Fréttablaðið - 05.12.2019, Page 47
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
hvar@frettabladid.is
5. DESEMBER 2019
Orðsins list
Hvað? Er í lagi að múta í útlöndum?
Hvenær? 12.00-13.00
Hvar? Lögberg, stofa 101 HÍ
Félag stjórnmálafræðinga heldur
fund um spillingu, ábyrgð og
afleiðingar.
Hvað? Kynjuð hagstjórn og öldrun
Hvenær? 12.00-13.00
Hvar? Þjóðminjasafn Íslands, fyrir-
lestrasalur
Guðlaug Einarsdóttir og Unnur
Ágústsdóttir, sérfræðingar í heil-
brigðisráðuneytinu, f lytja fyrir-
lestur á vegum RIKK.
Hvað? Útgáfuhóf: Languages Open
up Worlds – Words for Vigdís
Hvenær? 16.30
Hvar? Veröld, hús Vigdísar
Boðið er upp á léttar veitingar.
Hvað? Veröld í vanda
Hvenær? 17.00
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg
Ari Trausti Guðmundsson ræðir
við Steinunni Sigurðardóttur um
nýja ljóðabók hennar, Dimmumót,
verk þeirra beggja og hugmyndir.
Tónlist
Hvað? Jólatónleikar til styrktar
Kvennadeild Landspítalans
Hvenær? 12.00-12.50
Hvar? Fríkirkjan, Reykjavík
Safnað fyrir vöggum á fæðingar-
vakt og sængurlegu deild. Jólaperl-
ur, bæði íslenskar og erlendar. Um
50 flytjendur sem allir gefa vinnu
sína. Miðaverð er 2.500 krónur.
Hvað? Mandarínujól
Hvenær? 20.00
Hvar? Víðistaðakirkja
Kvennakór Hafnarfjarðar heldur
tónleika sem einkennast af hátíð-
arstemningu og gleði í aðdraganda
jólanna.
Hvað? Jólagleði kóranna
Hvenær? 20.00
Hvar? Tónberg Akranesi
Grundartangakórinn, Kvennakór-
inn Ymur, Karlakórinn Svanir og
Kór Saurbæjarprestakalls syngja.
Kaffi og smákökur í hléi.
Hvað? Útgáfutónleikar
Hvenær? 21.00
Hvar? Hressingarskálinn
Markús fagnar útgáfu ásamt Ástu.
1.500 krónur inn.
Hvað? Hljómsveitin Gunk
Hvenær? 21.15-23.30
Hvar? Hard Rock Café
Gunk var stofnuð haustið 1969.
Hún leikur aðallega frumsamin
rokklög af gamla skólanum eftir
söngvarann Árna Sigurðsson.
Aðrir viðburðir
Hvað? Útgáfupartí
Hvenær? 17.00-20.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu
Útgáfu bókarinnar A Sense of
Place – Imprints of Iceland eftir
Charlottu Hauksdóttur fagnað.
Hún inniheldur ljósmyndaverk af
íslensku landslagi.
Kvennakór Hafnarfjarðar er með jólatónleika í Víðistaðakirkju.
Jón Ólafsson prófessor verður í
panel á hádegisfundi í Lögbergi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Tregasteinn Arnaldar Indriða-sonar er í fyrsta sæti á met-sölulista Eymundsson, dag-
ana 27. nóvember til 3. desember.
Í öðru sæti er Þögn Yrsu Sigurðar-
dóttur. Í þriðja sæti er Um tímann
og vatnið eftir Andra Snæ Magna-
son. Af einhverjum ástæðum var sú
bók ekki tilnefnd til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna og mörgum
þykir það undarlegt, ef ekki bein-
línis óskiljanlegt. Í fjórða sæti er
Hvítidauði eftir Ragnar Jónasson og
því fimmta Þinn eigin tölvuleikur
eftir Ævar Þór Benediktsson. Orri
óstöðvandi – Hefnd glæponanna
eftir Bjarna Fritzson er í því sjötta.
Arnaldur er einnig í efsta sæti á
bóksölulistanum dagana 25. nóv-
ember til 1. desember. Í öðru sæti
eru Leikskólalögin okkar og í því
þriðja Þögn Yrsu Sigurðardóttur.
Orri óstöðvandi – Hefnd glæpon-
anna eftir Bjarna Fritzson er í því
fjórða og Þinn eigin tölvuleikur
eftir Ævar Þór Benediktsson er í
því fimmta. Um tímann og vatnið
eftir Andra Snæ Magnason er í því
sjötta. – kb
Arnaldur traustur á toppnum
Ekkert lát er á vinsældum Arnaldar Indriðasonar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
ARNALDUR ER EINNIG Í
EFSTA SÆTI Á BÓKSÖLULIST-
ANUM DAGANA 25. NÓVEMBER
TIL 1. DESEMBER.
– við Laugalæk
Jólasteikin
Sænsk jó
laskinka
Léttsöltu
ð – 50% s
jávarsalt
1.790 kr./k
g
HamborgarhryggurLéttsaltaður – 50% sjávarsalt1.990 kr./kg
Léttsöltuð
jólasæla með
vottuðu
sjávarsalti.
Engin kolvetni
og því sérlega
ketó-vænt.
Tökum á móti
pöntunum til
13. desember.
5 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R32 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð