Skessuhorn


Skessuhorn - 20.03.2019, Side 18

Skessuhorn - 20.03.2019, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 201918 „Við gerðum nú ekki ráð fyrir þessu svo þetta kom okkur mjög á óvart,“ segja þær Áslaug Þorvaldsdóttir og Justyna Jasinska sem voru á dög- unum heiðraðar í vinnunni fyrir að eiga um þessar mundir tíu ára starfsafmæli á Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þær eru báðar mjög góð dæmi þess að hægt sé að vaxa í starfi ef viljinn er fyrir hendi. Ás- laug byrjaði í hlutastarfi við upp- vask og er nú framkvæmdastjóri og Justyna var fyrst hlutastarfsmað- ur í ræstingum en er í dag kokk- ur. „Fyrsti vinnudagurinn minn var 9. mars 2009 og um sumarið sama ár var ég svo færð yfir í skál- ann að sjá um að taka á móti ferða- mönnum. Fljótlega var ég farin að sjá um bókanir, samskipti við gesti og ferðaskrifstofur og bókhaldið. Þetta þróaðist svo bara upp á við hægt og rólega og fyrr á þessu ári var ég svo gerð að framkvæmda- stjóra,“ segir Áslaug og brosir. Áður en Áslaug tók fyrst til starfa á Landnámssetrinu vann hún sem starfsmannastjóri hjá Loftorku um tíma en þar á undan hafði hún um langt skeið séð um bókhald fyrir Borgarnes Kjötvörur. Úr ræstingum í kokkinn Justyna hóf einnig störf í mars 2009 og eins og fyrr segir byrjaði hún í ræstingum en fljótlega var hún færð yfir í eldhúsið. Hún segist alla tíð hafa haft mikinn áhuga á mat og matargerð og sóttist því eftir starfi í eldhúsinu. Til að byrja með var hún aðstoðarmaður kokksins en fór svo nokkuð hratt upp stig- ann í eldhúsinu og er í dag einn af tveimur aðal kokkum Landnáms- setursins. Justyna flutti í Borgar- nes frá Póllandi á eftir manninum sínum sem hafði fengið starf hjá Loftorku í Borgarnesi. „Mér líkar vel í Borgarnesi og er ekki að fara neitt,“ segir Justyna. „Hún er bara Borgnesingur í dag,“ segir Áslaug og Justyna tekur heilshugar und- ir það. „Hún er hörkudugleg kona sem við erum heppin að hafa feng- ið til okkar hingað í Borgarnes,“ bætir Álaug við og heldur áfram: „Fyrst þegar hún kom hingað tal- aði hún hvorki ensku né íslensku en í dag talar hún góða ensku og er alveg að ná íslenskunni en hún er alltaf jákvæð og dugleg að reyna að bæta sig,“ segir Áslaug. „En varð- andi tungumálakunnáttu þá má segja að það sé einkennandi fyrir okkur hér á Landnámssetrinu að hér eru töluð alls konar tungumál. Það geta því orðið ansi fróðleg og skemmtileg samskiptin hér innan- dyra, en það er líka bara skemmti- legt,“ segja þær. Hádegishlaðborðið alltaf vinsælt Það er óhætt að segja að það sé engin tilviljun að Justyna hafi vaxið hratt í starfi á Landnámssetrinu en hún er að sögn Áslaugar afbragðsgóður kökkur sem fyllir matsalinn flesta daga í hádeginu. „Svo gengur líka mjög vel á kvöldin og það er alltaf nóg að gera. En hádegisverðahlað- borðið okkar er alltaf rosalega vin- sælt. Það koma líka margir vinnu- staðir hingað saman og svoleiðis, aðeins öðruvísi en þetta er á kvöld- in. Justyna má alveg eiga að það að hennar matur er virkilega góður og það er ekki af ástæðulausu sem fólk kemur hingað aftur og aftur. En við erum líka með annan kokk sem er alls ekki síðri,“ segir Áslaug. Á Landnámssetrinu er boðið upp á hlaðborð hollustugrænmetisrétta og súpu í hádeginu alla virka daga og á kvöldin er matseðill með rétt- um í hollari kantinum. „Fyrst þegar við byrjuðum með hlaðborðin voru oft ansi fáir sem komu en þetta hef- ur vaxið mikið og ég held að fólk sé almennt ánægt með matinn okk- ar,“ segir Áslaug brosandi og horf- ir á Justynu sem að sjálfsögðu tekur hrósið til sín. Ferðaþjónustan blómstrað út af Landnámssetrinu Nú þegar Áslaug er orðin fram- kvæmdastjóri, ætlar hún þá að gera einhverjar breytingar á Landnáms- setrinu? „Það þarf ekki að breyta því sem er gott,“ svarar hún bros- andi og Justyna tekur heilshug- ar undir. „Ég vil bara halda áfram að gera þá góðu hluti sem við höf- um verið að gera hér fram til þessa og kannski bara reyna að gera gott enn betra. En ég á ekki ein heiðurinn af því hversu vel geng- ur. Þetta er góður og samheldinn hópur sem sér til þess í sameiningu að hér gangi svona vel. Velgengn- in sést bara á því að hér er alltaf nóg að gera og gestirnir sýna al- mennt ánægju, hvort sem það með sýningarnar okkar eða veitinga- staðinn,“ segir Áslaug og bætir því við að alltaf sé líka nóg um að vera á Söguloftinu og eru heima- menn og aðrir gestir duglegir að sækja þangað hinar ýmsu sýningar sem eru í gangi hverju sinni. „Það er svo skemmtilegt og viðeigandi að fá góða sögumenn til að vera með sýningar á Söguloftinu okk- ar,“ segir Áslaug. Þær segja Landnámssetrið vera góðan vinnustað þar sem alltaf er ánægjulegt að mæta til vinnu. „Það er rosalega gott að vinna fyrir Sirrý og Kjartan og ég held að það sé ástæðan fyrir því að hér eru allir alltaf glaðir í vinnunni. Starfsand- inn er frábær og við skemmtum okkur alltaf vel í vinnunni,“ segir Áslaug. „Ég veit í raun ekki hvar Borgarnes væri án Landnámsset- ursins. Ég er fullviss um að ferða- þjónustan í Borgarnesi eigi þeim Sirrý og Kjartani mikið að þakka með að hafa opnað Landnámssetr- ið. Hingað koma fjölmargir ferða- menn allt árið og við erum í sam- bandi við margar stórar ferðaskrif- stofur sem koma til okkar og þá um leið fara hér í gegnum Borgar- nes. Ég trúi ekki öðru en að Land- námssetrið hafi haft jákvæð áhrif á þróun ferðaþjónustu í Borgar- nesi síðustu 13 ár,“ segir Áslaug að endingu. arg Sýna fram á að hægt sé að vaxa í starfi ef vilji er til Rætt við Áslaugu Þorvaldsdóttur og Justyna Jasinska hjá Landnámssetrinu Áslaug Þorvaldsdóttir og Justyna Jasinska hafa báðar starfað á Landnámssetrinu í tíu ár. Tökum Saga Film á efni í sjón- varpsþættina 20/20 lauk í lið- inni viku í Stykkishólmi. Ein- ungis frágangsvinna og þrif eru eftir. Starfsfólk Saga Film er hæstánægt með veruna í Stykk- ishólmi. Það vill koma á fram- færi þökkum til íbúa fyrir mót- tökurnar og aðstoðina á með- an á kvikmyndatökum stóð síð- ustu vikurnar. „Allt gekk vonum framan, bæði vegna aðstæðna og veðurs, og einnig vegna fólksins sem lagði okkur lið. Við erum öll í skýjunum með tímann í Hólm- inum og kveðjum með söknuði,“ segir starfsfólk Saga Film. Þó að kvikmyndatökum sé lokið er enn verk fyrir hönd- um. „Á næstu dögum byrjar frá- gangsvinna og þrif sem reynt verður að inna af hendi á sem skjótastan og öruggastan máta. Þá er Slökkvilið Stykkishólms í startholunum og tilbúinn við að aðstoða okkur með að skola með vatni þann gervisnjó sem eftir situr þegar veður fer að hlýna,“ segir í tilkynningu frá Saga Film sem birt var á heimasíðu Stykk- ishólmsbæjar. mm Tökum á 20/20 lokið í Stykkishólmi Útliti Hafnargötu 1 var meðal annars breytt og þar komið fyrir lögreglustöð. Ljósm. úr safni/sá.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.