Fréttablaðið - 05.12.2019, Síða 20
Jólamánuðurinn er skollinn á og á þessum árstíma langar marga að gefa af sér. Auðvitað eru til alls
konar góð málefni sem má styðja
og við knúsum fjölskylduna. Fyrir
suma eru jólin samt erfiður og jafn-
vel bölvanlegur tími og mig langaði
að semja stuttan pistil til að hjálpa
fólki að styðja þá sem þurfa.
Fátækir, einmana og veikir eru
meðal þeirra sem finnst jólin vera
erfið. Ef þú þekkir einhvern sem
glímir við slíkt eða jafnvel erfiðar
minningar tengdar jólunum eru
hérna nokkrar leiðir til að gera jólin
þeirra bærilegri ef þú átt aukajóla-
skap til að gefa.
Hugsaðu út í það hvort þú þekkir
einhvern sem er einangraður eða á
erfitt með að ferðast og bjóddu við-
komandi með í jólainnkaup, á jóla-
markaði eða annað slíkt eða bjóddu
þeim að kaupa inn fyrir þá.
Hringdu í einhvern sem þarf
hlýju eða samskipti. Hlustaðu vel á
það sem viðkomandi segir og taktu
þér tíma til að spjalla. Kannski þarf
viðkomandi einhverja aðstoð aðra
sem þú getur auðveldlega veitt.
Áttu laust pláss við jólaborðið
fyrir einhvern sem er nýfluttur til
landsins eða á fáa að?
Þekkirðu einhvern sem er félítill
en skammast sín fyrir að þiggja
hjálp? Stingdu seðli eða gjafabréfi
í umslag og inn um lúguna. Nafn-
lausar gjafir gleðja líka ótrúlega.
Er einhver í kringum þig heilsu-
veill eða aðstæður einhvern veginn
þannig að þeir ná ekki að sinna
heimilinu? Bjóddu þeim að kíkja
við og gera eitthvað, sama hve smá-
legt það er. Setja upp jólaskraut,
taka til það sem ekki hefur náðst að
fara yfir og kannski strjúka úr hill-
um sem er erfitt að komast að. Nú
eða sækja jólaskrautið í geymsluna.
Þekkirðu bugaða foreldra? Auka-
vinnan um jólin og allt annað á fullu
og þeim finnst þeir ekki standa sig í
að „jólast“ með börnunum. Bjóddu
þeim að stela börnunum í jóla-
bakstur eða föndur og sendu þau
heim með afraksturinn meðan for-
eldrarnir fá langþráða hvíld. Bættu
enn um betur og bjóddu einmana
ættingja eða vini líka í samveruna.
Ertu að moka snjóinn af tröpp-
unum eða berja klakann? Er einhver
í sama húsi sem á erfitt með gang og
mokstur? Taktu þeirra tröppur líka.
Bakaðu aukalega fyrir einhvern
sem það myndi gleðja.
Oft hafa efnalitlir ekki efni á nein-
um jólaatburðum fyrir sig og sína.
Ef þú tengist einhverjum slíkum
viðburði bjóddu þeim. Nú eða ef þú
tengist engu kauptu miða og gefðu
þeim eða bjóddu þeim með þér.
Kíktu í kaffispjall hjá einhverjum
sem þarf á því að halda eða bjóddu
þeim í heimsókn.
Hafðu svo augun opin fyrir,
þreytu, streitu og vanlíðan í kring-
um þig og bjóddu jólaknús eða
skelltu einu hrósi eða brosi á þá
sem þurfa og ekki gleyma að ofgera
þér ekki heldur og fara vel með þig í
þessum myrka mánuði. Jólin koma
þótt allt sé ekki fullkomið.
Gleðilega hátíð.
Áttu auka jólaskap?
Birgir Jónsson, forstjóri Íslands-pósts, var í viðtali í Markaði Fréttablaðsins í síðustu viku.
Þar var dregin upp jákvæð mynd af
þróun mála hjá ríkisfyrirtækinu,
undir fyrirsögninni „Öflugur við-
snúningur hjá Íslandspósti“. Var
meðal annars sagt frá því að dregið
hefði úr hallarekstri fyrirtækisins
og stefndi í að af koman yrði við
núllið á næsta ári.
Misheppnaðar f jár festingar
fyrrverandi stjórnenda í sam-
keppnisrekstri keyrðu Íslandspóst
í greiðsluþrot. Það eru að sjálfsögðu
góðar fréttir ef tekizt hefur að koma
böndum á óráðsíuna og vitleysuna,
sem viðgekkst árum saman hjá fyr-
irtækinu, á ábyrgð og undir eftirliti
stjórnar fyrirtækisins sem valin er
af stjórnmálaflokkunum á Alþingi.
Myndin er samt kannski ekki alveg
eins falleg og viðtalið við nýja for-
stjórann gaf til kynna.
Skattgreiðendur til bjargar
Í fyrsta lagi hefði Íslandspósti ekki
verið haldið gangandi nema með
aðstoð skattgreiðenda. Fyrirtækið
hefur ekki verið rekstrarhæft í
langan tíma. Hlutafé Póstsins hefur
verið aukið um milljarð til að gera
honum kleift að standa við skuld-
bindingar sínar. Þann milljarð borga
skattgreiðendur. Þá hefur Póst-
og fjarskiptastofnun (PFS) tekið
(afskaplega hæpna) ákvörðun um
að Pósturinn fái um 1.500 milljóna
króna framlag úr alþjónustusjóði
vegna meints taps af millilanda-
sendingum. Væntanlega munu þeir
peningar líka koma frá skattgreið-
endum, því að sjóðurinn er tómur.
Viðskiptavinirnir
ættu að fá verðlækkun
Í öðru lagi mega nýir stjórnendur
Íslandspósts eiga að þeim hefur
tekizt að lækka kostnað hjá fyrir-
tækinu umtalsvert, enda blasti
það við þeim sem til þekkja að
fyrirtækið hafði verið afskaplega
illa rekið. Upplýst hefur verið að
kostnaður hafi verið lækkaður um
hálfan milljarð hið minnsta á árs-
grundvelli og svigrúm sé til frekari
hagræðingar.
Ek k i hef ur feng izt upplýst
hvernig hagræðið skiptist á milli
rekstrarþátta, en ætla má að það
sé fyrst og fremst í alþjónustunni,
sem ber allan fastan kostnað fyrir-
tækisins. Birgir forstjóri gleymir að
nefna að í póstlögum, sem hafa gilt
um starfsemina, er innbyggð hag-
ræðingarskylda. Samkvæmt lög-
unum á gjaldskrá fyrir alþjónustu,
sem Póst- og fjarskiptastofnun
tekur ákvarðanir um, að taka mið
af raunkostnaði, að viðbættri hæfi-
legri álagningu. Í reglugerð um bók-
haldslega og fjárhagslega aðgrein-
ingu í rekstri póstrekenda er að
finna skýra heimild PFS til að hafna
kostnaði sem ekki er nauðsynlegur
til að veita viðkomandi þjónustu.
Það blasir því við að hafi kostn-
aður við að veita alþjónustu lækkað,
eiga viðskiptavinir Póstsins að njóta
þess í lækkun gjaldskrár.
Gjaldskrár andstæðar lögum?
Sú lækkun bætist við það sem við-
skiptavinirnir eiga inni hjá fyrir-
tækinu vegna oftekinna gjalda á
árunum 2016 og 2017, en PFS hefur
staðfest að umframhagnaður af
einkaréttarrekstri á þessum árum
nam tæplega milljarði króna. Ef
gjaldskrá Póstsins fyrir bréfasend-
ingar verður óbreytt eða hækkar
jafnvel, er það lögbrot.
Neytendasamtökin reka nú mál
fyrir Eftirlitsstofnun EFTA vegna
hækkunar á gjaldskrá Íslandspósts
vegna erlendra póstsendinga. Sam-
tökin mótmæla því að kostnaði
vegna rekstrarvanda Póstsins sé
velt yfir á neytendur án þess að
fyrir liggi greining á raunkostnaði
vegna erlendra sendinga. Birgir
hefur svarað þeim og sagt að kostn-
aðurinn sé vel þekktur, en gleymir
þá að geta þess að hann hefur sjálfur
sagt að hann hafi lækkað kostnað
Póstsins um a.m.k. hálfan milljarð
eftir að gjaldskráin var sett. Lögum
samkvæmt verður að laga gjald-
skrána að því.
Það er því útlit fyrir að Birgir
forstjóri gæti þurft að endurskoða
tekjuáætlunina, sem gefur til kynna
að á næsta ári verði Pósturinn rek-
inn við núllið.
Ríkið er áfram í
bullandi samkeppni
Í þriðja lagi segir Birgir frá því að öll
dótturfélög Póstsins hafi nú verið
seld eða séu á lokametrunum í sölu-
ferli. Með því sé verið að „skapa frið
um Póstinn með því að bregðast við
þeirri gagnrýni að Pósturinn hafi
verið með umsvif á mörkuðum sem
tengjast ekki kjarnastarfseminni
með beinum hætti.“
Þetta er líka gott og blessað svo
langt sem það nær; dótturfélög eins
og prentsmiðjan Samskipti, Frakt
ehf. og Gagnageymslan hafa verið
seld. Samkeppnisrekstur Íslands-
pósts við einkafyrirtæki, sem oft
er býsna fjarskyldur kjarnasam-
starfseminni, fer hins vegar ekkert
síður fram í móðurfélaginu. Allir
sem þurfa að fara á pósthús vita
að þau eru í harðri samkeppni við
sjoppur, gjafavöruverzlanir, bóka-
og ritfangaverzlanir og minja-
gripabúðir. Íslandspóstur rekur
áfram gríðarlegan flota sendibíla í
beinni samkeppni við einkareknar
sendibílastöðvar. Miklar fjárfest-
ingar undanfarið, til dæmis í póst-
boxum, gagnast fyrst og fremst
samkeppnisrekstri Íslandspósts í
bögglaþjónustu. Neyðarframlagið
frá skattgreiðendum fer sem sagt í
áframhaldandi sókn á samkeppnis-
mörkuðum.
Skattgreiðendur
og neytendur borga
Í viðtalinu kemur fram að Íslands-
póstur glími við þunga afborgunar-
byrði og mikla skuldsetningu eftir
fjárfestingar síðustu ára. Sú byrði er
fyrst og fremst til komin vegna mis-
heppnaðra ævintýra í samkeppnis-
rekstri.
Ýmislegt bendir til að skattgreið-
endur og neytendur – sem eru nú
yfirleitt sama fólkið – verði látnir
standa undir þeirri byrði, með
fullu samþykki stjórnmálamanna
og eftirlitsstofnana. Sú fyrirætlan
verður auðveldari en ella, vegna
þess að enn hefur ekki verið gerð
almennileg úttekt á öllum þeim
kolröngu ákvörðunum, sem komu
ríkisfyrirtækinu á heljarþröm og
hver beri á þeim ábyrgð. Slík úttekt
yrði væntanlega afskaplega óþægi-
leg, bæði fyrir stjórnmálamennina
og eftirlitsstofnanirnar. En það er
kannski efni í aðra grein.
Snúningur Póstsins í boði neytenda og skattgreiðenda
Bára
Halldórsdóttir
Þekkirðu einhvern sem er
félítill en skammast sín fyrir
að þiggja hjálp? Stingdu
seðli eða gjafabréfi í umslag
og inn um lúguna. Nafnlaus-
ar gjafir gleðja líka ótrúlega.
Ólafur
Stephensen
framkvæmda-
stjóri Félags
atvinnurekenda
Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt
bágstadda fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn,
matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu
skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis.
GEFÐU GJÖF SEM GEFUR
www.gjofsemgefur.is
GEFÐU
GEIT
P
IP
A
R
\T
B
W
A
• S
ÍA
• 102985
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 5 . D E S E M B E R 2 0 1 9