Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 19
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Við sem að verkefninu komum erum afar stolt af því og teljum að stigið hafi verið mikil- vægt skref í rétta átt til að gera réttarvörslu- kerfið okkar mannlegra. Alltaf nóg til af humri hjá Norðanfiski... STÓRUM HUMRI!! Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu á úrvals sjávarfangi til veitinga- og stóreldhúsa. Einnig má finna vörur Norðanfisks í neytendapakkningum í verslunum Bónus um land allt. Hafið samband á nordanfiskur@nordanfiskur.is eða í síma 430 1700 Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Um leið er lán í óláni að þjóðin á dugmikinn menntamála- ráðherra, Lilju Alfreðs- dóttur, sem tekur ekki í mál að sitja með hendur í skauti og yppta öxlum í uppgjöf. Jólabókaflóðið, sem nú stendur sem hæst, er vissulega til marks um að Íslendingar eru bókaþjóð. Fólk er forvitið um nýju bækurnar og býr sér til sinn óskalista í huganum, oft eftir að hafa blaðað í Bókatíðindum. Sá bæklingur hefur í áratugi komið fyrir jól inn um lúguna og kynslóðir hafa tekið honum fagnandi. Bækur eru svo enn gríðarlega vinsæl jólagjöf. Allt virðist því vera í þokkalegasta lagi hjá bókaþjóð- inni. En svo koma óþægilegar fréttir sem skekkja verulega þessa fallegu mynd af þjóð sem sækir í bækur. Ný PISA-könnun staðfestir að lesskilningi grunn- skólanema hefur hrakað og orðaforði og hugtaka- skilningur minnkar. Þarna eru drengir áberandi illa staddir. Þetta er ástand sem ekki verður unað við. Um leið er lán í óláni að þjóðin á dugmikinn mennta- málaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur, sem tekur ekki í mál að sitja með hendur í skauti og yppta öxlum í uppgjöf. Lilja hefur boðað aðgerðir. Ein af þeim er að fjölga íslenskutímum, sem getur ekki verið til annars en góðs. Um leið er mikilvægt að sjá til þess að nem- endur fái í hendur lesefni sem vekur áhuga þeirra. Jafnvel ötulustu lestrarhestar þekkja þá deyfðar- og þreytutilfinningu sem grípur um sig þegar lesefnið vekur ekki á nokkurn hátt áhuga þeirra. Þá fer ekki mikið fyrir djúpum lesskilningi. Allir sem telja sterka lestrarupplifun hluta af mikilvægu þroskaferli ungrar manneskju minnast með hlýju og gleði í hjarta lestrarævintýrisins sem fylgdi Harry Potter bókunum á sínum tíma. Æsku- fólk um allan heim gleymdi sér í þeim sögum. Það átti einnig við um ungmenni hér á landi. Þegar kom að þeim bókum varð þess ekki vart að lesskilningur þeirra ungmenna sem lásu væri í lágmarki. Þau vissu nákvæmlega hvað þau voru að lesa og gátu skilgreint það af nákvæmni sem stundum minnti á rökhugsun færasta fræðimanns. Harry Potter bækurnar hefðu átt að vera á námskrá allra skóla á þeim tíma. Þær kveiktu lestrarelda, sem því miður hafa ekki áfram logað svo glatt. Potter-ævintýrið sýndi samt hversu gríðarlega mikil og góð áhrif bækur geta haft á unga lesendur. Hver bók í flokknum var mörg hundruð blaðsíður en því fleiri sem síðurnar voru, því ánægð- ari voru ungu lestrarhestarnir. Þeir upplifðu sæluna sem fylgir því að gleyma sér í bókum. Því miður eru bækur ekki í hávegum hafðar á öllum heimilum. Einmitt þess vegna verður skóla- umhverfið að vera bókvænt og þar verður að leyfa nemendum að velja sér lesefni við hæfi. Það kann að fara hrollur um einhverja velji ungur lesandi að sökkva sér ofan í Batmanblöð í íslenskri þýðingu en fúlsi við skáldsögum sem taldar eru mun uppbyggi- legri. Sleppum taki á því snobbviðhorfi og gleðjumst í staðinn í hvert sinn sem við sjáum barn sitja niður- sokkið með bók í hönd. Barnið þarf líka að fá sinn tíma til lesturs og finna sinn eigin hraða. Lesskiln- ingur verður ekki mældur með hraðlestrarprófum. Upplifunin er hið mikilvæga, ekki það hversu langan tíma tekur að ljúka við bókina. Lestrareldar Á árinu 2017 hóf embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra undirbúning á þremur umbótaverkefnum til að mæta þörfum þolenda ofbeldis í samstarfi við hinar ýmsu stofnanir og félaga- samtök. Eitt þeirra var að kynna brotaþolum niður- fellingu héraðssaksóknara í kynferðisbrotamálum, en verklagið hafði verið að senda brotaþolum bréf þar sem niðurstaða ákæruvaldsins um niðurfellingu var kynnt. Þessi bréf eru þung yfirferðar og bárust bréfin fyrir- varalaust til þolenda. Ljóst var að þessi bréf voru alltaf mikið áfall fyrir þolanda. Við ákváðum að leita til embættis héraðssaksóknara um samstarf um tilraunaverkefni varðandi niðurfell- ingu kynferðisbrotamála. Einnig var leitað til Háskól- ans á Akureyri og óskað eftir að þetta nýja verklag yrði rýnt í samanburði við hefðbundið verklag. Verkefnið var unnið með samþykki Ríkissaksóknara. Um var að ræða tilraunaverkefni til eins árs sem fólst í því að kynna þolendum niðurfellingarbréf í viðtali. Þegar full- trúi lögregluembættisins fékk bréf frá héraðssaksókn- ara var haft samband við réttargæslumann þolanda og tími til viðtals fundinn. Eftir hlutlæga kynningu lög- fræðinga fékk þolandi tíma til að fara betur yfir málið með réttargæslumanni sínum. Í desember 2018 skilaði Karen Birna Þorvaldsdóttir meistararitgerð sinni „Annað áfall ofan á hitt“ þar sem hún hafði rýnt reynslu brotaþola af réttarvörslu- kerfinu. Niðurstaðan var að niðurfelling ákæruvalds á kynferðisbrotamáli þolenda var öllum sem talað var við áfall og erfið reynsla. Skýrt kom fram að reynsla kvennanna sem fengu viðtal var töluvert jákvæðari en þeirra sem fengu bréf sent heim. Þá voru þær sáttar við það hvernig þeim var tilkynnt um niðurfellinguna. Í byrjun janúar 2019 var verkefnið kynnt fyrir lög- reglustjórum landsins og í kjölfarið hefur þetta verklag verið tekið upp á öllu landinu. Við sem að verkefninu komum erum afar stolt af því og teljum að stigið hafi verið mikilvægt skref í rétta átt til að gera réttarvörslu- kerfið okkar mannlegra. Að mæta þörfum þolenda kynferðisofbeldis Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri Léttvægt leynibrall Lagalegir loftfimleikar hafa reddað stjórn RÚV afsökun fyrir pukri sínu um umsækjendur um stöðu útvarpsstjóra. Þá er komið frítt spil til að ráða hvern sem er án þess að almenningur, sem borgar alltaf reikninginn, fái að vita hverjir komu til greina. Þetta léttvæga leynibrall er reyndar mjög gott til lengri tíma litið fyrir RÚV enda er enginn að tala um svarta skýrslu Ríkis- endurskoðunar á meðan. Andarslitrin Svipað átti sér stað í Ráðhúsi Reykjavíkur í vikunni. Allt stefndi í það að meirihlutinn gæti unnið sér inn kærkomin stig í ráðdeild með því að leyfa for- seta borgarstjórnar að gagnrýna matarútgjöld á borgarstjórnar- fundum. Í stað þess að leyfa mál- inu að deyja út á tveimur dögum voru ræstir út starfsmenn til að kemba í gegnum Excel. Tókst þá að opinbera að fjármálasviðið gaf út vitlausar tölur. Þar lauk vandræðunum ekki. Ljós- myndara var vísað frá mötu- neytinu með þeim skýringum að maturinn væri sá sami og í skólamötuneytum. Þurfti því að mynda Confit de Canard- veisluna utan af götu, eitthvað sem forsetanum hugnaðist ekki. Vildi hann láta mynda sig borða brauð, ekki önd. En jæja, þá er umræðan um fjárhagsáætlunina í andarslitrunum. arib@frettabladid.is 5 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.