Fréttablaðið - 05.12.2019, Side 53

Fréttablaðið - 05.12.2019, Side 53
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is KANNSKI HVERFUR HANN BARA NÚNA, GUFAR UPP. BIRTIST JAFNVEL AÐ ÓVÖRUM Á EUROVISION- SVIÐINU EFTIR ÖNNUR TÍU ÁR. ÉG ER Í RAUN AÐ GEFA ÞAÐ ÚT NÚNA FYRST AÐ TÍMI PRINSINS SÉ LIÐINN. kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol la k aff itá R f rá bý li í b ol la ka ff itá r f rá býli í boll a hátíðí bæ Svavar Eysteinsson hefur síðasta áratug skemmt la nd smön nu m u nd i r listamannsnafninu Prins Póló. Í tilefni af því gefur hann nú út bókina Falskar minningar, sem fjallar um tíu ára feril hans hátignar. Með bókinni fylgir svo stafræn plata með „skástu lögum Prinsins“, að eigin sögn. En nú eru blikur á lofti. Langaði að gera froðupopp Það var fyrir tíu árum sem Svavar gekk um götur Seyðisfjarðar og hug- myndin að nafninu kom til hans. Hvað er það sem Íslendingar elska mest? Prins póló. Og þar með var það komið. „Það eru tíu ár síðan alteregóið Prins Póló fæddist í hausnum á mér. Mig langaði til þess að gera eftirlíkingu af þeirri tónlist sem ég ólst upp við sem krakki. Íslensk dægurlög. Mig langaði að prófa að gera froðupopp. Ég ákvað náttúru- lega að nefna þetta Prins Póló vegna þess að það er eitthvað sem allir Íslendingar elska, og spilar til undir- meðvitundarinnar,“ segir Svavar. Stefndi alltaf á Eurovision Svavar rekur áhuga sinn á tónlist- argerð til þrettán ára aldurs þegar Ísland hóf þátttöku í Eurovision. „Ég sá Gleðibankann og f leira. Þá hugsaði ég að þetta væri algjör- lega eitthvað til að stefna að. Hug- myndin var alltaf sú að vera með Prinsinn í gangi í einhver ár og taka svo þátt í Eurovision, og gjörsamlega slátra honum þar. Fórna honum á altari listarinn- ar.“ Hann segist þó enn sem komið er ekki hafa haft það í sér að semja Eurovision-lag eða að sækja um. „Svo hefur líka enginn beðið mig um það,“ segir Prins Póló og heldur svo áfram: „En nú er þetta orðið of seint finnst mér. Tíu árin eru liðin. Kannski hverfur hann bara núna, gufar upp. Birstist jafnvel að óvörum á Eurovision-sviðinu eftir önnur tíu ár. Ég er í raun að gefa það út núna fyrst tími Prinsins er liðinn,“ segir Svavar. Prinsinn leggur kórónuna á hilluna Það var fyrir áratug sem Prins Póló fæddist á haustdegi á Seyðis- firði í hausnum á Svavari. Af því tilefni hefur hann gefið út bókina Falskar minningar, sem er nokkurs konar yfirlit yfir feril Prinsins. Nýr prins? Svavar segir að það sé aldrei að vita nema hann rísi upp aftur, þá í öðru formi, hann sé ekki að gefa tónlist- ina upp á bátinn. „Ég verð bara að taka ákvörðun um þetta, það er alveg eins gott að gera það hér. Maður getur ekki gert eitthvað svona endalaust. Svo getur einhver annar mögulega tekið við krúnunni. Mér finnst það mjög spennandi pæling. Eins og þegar Sálin hans Jóns míns hætti, mér fannst það dálítið sorglegt. Þeir hefðu alveg getað fengið einhverja aðra til að taka við sem hefðu haldið áfram að vera Sálin hans Jóns míns. Ég get alveg látið kórónuna ganga, því minn tími sem prins er liðinn í bili,“ segir Svavar. Það má því kalla bókina nokkurs konar kveðjugjöf Svavars sem Prins Póló. „Ég er búinn að taka þetta saman. Þetta eru myndir, textar og skissur meðal annars. Ég hef hannað allt sjálfur fyrir Prins Póló frá upphafi, þannig að ég átti þetta allt til.“ Svanasöngur Prinsins Þegar litið er yfir farinn veg segir Svavar Póllandsför hafa staðið upp úr. „Mér fannst það mjög skemmti- legt, að geta farið með Prins Póló til Póllands. Það var geggjuð upp- lifun. Það var svo gaman að geta farið með íslenskan Prins Póló út. Ég vissi ekkert hvernig þessu yrði tekið, hvort þeim þætti þetta skrýtið. Við spiluðum fyrir ungt fólk og á elliheimili, við spiluðum fyrir alveg helling af fólki við alveg ótrúlega góðar viðtökur. Það stendur upp úr.“ Fólk á enn möguleika á að sjá Svavar stíga á svið í síðasta sinn sem hinn upprunalega Prins Póló. „Síðustu bókuðu tónleikarnir eru 14. desember í Gamla bíói. Prinsinn kveður þá, viðeigandi svona yfir hátíðirnar,“ segir hann. Fólk getur nýtt tækifærið og kvatt prinsinn í kvöld í útgáfuhófi Falskra minninga á Röntgen, Hverfisgötu 12, klukkan 20. Hægt er að nálgast miða á tónleikana í Gamla bíói á tix.is. steingerdur@frettabladid.is „Á fögrum haustdegi austur á Seyðisfirði röltir ungur maður út í sjoppu í leit að hress- ingu. Hann á sér draum um að verða tónlistarmaður en vantar listamannsnafn. Hvað er það sem allir Íslendingar elska skilyrðislaust? Hann kaupir sér Prins póló og fer heim að semja lög.“ 5 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.