Fréttablaðið - 05.12.2019, Side 51
Í dag verður kynnt ný lína frá 66°Norður þar sem sjálfbærni og endurnýting er höfð að leiðarljósi, en hún hefur einnig sögulegar skírskotanir. Hún er unnin úr
íslenskri sauðargæru og er fram
leidd algjörlega á Íslandi. Fyrir
tækið reynir sífellt að finna nýjar
og öðruvísi leiðir til að hámarka
nýtingu þeirra hráefna sem notuð
eru.
Framleiddur á stríðsárunum
„Línan er sniðin í kringum jakk
ann Sölvhól, en hann á sér langa
sögu hjá Sjóklæðagerðinni,“ segir
Sæunn Huld Þórðardóttir, hönn
uður hjá fyrirtækinu.
Hún segir jakkann líklega hafa
verið framleiddan fyrst í kringum
stríðsárin, en fyrirtækið hefur
sökkt sér niður í sögu jakkans og
leitað heimilda víða, þá mest í
myndum og frásögnum.
„Við erum ekki með nákvæma
dagsetningu á því hvenær hann
var fyrst framleiddur. Það voru
náttúrulega mörg fyrirtæki og
vörumerki sem framleiddu undir
nafni Sjóklæðagerðarinnar. Það
var til dæmis fyrirtæki sem heitir
Vír og gerði vinnufatnað og annað
sem hét Max. Okkur þykir líklegt
að Sölvhóll hafi fyrst verið gerður
fyrir hafnarverkamenn. Þá var
þetta vaxborinn klútur með gæru
skinni innan í. Skinnið entist svo
vel að menn komu aftur með það
í 66°Norður og létu sauma nýja
jakka yfir,“ segir
Sæunn.
Þakka sögunni
Eftir að farið var
að g ren n sl a st
f y r ir um sög u
Sölvhóls, þykir
líklegt að hann
hafi verið fram
leiddur fyrir her
inn á einhverjum
tímapunkti, þó
að það sé ekki
staðfest. Þykir
hönnun hans
u m m a r g t
minna á jakka
s em her i n n
n o t a ð i o g
s t y ð s t þ a ð
við þá kenn
ingu að fram
leiðslan hafi
hafist um það
leyti.
„Allt til árs
ins 1990 var
verið að taka
við þessum jökkum
og gera við þá. Við
höfum gert aðra
útgáfu af þessum
jakka undir heitinu
Arnarhóll í langan
tíma, en hann er
66°Norður
leitar til fortíðar
Fatamerkið 66°Norður kynnir í dag nýja línu en í
henni er sjálfbærni og endurnýting í forgrunni. Hún
var unnin sérstaklega í kringum jakkann Sölvhól,
sem kom fyrst á sjónarsviðið fyrir meira en hálfri öld.
Sæunn Huld Þórðardóttir starfar sem hönnuður hjá 66°Norður. MYND/BENJAMIN HARDMAN
Í Sölvhóls-káp-
una var gæran
nýtt í kraga og
beltið kemur
frá framleiðslu
á sjómanns-
fatnaði.
Sæunn segir að ákveðið hafi verið
að gera mittistöskur til að nýta
ullina til fulls.
Jakkinn Sölvhóll
er ætlaður báðum
kynjum og fæst í
tveimur litum.
Innra lagið á
Sölvhóli er úr
lambsskinni,
en hægt er
að nota það
sem sér
jakka eins
og sést hér.
ekki fóðraður með
ekta gær usk inni
eins og Sölvhóll.
66°Norður er
með þessar i
línu að vinna
með arf leifð
sína og að
þa k k a sög
unni, ef svo
má að orði
komast. Þetta
fyrirtæki á sér
svo ótrúlega ríka
sögu. Þessu gerðum
við okkur enn frekar
g rein f y r ir þegar v ið
fórum að skoða gamlar myndir og
gamlar f líkur. Íslendingar þekkja
merkið svo vel, afi þinn eða langafi
átti kannski þennan gæruskinns
jakka,“ segir Sæunn.
Allt nýtt til hins ýtrasta
Fatamerkið hafi orðið sér úti um
gamla jakkann og í kjölfarið farið
að stúdera hvernig hægt væri að
betrumbæta hann.
„Við skoðuðum uppbygginguna
á þeim og fórum að velja í hann
nútímaefni. Svo fengum við eina
helstu gæruskinnsverkunarkonu
landsins í lið með okkur. Sunneva
hefur verið að vinna með mokka
f líkur í alveg fjöldamörg ár og er
með algjöra sérfræðiþekkingu.
Hún handvaldi allar gærurnar
sem eru notaðar. Það er líka svo
frábært að nota íslensku gæruna
af því hún er svo vistvæn, hún er
aukaafurð af matarframleiðslu.
Það er verið að nýta allt til hins
ýtrasta, eins og var gert í gamla
daga.“
Þau hjá 66°Norður hafi tekið
eftir því að það var ytra byrði eldri
útgáfu jakkans sem trosnaði fyrst.
„Pálína sem er hérna yfir sauma
stofunni mundi sjálf eftir að hafa
gert við þá. Hún sagði: „Nei, er
þessi kominn aftur! Setjið nú eitt
hvað almennilegt í ytra byrðið.“
Við erum með ofið ullarefni líka,
en það er í þremur lögum eins og
tæknijakkarnir okkar. Þetta er allt
framleitt hér. Það er mikið lagt í
það að heiðra þennan jakka,“ segir
Sæunn. steingerdur@frettabladid.is
66°Norður á sé langa
sögu. Fyrirtækið var
stofnað árið 1926 á Suður-
eyri, þá undir nafninu Sjó-
klæðagerðin. Nafnið kom
til vegna þess að Suður-
eyri er við Súgandafjörð,
sem stendur á breiddar-
gráðu 66°N. Upphaflegur
tilgangur fyrirtækisins var
að búa til betri fatnað fyrir
sjómenn.
5 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ