Skessuhorn - 20.03.2019, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 11
• Auglýst er laust til umsóknar starf aðstoðarhafnarstjóra Faxaflóahafna sf.,
sem er staðgengill hafnarstjóra.
Í starfinu felst m.a.:
• Áætlanagerð, forsendur hönnunar mannvirkja, eftirlit og umsjón með ástandi
hafnarmannvirkja, siglingaleiðum og dýpi.
• Undirbúningur lóða- og landgerðar.
• Stjórn og eftirlit með gæðamálum framkvæmda.
• Önnur þau störf, sem viðkomandi kunna að vera falin og falla innan eðlilegs
starfsviðs aðstoðarhafnarstjóra.
Leitað er eftir starfsmanni sem hefur eftirfarandi til að bera:
• Háskólamenntun í verkfræði sem nýtist í starfi.
• Reynslu af mannvirkjagerð.
• Skipulagshæfni og reynslu af áætlanagerð.
• Færni í samskiptum við fólk og fyrirtæki.
• Góða kunnáttu og færni í ensku.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Umsóknarfrestur er til og með miðvikudagsins 17. apríl n.k.
Umsókn og ferilskrá með nöfnum umsagnaraðila skal skilað til Faxaflóahafna sf., Tryggvagötu 17, Reykjavík
eða þær sendar mannauðs- og launafulltrúa Faxaflóahafna sf. á netfangið olafur@faxafloahafnir.is.
Nánari upplýsingar veitir hafnarstjóri í síma 5258900.
Hafnarstjóri Faxaflóahafna sf.
Aðstoðarhafnarstjóri Faxaflóahafna sf.
Kosning í embætti formanns, ritara og annars meðstjórnanda
Stéttarfélags Vesturlands sbr. 20. gr. laga félagsins mun fara
fram dagana 1. – 5. apríl nk.
Í framboði eru eftirfarandi:
A-listi: B-listi:
Signý Jóhannesdóttir, formaður Eiríkur Þór Theodórsson, formaður
Baldur Jónsson, ritari Skúli Guðmundsson, ritari
Jónína Heiðarsdóttir, 1. meðstj. María Hrund Guðmundsd., 1. meðstj.
Kjörfundur er opinn á skrifstofu Stéttarfélags Vesturlands að
Sæunnargötu 2a í Borgarnesi sem hér segir:
1. apríl frá 08:00 til 16:00
2. apríl frá 08:00 til 18:00
3. apríl frá 08:00 til 16:00
4. apríl frá 08:00 til 18:00
5. apríl frá 08:00 til 13:00
Hægt verður að greiða atkvæði utan kjörfundar sem hér segir:
Búðardalur – Héraðsbókasafnið Miðbraut 11, Búðardal
1. apríl frá 09:00 til 13:00
2. apríl frá 09:00 til 13:00
3. apríl frá 09:00 til 13:00
Hvalfjarðarsveit – Skrifstofa Hvalfjarðarsveitar Innrimel 3,
Hvalfjarðarsveit
1. apríl frá 10:00 til 12:00 og 12:30 til 15:00
2. apríl frá 10:00 til 12:00 og 12:30 til 15:00
3. apríl frá 10:00 til 12:00 og 12:30 til 15:00
Munið skilríkin!
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast
á skrifstofu félagsins.
Stjórnarkjör 2019
Kjörstjórn Stéttarfélags Vesturlands
Umhverfisstofnun kynnti nýverið
ástandsmat áfangastaða innan frið-
lýstra svæða á árinu 2018. Þar er
fjallað um ástand þekktra áfanga-
staða víða um land, sem eiga það
sammerkt að vera undir álagi vegna
gestasóknar. Notað er litakerfi í
skýrslunni. Þeir áfangastaðir sem
fá heildareinkunn lægri en 5 eru
rauðir og teljast í verulegri hættu
hvað varðar verndargildi staðanna.
Áfangastaðir með heildareinkunn
milli 5 og 6 fá appelsínugulan lit,
sem þýðir að talin er hætta á að þeir
geti tapað verndargildi sínu. Að
lokum fá staðir með heildareinkunn
hærri en 8 grænan lit og teljast ekki
í hættu. „Í ár verður sett fram sú
nýbreytni í skýrslunni að tilgreina
sérstaklega áfangastaði innan frið-
lýstra svæða sem standast vel það
álag sem á þeim er. Óneitanlega er
misjafnt milli þessara staða hversu
fjölsóttir þeir eru og hafa ber í huga
að sumir þeirra koma vel út vegna
fæðar ferðamanna. Ekki er lík-
legt að ágætiseinkunn héldi sér ef
gestakomur myndu aukast mikið
án frekari innviðauppbyggingar,“
segir í skýrslu Umhverfisstofnunar.
„Vert er þó að tilgreina að hér er
jafnframt að finna áfangastaði sem
hafa verið byggðir upp til að taka
við miklum fjölda gesta. Má þar
nefna alla áfangastaði innan Þjóð-
garðsins Snæfellsjökuls,“ segir þar
enn fremur.
Enginn staður á
Vesturlandi í hættu
Áfangastaðirnir á Vesturlandi sem
úttektin nær til eru Arnarstapi,
Búðahraun, Eldborg, Geitland,
Grábrók, Hraunfossar, Húsafell,
ströndin milli Stapa og Hellna auk
átta áfangastaða innan Þjóðgarðs-
ins Snæfellsjökuls; Djúpalóns, Lón-
dranga, Malarrifs, Saxhóls, Skarðs-
víkur, Skálasnaga, Svalþúfu og
Öndverðarness. Skemmst er frá því
að segja að áfangastaðirnir á Vest-
urlandi standa almennt mjög vel
að vígi. Enginn þeirra hefur lægri
einkunn en 7 sem þýðir að enginn
telst í verulegri hættu og enginn er
talinn eiga á hættu að geta tapað
verndargildi sínu. Enn fremur eru
allnokkrir staðir á Vesturlandi sem
standa vel að vígi og falla í græna
flokkinn. Þeir eru Búðahraun, Grá-
brók og Húsafell, auk eftirfarandi
staða innan Þjóðgarðarins Snæ-
fellsjökuls; Djúpalón, Lóndrangar,
Malarrif, Saxhóll, Skarðsvík, Ská-
lasnagi og Svalþúfa. Loks má nefna
að af þeim stöðum sem mat Um-
hverfisstofnunar nær til hafði Geit-
land fallið í appelsínugula flokk-
inn frá 2012-2016 og ströndin milli
Stapa og Hellna var metin í sama
flokki árið 2016. Hvorugt svæð-
anna telst nú eiga á hættu að tapa
verndargildi sínu.
kgk
Gott ástand friðlýstra áfangastaða
Ferðamenn mynda Lóndranga á Snæfellsnesi síðasta sumar. Ljósm. úr safni/ glh.