reka nú mál fyrir Eftirlitsstofnun EFTA vegna hækkunar á gjaldskrá Íslandspósts vegna erlendra póstsendinga. Sam- tökin mótmæla því að kostnaði vegna rekstrarvanda Póstsins sé velt yfir á neytendur án þess að fyrir liggi greining á raunkostnaði vegna erlendra sendinga. Birgir hefur svarað þeim og sagt að kostn- aðurinn sé vel þekktur, en gleymir þá að geta þess að hann hefur sjálfur sagt að hann hafi lækkað kostnað Póstsins um a.m.k. hálfan milljarð eftir að gjaldskráin var sett. Lögum samkvæmt verður að laga gjald- skrána að því. Það er því útlit fyrir að Birgir forstjóri gæti þurft að endurskoða tekjuáætlunina, sem gefur til kynna að á næsta ári verði Pósturinn rek- inn við núllið. Ríkið er áfram í bullandi samkeppni Í þriðja lagi segir Birgir frá því að öll dótturfélög Póstsins hafi nú verið seld eða séu á lokametrunum í sölu- ferli. Með því sé verið að „skapa frið um Póstinn með því að bregðast við þeirri gagnrýni að Pósturinn hafi verið með umsvif á mörkuðum sem tengjast ekki kjarnastarfseminni með beinum hætti.“ Þetta er líka gott og blessað svo langt sem það nær; dótturfélög eins og prentsmiðjan Samskipti, Frakt ehf. og Gagnageymslan hafa verið seld. Samkeppnisrekstur Íslands- pósts við einkafyrirtæki, sem oft er býsna fjarskyldur kjarnasam- starfseminni, fer hins vegar ekkert síður fram í móðurfélaginu. Allir sem þurfa að fara á pósthús vita að þau eru í harðri samkeppni við sjoppur, gjafavöruverzlanir, bóka- og ritfangaverzlanir og minja- gripabúðir. Íslandspóstur rekur áfram gríðarlegan flota sendibíla í beinni samkeppni við einkareknar sendibílastöðvar. Miklar fjárfest- ingar undanfarið, til dæmis í póst- boxum, gagnast fyrst og fremst samkeppnisrekstri Íslandspósts í bögglaþjónustu. Neyðarframlagið frá skattgreiðendum fer sem sagt í áframhaldandi sókn á samkeppnis- mörkuðum. Skattgreiðendur og neytendur borga Í viðtalinu kemur fram að Íslands- póstur glími við þunga afborgunar- byrði og mikla skuldsetningu eftir fjárfestingar síðustu ára. Sú byrði er fyrst og fremst til komin vegna mis- heppnaðra ævintýra í samkeppnis- rekstri. Ýmislegt bendir til að skattgreið- endur og neytendur – sem eru nú yfirleitt sama fólkið – verði látnir standa undir þeirri byrði, með fullu samþykki stjórnmálamanna og eftirlitsstofnana. Sú fyrirætlan verður auðveldari en ella, vegna þess að enn hefur ekki verið gerð almennileg úttekt á öllum þeim kolröngu ákvörðunum, sem komu ríkisfyrirtækinu á heljarþröm og hver beri á þeim ábyrgð. Slík úttekt yrði væntanlega afskaplega óþægi- leg, bæði fyrir stjórnmálamennina og eftirlitsstofnanirnar. En það er kannski efni í aðra grein. Snúningur Póstsins í boði neytenda og skattgreiðenda Bára Halldórsdóttir Þekkirðu einhvern sem er félítill en skammast sín fyrir að þiggja hjálp? Stingdu seðli eða gjafabréfi í umslag og inn um lúguna. Nafnlaus- ar gjafir gleðja líka ótrúlega. Ólafur Stephensen framkvæmda- stjóri Félags atvinnurekenda Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn, matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis. GEFÐU GJÖF SEM GEFUR www.gjofsemgefur.is GEFÐU GEIT P IP A R \T B W A • S ÍA • 102985 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 5 . D E S E M B E R 2 0 1 9

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.