Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 25
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Íslendingar hafa alltaf verið vel klædd þjóð. Við höfum stundum átt það til að detta í eitt og sama formið en við erum að uppgötva í æ meiri mæli að fjölbreytileikinn er fallegastur,“ segir Tinna Bergmann Jónsdóttir, verslunarstjóri GK Reykjavík á Hafnartorgi. GK Reykjavík hefur á sér svip lúxusverslana í London en þar starfaði Tinna í hringiðu hátísk­ unnar í áratug. „Ég hef alltaf haft áhuga á fólki, listum, hönnun og tónlist og þessi áhugamál drógu mig til Lundúna þar sem listalífið og tískan kraumar. Sem unglingur púslaði ég saman flíkum á sauma­ vélinni hennar ömmu og bjó til eitthvað nýtt því ég fann hvergi nákvæmlega það sem ég vildi,“ upplýsir Tinna sem í Lundúnum lauk háskólanámi í fatahönnun með áherslu á kvenmanns sérsníði og sjálf bærni. „Tískuáhuginn kviknaði fyrir alvöru þegar ég var nítján ára og starfaði sem hárgreiðslukona í London. Þar fékk ég að greiða mód­ elum fyrir tískusýningar og eftir spjall við hönnuði var ég kolfallin fyrir tískunni,“ útskýrir Tinna sem tefldi fram eigin fatamerki, Tiaber, á árunum í London, aðeins 23 ára. „Þegar ég lít til baka var það algjör draumur. Mig langaði að standa á eigin fótum, vinna með eigin hönnun og gerði fimm fata­ línur á tveimur árum en þetta var mikið hark. Því vann ég við útstill­ ingar hjá COS frá sjö á morgnana til klukkan 15 svo ég gæti borgað leiguna og lagt pening í fyrirtækið enda er kostnaðarsamt að setja nýtt merki á laggirnar í London. Ég tók þátt í tískuvikunum í París og London, fór á fundi með innkaupa­ stjórum Le Bon Marche, Selfridges og Colette og allt reyndist þetta lærdómsríkt ferli sem jók áhuga minn á rekstri. Þar hefur pabbi minn, Jón Garðar Hreiðarsson, verið mín helsta fyrirmynd og ég hef bæði lært mikið af honum og leitað í reynslubanka hans,“ segir Tinna. Rétt föt hafa áhrif á sálina Seinna starfaði Tinna við útstill­ ingar hjá stórverslununum Harr­ ods, Harvey Nichols, Liberty’s og Selfridges. „Á þeim tíma óx tengslanetið hratt. Mér bauðst gott tækifæri við að taka þátt í opnun Isabel Marant Mayfair sem var frábær en krefjandi reynsla. Þar voru engar auglýsingar leyfðar en þó þurftum við að skapa ákveðinn vöxt. Ég vann mig hratt upp og tók verslunina yfir á hálfu ári,“ upp­ lýsir Tinna sem starfaði einnig sem persónulegur stílisti um helgar. „Þar átti ég dyggan kúnnahóp sem óx hratt. Ég býst við að það sé vegna ástríðu minnar fyrir því að láta fólki líða enn betur í eigin skinni og ýta undir náttúrulega fegurð. Meðal viðskiptavina voru bæði frægir einstaklingar sem og fólk í atvinnulífinu sem vildi aðstoð við að klæða sig. Snjó­ boltinn varð æ stærri og ég hóf samstarf við Fendi, Stellu McCart­ ney, Victoriu Beckham, Roksanda, MaxMara og fleiri,“ upplýsir Tinna sem nýtur þess að finna föt við hæfi hvers og eins. „Mér finnst í alvöru best í heimi að klæða fólk í réttu klæðin og upplifa þakklæti þess og ánægju. Að geta aðstoðað og einfaldað lífið. Það hefur nefnilega áhrif þegar fólk veit ekki hverju það á að klæðast að morgni og fer þannig út í daginn. Þetta hef ég margoft upplifað, eins og hjá konunni sem sagðist taka betri ákvarð­ anir í vinnunni eftir að við tókum aðeins til í fataskápnum hennar og fundum réttu flíkurnar. Þetta gerir líka mikið fyrir sál hvers og eins og því er starfið heldur betur gefandi,“ segir Tinna. Heimsþekkt vörumerki Eftir tólf ára starf í Lundúnum er Tinna komin heim með nýja vitn­ eskju og sýn. „Stærsta lærdóminn tel ég felast í því hve fjölbreytileikinn er góður. Ég vil að öllum sem koma í GK Reykjavík líði vel. Ég þekki vel mörg merkjanna sem við bjóðum í búðinni og tel mig vita hvaða flíkur standa fyrir sínu,“ segir Tinna sem í GK leggur mikið upp úr fagmannlegri ráðgjöf og starfs­ fólki sem býr yfir sérþekkingu. „Við það að flytja ofan af Skólavörðustíg á Hafnartorg er verslunin orðin enn glæsilegri og nú búin heimsþekktum vöru­ merkjum eins og Acne Studios, Victoria frá Victoria Beckham, J. Lindberg, Rotate et Birger Mikk­ elsen, Paul Smith, Anine Bing og Mads Nørgaard,“ upplýsir Tinna og viðskiptavinahópurinn er breiður og stór. „Til okkar koma vinnandi konur og karlar, hvort sem það er úr lista­ heiminum eða af skrifstofunni. Við stöndum fyrir góð snið, vandaða þjónustu og þægindi. Við tökum okkur tíma í að finna rétt snið og liti fyrir hvern og einn og fyrir okkur snýst þjónustan um að ráðleggja rétt. Að finna réttu flíkina; f lík sem dregur fram það fegursta í fari hvers og eins og hentar lífsstíl hans. Oft eru viðskiptavinirnir með fyrirfram ákveðnar hugmyndir þegar þeir koma í verslunina en eftir ráðlegg­ ingar okkar verður oft mikill við­ snúningur í fatavali. Okkur þykir svo ekkert ánægjulegra en þegar viðskiptavinir finna fatnað sem þeim þykir algjörlega vera málið; í góðum gæðum, klæðilegan og þægilegan,“ segir Tinna. Synd að spara sparifötin Tinna segir mikilvægt að fólk kaupi sér fatnað með því hugarfari að hann endist og eigi sér meira en eitt líf. „Líka að sniðið lyfti manni upp og henti lífsstílnum. Svo má alls ekki spara flíkur fyrir sérstök tilefni. Mér finnst það vera synd. Klæddu þig frekar upp og njóttu þess að vera vel til fara,“ segir Tinna í glæsilegri verslun GK á Hafnartorgi. „GK Reykjavík hefur ótrúlega sérstöðu. Vörumerkjaflóran er skemmtileg, f líkurnar blanda af tímalausri og framúrstefnulegri hönnun, og úrvalið er fjölbreytt þótt upplagið sé takmarkað því ekki viljum við að allir séu eins. Þjónustan og andrúmsloftið lætur þig langa til að staldra við, fá þér kaffibolla eða hvítvínsglas, og versla í rólegheitum. Við viljum að upplifunin sé skemmtileg og eftirminnileg. Starfsfólkið býr yfir mikilli sérfræðikunnáttu og við erum með menntaðan klæðskera á gólfinu. Við getum því boðið upp á sérsníði og tímapantanir fyrir viðskiptavini sem vilja fá aðstoð við stíliseringu,“ upplýsir Tinna í einstakri stemningu GK þar sem reglulega er boðið upp á skemmti­ lega viðburði. „Andrúmsloftið hér er ávallt jákvætt, fagmannlegt og rólegt. Hér er nóg pláss fyrir þá sem vilja skoða í rólegheitum og nýbakaðar mæður elska að koma með barna­ vagna því vagninn passar líka inn í stóra búningsklefann okkar,“ segir Tinna sem í GK er alltaf með heitt á könnunni, kalt hvítvín og fagfólk til þjónustu reiðubúið. „Ég lít á skil fatnaðar sem nei­ kvæða sölu því þá fór eitthvað úrskeiðis. Ráðgjöfin hefði átt að vera betri. Þegar viðskiptavinur­ inn er alltaf í fyrsta sæti fer hann út með réttu flíkina og þar er til dæmis mikilvægt að vita við hvað viðkomandi starfar,“ segir Tinna. GK Reykjavík er á Hafnartorgi, Tryggvagötu 21. Sími 519 4400. Í GK Reykjavík er mikið lagt upp úr sérþekkingu og þjónustu fagfólks í einstöku andrúmslofti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hjá GK Reykjavík fást fáein eintök af hverri flík til að ekki séu allir eins. Hér má sjá brot af jólatískunni. Glæsileg merki frá heimsþekktum hönnuðum fást í GK Reykjavík. Sniðið þarf að lyfta manni upp og henta lífsstílnum. Svo má alls ekki spara flíkur fyrir sérstök tilefni. Mér finnst það vera synd. Framhald af forsíðu ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.