Skessuhorn - 20.03.2019, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 23
RARIK - Febrúar 2019:
167x214mm
RARIK ohf • Dvergshöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 528 9000 • www.rarik.is
Rafvirki í Borgarnesi
RARIK ohf auglýsir eftir rafvirkja til starfa á starfsstöð fyrirtækisins í Borgarnesi. Hér
•
• Eftirlit með tækjum og búnaði
• Viðgerðir
•
• Vinna samkvæmt öryggisreglum
Helstu verkefni
• Sveinspróf í rafvirkjun
•
• Almenn tölvukunnátta
• Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt
• Bílpróf
Hæfniskröfur
Atvinna
RARIK - mars 2019:
167x233mm
Lífsins ferðalag – sögur af fólki
Þín eigin saga, Gerður Kristný, Flateyjargáta saga verður til og á sitt lif,
Harry Potter og heilablæðingin, Viktor Arnar Ingólfsson, Lítil mær heilsar,
Guðrún Eva Mínervudóttir, Hyllið dótturina!, Ævintýraboxin,
Þorgrímur Pétursson, Ævar vísindamaður, Álög,
Stuttar skáldsögur - um Ástina, Texas,
Af hverju er ég hér? og fl. og fl og fl.
Nú er rétti tíminn að láta Hólminn heilla sig.
Facebook: Júlíana- hátíð sögu og bóka.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Júlíana
hátíð sögu og bóka í Stykkishólmi
21. – 24. mars 2019
eina rétta í stöðunni,“ segir hann.
Framkvæmdirnar hófust þegar
gamla hlaðan var rifin í lok apríl
á síðasta ári en eftir það var gert
hlé yfir sumarið. Hafist var handa
að nýju í haust og steypt fyr-
ir sökklum í lok ágúst. „Síðan þá
hafa framkvæmdir staðið yfir nán-
ast óslitið og ganga bara mjög vel.
Mér sýnist við vera á fínum tíma
með þetta allt saman, enda gengur
vel undan drengjunum við smíð-
arnar,“ segir Míó. „Hér þarf allt
að vera tilbúið í lok maí, því sum-
arstarfsfólkið byrjar hjá okkur 1.
júní. Þá verður húsið tekið í notk-
un,“ bætir hann við.
Vesturland einstakur
áfangastaður
Næst víkur Míó að ferðaþjónustu
í landshlutanum almennt. Það
þarf kannski ekki að koma á óvart
að hann telur Vesturland einstakt
svæði þegar kemur að ferðaþjón-
ustu á Íslandi. „Vesturlandið hef-
ur fengið mjög flotta umfjöllun
undanfarin ár. Landshlutinn all-
ur var náttúrulega valinn einn af
eftirsóknarverðustu áfangastöðum
heims af Lonely Planet árið 2016.
Síðan þá hafa svæði innan lands-
hlutans og einstakir staðir feng-
ið mjög flottar alþjóðlegar viður-
kenningar, þar á meðal við, Húsa-
fell og ísgöngin í Langjökli svo ég
taki aðeins örfá dæmi. Allar þessar
viðurkenningar og þessi umfjöll-
un hefur laðað til svæðisins mik-
ið af fólki sem skipuleggur sín-
ar ferðir sjálft. Það finnum við
mjög greinilega hér við Víðgelmi,
stærstur hluti okkar gesta ferðast á
eigin vegum. Svæðið hefur að ein-
hverju leyti farið framhjá stærri
aðilum sem skipuleggja ferðir um
landið, þeir einbeita sér meira að
Suðurlandinu, þó auðvitað séu
nokkrir sem koma hingað,“ seg-
ir Míó. Hann hefur þó orð á því
að það þurfi ekki endilega að vera
ókostur. „Það er auðvitað hluti af
sjarmanum við áfangastaði á Vest-
urlandi, eins og til dæmis Víð-
gelmi, að þeir eru ekki þaulsetnir.
Ég starfaði sem leiðsögumaður á
Suðurlandi og það er ekki hægt að
líkja þessu saman. Á Vesturlandi
líður tíminn aðeins hægar, það er
allt afslappaðra, færra fólk, meira
næði og meira rúm fyrir hvern og
einn. Það er í mínum huga stór
hluti af upplifuninni,“ segir hann.
Upplifunin í öndvegi
Í því samhengi veltir hann vöng-
um yfir stefnunni í ferðaþjónustu
á Íslandi almennt. „Mér finnst
áherslan vera of mikil á þessi póst-
kort, örfáa svona instagram-staði,
þangað sem miklum fjölda fólks er
beint á stuttum tíma sem verður
til þess að næstum allir sem koma
til Íslands enda á því að upplifa ná-
kvæmlega það sama. Ég hef áhuga
á upplifuninni af því að heim-
sækja Íslands og hvaða tilfinningar
heimsóknin vekur hjá ferðamönn-
um. Þegar ég fer á Gullfoss og
Geysi þá finn ég að þar er bara ekki
sama andrýmið og maður upplifir
á Vesturlandi,“ segir hann. „Hing-
að kemur auðvitað færra fólk en
á Suðurlandið, en Vesturland býr
að því fyrir vikið, þessar afslöpp-
uðu og notalegu upplifun. Stóra
spurningin fyrir ferðaþjónustuna á
Vesturlandi í framtíðinni er hvort
landshlutinn muni líða fyrir það ef
fjöldi ferðamanna kemur til með
að aukast mikið og hvaða áhrif það
mun hafa á upphlifunina og þar
með aðsóknina til lengri tíma lit-
ið. Það er í höndum ansi margra,
okkar allra sem störfum í þessari
grein, að að móta skýra heildarsýn
fyrir landshlutann í þessum efnum
til framtíðar,“ segir Míó að end-
ingu.
kgk
„Mér sýnist við vera á fínum tíma með þetta allt saman, enda gengur vel undan
drengjunum við smíðarnar,“ segir Míó um framkvæmdirnar í Fljótstungu. Hér eru
feðgarnir Höskuldur Kolbeinsson og Kolbeinn Magnússon í Stóra-Ási, en þeir eru
meðal þeirra sem starfað hafa við smíðar í Fljótstungu undanfarin misseri.
Hér má sjá hvar rúmgóður matsalurinn verður í starfsmannahúsi The Cave í
Fljótstungu.