Fréttablaðið - 05.12.2019, Síða 29
Ég hef lagt hart að
mér til að láta
drauma mína rætast og
vil vera góð fyrirmynd.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Það vakti athygli að 19 ára stúlka, Adut Akech, var kosin fyrirsæta ársins en hún
hefur verið ein af eftirsóttustu
fyrirsætum heims undanfarið.
Saga hennar hefur ekki síst vakið
athygli. Fjölskylda hennar flúði frá
Suður-Súdan og dvaldi í f lótta-
mannabúðum í Kenýa þar sem
Adut fæddist og ólst upp til fimm
ára aldurs. Þá flutti fjölskyldan frá
búðunum en bjó áfram í Kenýa,
meðal annars til að fá vegabréfs-
áritun til Ástralíu en þangað flutti
Adut þegar hún var 6 ára. Í viðtali
við tímaritið Marie Claire sagðist
Adut hafa átt óvenjulega bernsku
en minntist hennar þó með hlýju.
„Ég var mjög spennt að flytja til
Ástralíu, sérstaklega að fá að fara
í skóla sem var of dýrt í Kenýa.
Frænka mín og eldri systir bjuggu
í Ástralíu en ég talaði einungis
svahílí og dinka sem var móður-
málið mitt. Ég byrjaði þess vegna
í alþjóðlegum skóla til að læra
ensku. Þegar ég fór síðan í venju-
legan skóla var ég lögð í einelti
vegna þess hversu hávaxin ég er,“
sagði hún.
Adut segist fyrst hafa komið
fram á tískusýningu þegar hún
var 13 ára. Hún vissi þá þegar að
hana langaði til að verða fyrirsæta.
„Þegar ég var 16 ára fór ég til Par-
ísar og tók þátt í tískusýningu fyrir
Saint Laurent. Þá virkilega hófst
ferillinn,“ segir hún. „Þetta gerðist
Adut Akech
er fyrirsæta
ársins 2019
Það var mikið um dýrðir á The Fash
ion Awards sem fram fór í Royal Al
bert Hall í London á mánudagskvöld.
Þar voru stór nöfn í heimi tískunnar
verðlaunuð og Giorgio Armani var
sérstaklega heiðraður fyrir störf sín.
Adut Akech var í
grænum síðum
kjól með slaufu
frá Valentino
þegar hún tók
á móti viður-
kenningu sem
fyrirsæta ársins.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Adut Akech á sýningu Versace á tískuviku í Mílanó.
Fyrirsætan Adut Akech og Stella
McCartney á galahátíðinni Global
Voices í Oxfordshire á Englandi.
Adut Akech er glæsileg þegar hún
sýnir sumartísku 2020 fyrir Haider
Ackermann á tískuvikunni í París.
Adut á leið á Versace-tískusýningu fyrir 2020 í Mílanó.
allt mjög hratt. Ég hef lagt hart að
mér til að láta drauma mína rætast
og vil vera góð fyrirmynd,“ segir
hún. Adut hefur starfað með Sam-
einuðu þjóðunum til stuðnings
flóttamönnum. Hún segir að það
sé ekki val að vera flóttamaður.
„Ég vil sýna heiminum að við
erum eins og annað fólk.“ Adut
var forsíðustúlka breska Vogue í
ágúst síðastliðnum en þar fjallaði
hún líka um stöðu flóttafólks í
heiminum.
Það voru fleiri verðlaunaðir á
tískuhátíðinni í London. Hönnuð-
ur ársins var Daniel Lee og merki
ársins Bottega Veneta. Það var þó
Rihanna sem var stjarna kvöldsins
þegar hún mætti í glæsilegum kjól
frá Fenty á rauða dregilinn ásamt
tónlistarmanninum ASAP Rocky.
Giorgio Armani var sérstaklega
heiðraður fyrir starf sitt sem
hönnuður en það voru engar aðrar
en Julia Roberts og Cate Blanchett
sem kynntu honum þann heiður.
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS
SMART JÓLAFÖT, FYRIR SMART KONUR
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R