Fréttablaðið - 05.12.2019, Page 55
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Þegar þingmaður yfirgefur þingflokk felast alltaf í því pólitísk tíðindi og það eru
pólitísk stórtíðindi þegar sá
þingmaður tilheyrir meirihlut-
anum. Meirihlutinn minnkar um
mann. Og á Íslandi munar yfirleitt
alltaf um mann. Og auðvitað er
það þannig að í þessum skilnaði
felast hraustleg skilaboð af hálfu
þingmannsins. Hann hefur hugsað
málið og vill frekar vera einn, og
með engum, en með flokknum
sínum og félögum sínum. Einsemd
og útlegð kitlar hann frekar.
Eðlilega hefur þess vegna tölu-
vert verið fjallað um þessi tíðindi
og hvað gerðist. Var þarna kannski
sjálft hjartað í f lokknum að mót-
mæla þingflokknum? Og hvar
situr hann núna í matsalnum?
Þingmenn VG hafa verið spurðir
um þennan nýja veruleika og allir
svarað af mikilli yfirvegun og ein-
hvers konar virðingu og eins og í
kór: „Það er alltaf leiðinlegt þegar
leiðir skilja.“ Sumir þingmenn hafa
bætt við orðinu „auðvitað“ til að
undirstrika þungann. „Það er auð-
vitað alltaf leiðinlegt þegar leiðir
skilja,“ segja þau og það er einhver
stóísk kyrrð í þessu svari. En þetta
svar er líka dálítið áhugavert.
Það er líka alltaf „auðvitað
leiðinlegt“ þegar maður ýtir óvart
á lítinn kaffibolla á kaffivélinni
þegar maður ætlaði að fá sér stóran,
það er alltaf leiðinlegt þegar morg-
unninn hefst á því að brennt brauð
skoppar upp úr brauðristinni og
græna avókadóið sem átti að fara
ofan á brauðið er orðið brúnt. Og
líka alltaf dálítið leiðinlegt þegar
það kemur blettur í kjólinn. En
það má alltaf ýta aftur á takkann
á kaffivélinni, borða bara súkku-
laði í staðinn fyrir brúnt avókadó
og svo var kannski kominn tími
á kjólinn og yfirveguð og vönduð
afstaða að kaupa nýjan.
Samt. Alltaf leiðinlegt.
Það er ekki ég
– það ert þú
Þorbjargar
Gunnlaugsdóttur
BAKÞANKAR
FRÍTT KAFFI
Í DESEMBER
Gjafakort Borgarleikhússins
er ávísun á upplifun
GJAFAKORT
borgarleikhus.is
Herring Salad
FERSKT Á FERÐINNI * FRESH TO GO
*síldar *
/ SALAT /
JÓL