Fréttablaðið - 18.12.2019, Side 38
Það eru til margar gerðir af lárperum, það er að segja, þær eru til í nokkrum litum
og gerðum. Sagt er að lárpera inni-
haldi 20 ólík vítamín og steinefni.
Þar má til dæmis nefna K-vítamín,
A-, C-, B5-, B6- og E-. Einnig má
finna í þeim magn esíum, sink,
járn og fleira. Það er hægt að nota
lárperu í ýmislegt við matargerð
og fólk ætti í rauninni að hafa hana
oftar í matinn. Hér koma nokkrar
hugmyndir að réttum með lár-
peru.
Brauð með eggi
og lárperu
Þetta er mjög einfaldur réttur
sem passar vel að morgni eða í
hádeginu. Uppskriftin miðast við
einn.
1 egg
½ lárpera
Safi úr einum sítrónubát
Salt og pipar
1 sneið gróft brauð
1 msk. ferskar kryddjurtir
Sjóðið vatn í potti. Setjið eggið
í sjóðandi vatnið og sjóðið í 6-8
mínútur fyrir linsoðið egg en 8-10
mínútur fyrir harðsoðið. Kælið
undir rennandi köldu vatni.
Skerið lárperuna í tvennt og takið
steininn úr. Takið kjötið úr hálfri
lárperu og maukið það með gaffli.
Bragðbætið með sítrónusafa, salti
og pipar.
Smyrjið brauðið með lárperu-
maukinu og leggið eggið ofan á.
Skreytið með ferskum krydd-
jurtum.
Lárpera er talin ofurfæða
Lárpera eða avocado er einn eftirsóttasti ávöxtur í heimi enda er hann talinn ofurfæða sem er stútfull
af vítamínum, góðri fitu og kalíum. Lárperan er mikið notuð í mexíkóskan mat, sérstaklega guacamole.
Gróft brauð með lárperumauki og linsoðnu eggi er
fínasti hádegisverður.
Gróft brauð
með lárperu-
mauki, kotasælu,
reyktum laxi og
linsoðnu eggi.
Flottur réttur í
hádeginu og ein-
falt að útbúa.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Hrökkbrauð með niðurskorinni lárperu og osti.
Diskur með túnfiski, tómötum, papriku, lárperu, rauð-
lauk, gúrku og linsoðnu eggi.
Kalt pastasalat með lárperu, tómötum, salati og fleiru.
Guacamole og
nasl.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Salat með lárperu
Það er mjög gott að útbúa ferskt
salat með lárperubitum, kjúklingi
eða túnfiski, eggjum, tómötum,
agúrku og ólífum eða öðru því
sem til er í ísskápnum. Einnig er
gott að gera kalt pastasalat. Hér er
uppskrift.
Guacamole
Guacamole er mjög gott með
taco, tortillum eða nasli en einn-
ig í mexíkóska kjúklingasúpu. Í
þessari uppskrift er hvítlaukur en
hann er ekki alltaf hafður með.
2 vel þroskaðar lárperur
2 tómatar, fjarlægið innan úr
þeim fræin og skerið smátt
1-2 pressuð hvítlauksrif
1 chili-pipar, fræhreinsaður, mjög
smátt skorinn
½ rauðlaukur, smátt skorinn
Ferskt kóríander, smátt skorið
Safi úr einni límónu
Salt og pipar
Skerið lárperur í tvennt og fjar-
lægið steininn. Takið kjötið úr með
skeið og maukið. Bætið við smátt
skornum tómötum, lauk og hvít-
lauk. Blandið allt vel saman með
gaffli og bætið síðan chili-pipar við
blönduna. Ef þú vilt ekki hafa þetta
of sterkt má minnka skammtinn.
Loks er kóríander og límónusafa
bætt við. Í lokin er maukið bragð-
bætt með salti og pipar.
Best er að bera maukið strax á borð.
Pastasalat með tómat,
lárperu og mozzarella
500 g pasta
250 g kirsuberjatómatar
2 lárperur
150 g mozzarella ostur
Ferskt basil
Salat
Salt og pipar
Dressing
6 msk. ólífuolía
2 msk. balsam
Salt og pipar
Gott er að setja líka chilli-pipar,
hvítlauk og óreganó eftir smekk í
dressinguna.
Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum.
Sigtið og skolið með köldu vatni.
Hrærið saman því sem á að
fara í dressinguna og hellið yfir
pastað.
Setjið pasta í skál ásamt smá
fersku salati, niðurskornum tóm-
ötum og mozzarellakúlum. Setjið
ferskt basil saman við. Bragð-
bætið salatið með salti og pipar.
ÞEIR ERU LOKSINS KOMNIR!
VINSÆLU KULDASKÓRNIR MEÐ
MANNBRODDUMNUM
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . D E S E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R