Fréttablaðið - 05.12.2019, Page 13

Fréttablaðið - 05.12.2019, Page 13
Þessi skemmtilegi tími ársins er kominn aftur, aðventan er gengin í garð, jólin á næsta leiti. Fólk er farið að skreyta hús og híbýli og hráslagalegt veðrið setur mark sitt á umhverfið. Það birtir seinna á daginn og kvöldar að sama skapi fyrr. Allir vonast eftir hvítum jólum, enda mjög hátíð- legur bragur á öllu í þeim búningi. Mörgum finnst þetta ósköp kósí, setjast niður með góða bók og hafa það huggulegt. Þetta er tími fjöl- skyldunnar, að hitta vini og kunn- ingja, fara í bæinn og kaupa gjafir eða eins og svo margir, að bregða sér af landi brott til að fá jólaandann yfir sig á einhverjum jóla- markaðnum. Það er ys og þys á landanum. Þeir sem eru í skóla eru í törn og mjög uppteknir framan af mánuði og líta ekki upp úr bók- unum eða verk- efnum þeim sem þeir eru að vinna að. Aðrir upplifa álag af því að láta alla hluti ganga upp, jólagjafirnar sjálfar auðvitað, fá réttu hugmyndina eitt árið enn og passa upp á hár, smink og heimilisþrif. Þá eru þeir sem sjá til þess að við getum verslað langt fram eftir kvöldi og tryggt að allt muni nú passa þegar hátíðin gengur loks í garð. Því fylgir auðvitað mikil til- hlökkun svo að fá kærkomið frí, vera saman, spila spil eða púsla, njóta útivistar og þannig mætti lengi telja. Það gildir að setja fæturna upp í loft, en á sama tíma að halda jafnvægi. Mjög margir eru afar uppteknir af því að missa ekki tökin, þyngjast um of, borða of mikið og svo framvegis. Reynið bara að slaka á, það verður nægur tími til að leiðrétta einhver nokkur aukakíló síðar komi þau á annað borð, ekki skapa streituástand, maður þyngist af því einu saman. Hófsemi og jafnvægi er rétta lausnin bæði hvað varðar át og hreyfingu um hátíðirnar. Hátíð ljóss og friðar er fyrir löngu orðin býsna markaðsvædd, henni fylgir ákveðið hömluleysi og finnst sennilega flestum nóg um. Þó eru margir sem lifa sam- kvæmt orðatiltækinu „sælla er að gefa en þiggja“. Þetta fólk er ekkert sérstaklega að segja frá slíku, en maður heyrir af því og þakkar í huganum fyrir slíkar hetjur sem þurfa ekki að hreykja sér af því sem vel er gert, þær vita að þetta skiptir máli og nægir að það skuli kæta náungann og gleðja hans hjarta. Það skiptir ekki máli, umfang eða verðmæti gjafa eða greiða, heldur fyrst og fremst hugurinn og sú vellíðan sem fylgir því að gera öðrum gott. Það er merkilega góð tilfinn- ing! Það liggur í hlutarins eðli að ekki eiga allir sömu mögu- leika á að njóta jóla, því miður. Þar kemur margt til og of langt mál að telja upp öll þau atriði sem geta haft áhrif hér á, hvort sem þau eru fjárhagslegs eða félagslegs eðlis, vegna veikinda eða vinnu. Eitt er þó víst að öll ráðum við að mestu tilfinn- ingum okkar og getum ákveðið hvernig okkur líður, hvernig við högum okkur og hvernig við horfum á hlutina. Það er því gríðarlega mikilvægt að vera þakklátur og njóta þess sem maður hefur hverju sinni, gleðjast yfir þessum annasama tíma ársins og reyna að láta sér líða vel og ýta undir vellíðan annarra, það er hinn sanni jólaandi. Aðventublús Teitur Guðmundsson læknir Hátíð ljóss og friðar er fyrir löngu orðin býsna markaðsvædd, henni fylgir ákveðið hömluleysi og finnst sennilega flestum nóg um. TM, Síðumúla 24, 108 Reykjavík · 515 2000 · tm.is Umsókn um að ný hlutabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland Forgangsréttarútboð og almennt útboð á 93.750.000 nýjum hlutum í TM Heildarfjöldi útgefinna hluta í TM hf. (“TM”) er 678.142.669 og hyggst félagið gefa út 93.750.000 nýja hluti til viðbótar. Hver hlutur er 1 króna að nafnverði og hafa hlutirnir verið gefnir út í samræmi við íslensk lög. Viðskipti með hina nýju hluti verða í kerfum Nasdaq Iceland undir auðkenninu TM (ISIN: IS0000000586). Bæði forgangsréttarútboðið og almenna útboðið lúta reglum laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti varðandi almenn útboð. Í auglýsingu þessari er hugtakið “útboð” notað sem samheiti um útboðin tvö. Útboð 9.-12. desember TM hf. hyggst selja nýja hluti í útboðinu. Markmið útboðsins er fjármögnun á kaupum TM á öllu hlutafé Lykils fjármögnunar hf. Stærð útboðsins nemur 93.750.000 hlutum eða sem nemur 13,8% af útistandandi hlutafé í félaginu. Heildarsöluandvirði útboðsins mun nema 3,0 milljörðum króna, fáist áskrift að öllum þeim hlutum sem boðnir eru til sölu í útboðinu. Útboðið nær til nýrra hlutabréfa í félaginu og skiptist í tvennt: 1. Forgangsréttarútboð til hluthafa í TM 2. Almennt útboð til íslenskra fjárfesta Allir hlutir í útboðinu verða seldir á sama útboðsgengi sem verður 32,0 kr. á hlut eða sem samsvarar 9,1% afslætti af dagslokaverði hlutabréfa TM á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. þann 3. desember 2019. Forgangsréttar- hafar að hinum nýju hlutum TM eru þeir aðilar sem skráðir eru hluthafar TM kl. 17:00 (GMT) þann 12. desember 2019 og þeir aðilar sem fengið hafa forgangsrétt framseldan til sín og tilkynnt hafa um framsalið fyrir þann tíma samkvæmt reglum útboðsins. Seljandi mun fyrst úthluta hinum nýju hlutum til þeirra aðila sem njóta forgangs- réttar. Verði enn nýjum hlutum í TM óúthlutað eftir úthlutun til forgangsréttar- hafa, verður þeim úthlutað í almenna útboðinu og mun útgefandi einhliða ákveða hvernig úthlutun þessara hluta verður háttað. Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar opinberlega 13. desember 2019. Eindagi kaupverðs í útboðinu er áætlaður þann 17. desember 2019 og er gert ráð fyrir að hinir nýju hlutir verði teknir til viðskipta og að viðskipti með þá hefjist þann 18. desember 2019. Arion banki hefur umsjón með útboðinu og er einnig söluaðili í útboðinu. Helstu skilmálar útboðsins: Engin lágmarksfjárhæð er á áskriftum í forgangsréttarútboðinu Hver áskrift í almenna útboðinu skal vera að lágmarki 100.000 kr. Tekið verður við áskriftum á vef Arion banka hf. (www.arionbanki.is/ tm-utbod) frá 9. desember 2019 kl. 10:00 (GMT) til 12. desember 2019 kl. 17:00 (GMT) Fjárfestar hafa heimild til að bæta við áskrift sína eða fella hana niður á útboðstímabilinu Aðstoð vegna útboðsins má nálgast hjá verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Arion banka í síma 444-7000 milli kl. 09.00 og 16.00 dagana 9. desember til 12. desember 2019 og tölvupóstfanginu tm-utbod@arionbanki.is Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi við lok útboðstímabilsins. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um TM og skilmála útboðsins í lýsingu TM og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti, bæði er varðar rekstur TM og almenna áhættu sem er samfara því að fjárfesta í hlutabréfum. Nánari upplýsingar: Útgefandi lýsingar er TM hf., kt. 660269-2079, Síðumúla 24, 108 Reykjavík. Nánari upplýsingar um TM, hlutabréf félagsins og skilmála útboðsins má finna í lýsingu félagsins sem dagsett er 4. desember 2019 og birt er á www.tm.is/fjarfestar. Þar má nálgast lýsinguna næstu 12 mánuði. Reykjavík, 5. desember 2019 Stjórn TM hf. TM HF. BIRTIR LÝSINGU Í TENGSLUM VIÐ: 5 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.