Fréttablaðið - 05.12.2019, Page 31
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Þetta kemur fram í útdrætti úr bókinni The Other Side of the Coin: The Queen, the Dresser
and the Wardrobe eftir Angelu
Kelley, sem hefur séð um klæðnað
drottningarinnar frá árinu 2002.
Útdrátturinn var birtur í tíma-
ritinu Good Housekeeping fyrir
skömmu.
Kelley segir að drottningin
skipti um föt nokkrum sinnum
á dag, allt að fimm til sjö sinnum
þegar mest lætur. Hún segir
reyndar að það sé sjaldgæft að það
séu sjö útgáfur af alklæðnaði á
einum degi, en það fari eftir dag-
skrá og veðri.
Dagurinn hefst með morgun-
verði og þá er drottningin yfirleitt
klædd í einfalda blússu og pils
eða dagkjól. Eftir það fara svo
einkaáheyrnir fram. Ef konungleg
skotveiði fer fram skiptir hún í
klæðnað númer tvö.
„Sá klæðnaður á að vera hlýr og
þægilegur og byggir á því að nota
mörg lög,“ segir Kelley. „Drottning-
in klæðist buxum, vatnsheldum
buxum, langermabol, tveimur
peysum, þykkum sokkum og
Wellington-stígvélum. Síðast en
ekki síst fer hún í hanska, trefil og
vatnshelda kápu.“
Eftir að hafa heilsað upp á veiði-
mennina fer drottningin aftur á
heimili sitt, Sandringham House,
og skiptir í þriðja klæðnað dagsins.
Það er aftur skyrta og blússa eða
kjóll ef hún ætlar að drekka te með
gestum seinnipartinn.
Kvöldið vandlega skipulagt
„Seinnipartinn sendi ég henni
skissur af kvöldkjólum svo
drottningin geti valið í hverju hún
vill vera það kvöldið og einstaka
sinnum þarf hún að velja kjól fyrir
kokteilboð,“ segir Kelley.
Eftir að drottningin hefur valið
kjól fyrir kvöldið fá aðstoðar-
konur hennar upplýsingar um
hvað hún valdi svo þær geti valið
viðeigandi kjóla fyrir konurnar
sem þær eru að sinna.
Kelley segir að drottningin velji
yfirleitt ekkert mjög glitrandi
fyrir móttöku með starfsfólki set-
ursins, en ef um formlegri kvöld-
verð er að ræða velur hún oftast
gólfsíðan kvöldkjól. Stundum
skiptir hún svo aftur um föt fyrir
mat.
Ef móttakan fyrir kvöldmat
endist til um hálf átta og drottn-
ingunni finnst það þægilegt er
hún í kokteilkjólnum áfram og
hefur ekki áhyggjur af því að
skipta yfir í kvöldkjól. Ef hún vill
hins vegar skipta fyrir matinn
velur hún síðan kvöldkjól. Það að
klæða sig sérstaklega fyrir kvöld-
verðinn er hefð sem móðir hennar
viðhélt eftir andlát Georgs V og
drottningin hefur fylgt hennar
fordæmi.
„Það er hér sem fallegu skart-
gripirnir hennar hátignar birtast,“
segir Kelley.
Drottningin fer líka alltaf í
messu á hverju ári með fjölskyldu
sinni og klæðnaðurinn fyrir þá
kirkjuferð er vandlega skipu-
lagður með löngum fyrirvara.
„Ég byrja að leggja á ráðin um
það bil tveimur mánuðum fyrr,“
segir Kelley. „Ég athuga hvaða
litum drottningin hefur verið í
síðustu ár því ég vil ekki endur-
taka sama litinn í nokkur ár. Ég
vil líka sjá til þess að hún sé í
hátíðlegum lit svo að velunnarar
hennar sjái hana auðveldlega.“
Sjö dress á
einum degi
Elísabet Bretadrottning verður seint
þekkt fyrir að vera nýtin eða spar-
söm. Henni dugar ekkert minna en
fimm til sjö mismunandi útgáfur af
alklæðnaði til að komast í gegnum
embættisstörf jóladags.
Hér er Elísabet
Bretadrottning
afslöppuð,
nýbúin að taka
upp jólaávarp
sitt. NORDIC
PHOTOS/GETTY
Drottningin var í rauðu og gráu í jólamessu árið 2008.
Angela Kelley valdi bláan lit fyrir kirkjuferð drottningarinnar árið 2012.
Frúin tók sig vel út í lillabláu á jóladag árið 2014.
HEILSA
Laugardaginn 28. desember mun sérblaðið Heilsa fylgja Fréttablaðinu.
Fjallað er um allt sem viðkemur bættri heilsu.
Í blaðinu verða áhugaverð viðtöl og fróðleiksmolar sem unnið er af blaðamönnum Fréttablaðsins.
Boðið er upp á auglýsingapláss í blaðinu af öllum stærðum og gerðum.
Einnig er hægt að fá kynningarumfjöllun sem unnin er af blaðamanni Fréttablaðsins.
Pantanir og skil á auglýsingum er til og með 27. desember.
Kynningarumfjallanir þarf að panta í síðasta lagi miðvikudaginn 18. desember.
Áhugasamir auglýsendur hafi samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson
Sími 550 5654
jonivar@frettabladid.is
Arnar Magnússon
Sími 550 5652
arnarm@frettabladid.is
Atli Bergmann
Sími 550 5657
atlib@frettabladid.is
Ruth Bergsdóttir
Sími 694 4103
ruth@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R