Skessuhorn - 20.03.2019, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 201910
Rauði krossinn á Akranesi og Hval-
fjarðarsveit hélt aðalfund sinn 18.
febrúar síðastliðinn. Á fundinum
var Ursula Árnadóttir kosin for-
maður en Alda Vilhjálmsdóttir,
sem gegnt hefur formennsku um
áraraðir, gaf ekki kost á sér til end-
urkjörs.
Tilgangur Rauða krossins er að
vernda líf og heilsu og tryggja virð-
ingu fyrir mannlegu lífi, vinna að
gagnkvæmum skilningi, vináttu og
samstarfi meðal manna. Hreyfingin
gerir engan mun á milli manna eftir
þjóðerni, uppruna, trúarbrögðum,
kyni, stétt eða stjórnmálaskoðun-
um.
Á Akranesi er unnið ötullega að
markmiðum hreyfingarinnar og þar
starfa nokkrir hópar í þeim tilgangi,
t.d. heimsóknarvinir, prjónahópur,
barnahópur, skvísuhópur fyrir kon-
ur úr hópi nýbúa, matarhópur þar
sem framandi menning og matur
er kynntur. Auk þess býður deild-
in uppá námskeið í skyndihjálp og
er eitt slíkt ráðgert 1. apríl nk. og
skráning stendur yfir. Í vor verð-
ur boðið uppá námskeiðið Börn
og umhverfi. Til fjáröflunar hefur
deildin haft til sölu lopapeysur og
ýmislegt fleira. Ef einhverjir eiga
lopapeysur sem viðkomandi vill
gefa til góðs málefnis, þá má gjarn-
an koma með þær til okkar, jafn-
vel hálfkláraðar peysur. Félagið er
með starfsemi sína í eign húsnæði
að Skólabraut 25a á Akranesi og þar
er opið frá kl. 10 – 14 mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga. Nýir og
gamlir félagar eru hjartanlega vel-
komnir. -fréttatilkynning
Formannsskipti hjá RKÍ á Akranesi og Hvalfjarðarsveit
Alda Vilhjálmsdóttir og Ursula Árnadóttir, nýr formaður RKÍ deildarinnar á Akranesi.
Það var létt og skemmtileg stemn-
ing í árlegri keppni Bridgefélags
Borgarfjarðar í einmenningi,
sem spiluð var á mánudagskvöld.
Spilað var á sjö borðum og með-
al þátttakenda voru ungir spilarar
sem í vetur hafa tekið þátt í ung-
liðabridds, kennslu undir leið-
sögn Ingimundar Jónssonar. Jafnt
var í efstu sætum á mótinu utan
þess sem forysta Magnúsar Magn-
ússonar, skipasmiðs frá Akranesi,
var býsna afgerandi allt mótið.
Fór svo að hann bar sigur úr být-
um með 60,4% skori. Jafnir í öðru
og þriðja sæti með 54,5% voru
Einar Guðmundsson á Akranesi
og Egill Kristinsson í Örnólfsdal.
Fjórði var Ágúst Þorsteinsson frá
Hömrum og Baldur Björnsson á
Múlastöðum í fimmta sæti. Helga
Jónsdóttir frá Kópareykjum varð í
sjötta sæti en hún er ein af nýlið-
unum sem stundað hefur ungliða-
bridds í vetur og var hún að spila
á sínu fyrsta móti. mm
Borgfirðingar gestrisnir í
einmenningnum
Sigurvegarar í einmenningi BB. F.v. Einar Guðmundsson, Egill Kristinsson, Magnús
Magnússon og þær Helga Jónsdóttir og Anna Heiða Baldursdóttir, sem urðu efstar
af konunum.
Héraðsþing Héraðssambands Snæ-
fellsness og Hnappadalssýslu var
haldið í Stykkishólmi á fimmtu-
dag. Þar voru meðal annars veitt-
ar viðurkenningar fyrir starf í
þágu íþróttahreyfingarinnar. Það
voru þau Ríkharður Hrafnkelsson,
Gunnar Svanlaugsson, María Alma
Valdimarsdóttir og Davíð Sveins-
son sem voru heiðruð fyrir sitt
framlag. Jóhann Steinar Ingimund-
arson, stjórnarmaður UMFÍ, af-
henti starfsmerki UMFÍ og Garð-
ar Svansson, stjórnarmaður ÍSÍ, af-
henti viðurkenningar fyrir hönd
sambandsins.
Ríkharður var sæmdur gull-
merki ÍSÍ. Hann varð árið 1984
fyrsti formaður Golfklúbbsins
Mostra í Stykkishólmi og gegndi
formennsku til 2009, en hann var
auk þess forsvarsmaður að stofn-
un klúbbsins. Þá hefur hann starf-
að fyrir körfuknattleikssambandið
og setið þar í mótanefnd til nokk-
urra ára. Ríkharður fékk gullmerki
KKÍ 1991, gullmerki GSÍ 2004 og
silfurmerki ÍSÍ 2003. „Hann hefur
starfað vel fyrir íþróttahreyfinguna
og starfar ennþá. Hann er í vallar-
nefnd Mostra auk annarra verkefna
fyrir Héraðssambandið og aðrar
íþróttagreinar,“ segir á Facebook-
síðu HSH.
Gunnar Svanlaugsson var einn-
ig sæmdur gullmerki ÍSÍ. Hann er
núverandi formaður kkd. Snæfells
og hefur verið virkur í starfi félags-
ins alla tíð. Hefur hann í gegnum
tíðina keppt og þjálfað í flestum
íþróttagreinum sem stundaðar eru
hjá Snæfelli, að því er fram kemur
á síðu HSH.
María Alma Valdimarsdóttir
var sæmd silfurmerki ÍSÍ fyrir sitt
framlag til íþróttahreyfingarinnar.
Hún hefur setið í aðalstjórn Snæ-
fells óslitið frá því árið 1993, fyrst
sem ritari en sem gjaldkeri frá
1997. Hún var í stjórn sunddeildar
og keppti lengi í sundi og blaki fyrir
Snæfell. Þá annaðist hún sundþjálf-
un félagsins um langt skeið.
Davíð Sveinsson var sæmdur
starfsmerki UMFÍ. Hann hefur
lengi setið í stjórn Snæfells, var for-
maður frá 1989-1990 og hefur set-
ið í stjórnum flestra deilda félagsins
undanfarin 40 ár og er enn gjald-
keri körfuknattleiksdeildarinnar.
Áður keppti hann lengi í körfubolta
og fótbolta fyrir Snæfell og hef-
ur lagt sitt af mörkum í þjálfun og
dómgæslu fyrir félagið. kgk
Snæfellingar heiðraðir á héraðsþingi HSH
Gunnar Svanlaugsson, Davíð Sveinsson, María Alma Valdimarsdóttir og Rík-
harður Hrafnkelsson. Ljósm. HSH.
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir ósk-
aði eftir lausn frá störfum sem
kjörinn aðalfulltrúi í sveitarstjórn
Borgarbyggðar í lok febrúar síðast-
liðins vegna flutninga. Beiðnin var
tekin fyrir á fundi sveitarstjórnar á
fimmtudaginn, 14. mars, og sam-
þykkt. Að fundi loknum tók Sigríð-
ur til máls þar sem hún fór yfir tím-
ann sinn í Borgarbyggð, þakkaði
öllum sem hún hefur starfað með
á vettvangi sveitarstjórnarmála fyr-
ir gott samstarf og óskaði þeim sem
eftir sitja í sveitarstjórn velgengni í
að gera Borgarbyggð enn betri. „Ég
er að flytja á Ísafjörð þar sem ég á
mann. Ég er svo heppin að starfa
sem sviðsstjóri skógræktarauð-
lindasviðs Skógræktarinnar. Það er
starf án staðsetningar og ég get því
tekið vinnuna með mér,“ segir Sig-
ríður í samtali við Skessuhorn.
Sigríður hefur unnið fyrir VG í
Borgarbyggð frá árinu 2002 og seg-
ir starf sitt fyrir flokkinn hafa ver-
ið mjög ánægjulegt. „Ég vann lengi
vel bara að svona almennum félags-
málum en í kosningunum árið 2014
var ég svo með á lista og var vara-
maður í sveitarstjórn fram að ára-
mótum 2017-2018. Þá tók ég sæti í
sveitarstjórn í stað Ragnars Franks
Kristjánssonar. Í kosningunum síð-
asta vor skipaði ég annað sæti á lista
VG og náði kjöri,“ segir Sigríður.
Nú þegar hún svo hverfur á braut
kemur í hennar stað Guðmund-
ur Freyr Kristbergsson á Háafelli
í Hvítársíðu. „Við erum heppin að
fá þennan fína geitabónda inn og
Guðmundur á eftir að standa sig
vel. Ég er mjög þakklát fyrir þann
tíma sem ég hef fengið í þessu emb-
ætti. Það hefur verið lærdómsríkt
og er eitthvað sem maður býr alltaf
að,“ segir Sigríður að endingu.
arg
Sigríður Júlía hættir
í sveitarstjórn
Sigríður Júlía hættir í sveitarstjórn.
Ljósm. úr safni
Keilir, nýjasta skip Olíudreifing-
ar, kom í fyrsta skipti til hafnar í
Ólafsvík í síðustu viku. Keilir kom
til landsins 13. febrúar síðastlið-
inn frá Tyrklandi þar sem skipið var
smíðað. Keilir er 49 metra langur,
búinn átta farmgeymum og getur
flutt allar tegundir af eldsneyti sem
í boði eru hérlendis. Dælugeta þess
er þrefalt meiri en Laugarnessins,
hins 40 ára gamla elsneytisflutn-
ingaskips sem Keilir hefur nú leyst
af hólmi.
þa
Nýtt olíuflutninga-
skip á ferðinni