Skessuhorn - 20.03.2019, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 2019 29
Snæfellsbær -
miðvikudagur 20. mars
Vinnusmiðja í Sjóminjasafninu
á Hellissandi kl. 13:00 til
16:00. Viðfangsefnið er
upplifun og dægradvöl.
Hægt er að taka þátt í öllu
eða velja sér viðfangsefni.
Sjá nánar Facebook-viðburð
á vegum Sjóminsjasafnsins á
Hellissandi.
Borgarbyggð -
miðvikudagur 20. mars
Bingó Félags aldraðra í
Borgarfjarðardölum í Brún í
Bæjarsveit kl. 14:00 til 17:00.
Snæfellsbær -
miðvikudagur 20. mars
Fyrirlestur um heilsueflingu
60+ í Félagsheimilinu Klifi
kl. 14:00. Fyrirlesari er Janus
Guðlaugsson frá Janus
heilsueflingu. Sjá nánar frétt í
Skessuhorni vikunnar.
Borgarbyggð -
miðvikudagur 20. mars
Vesturlandsslagur í Domino‘s
deild kvenna í körfuknattleik.
Skallagrímur tekur á móti
Snæfelli í íþróttahúsinu í
Borgarnesi. Leikurinn hefst kl.
19:15.
Borgarbyggð -
miðvikudagur 20. mars
Lífsgleði og velgengni eftir
pöntun. Fyrirlestur Bergþórs
Pálssonar á alþjóðlega
gleðideginum í Hjálmakletti kl.
20:00. Fyrirlesturinn er hluti af
fræðslufundaröð heilsueflandi
samfélags á árinu 2019.
Akranes -
fimmtudagur 21. mars
Strompurinn fellur. Stefnt er að
því að fella sementsstrompinn
á Akranesi kl. 12:15. Sjá nánar
frétt í Skessuhorni vikunnar.
Stykkishólmur -
fimmtudagur 21. mars
Júlíana - hátíð sögu og
bóka hefst formlega með
opnunarhátíð á Vatnasafninu
kl. 20:00 og stendur yfir
fram á sunnudag. Sjá nánar
auglýsingu og umfjöllun
um hátíðina í Skessuhorni
vikunnar.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 21. mars
Spilavist í Brúarási kl. 20:30.
Spjaldið kostar kr. 1.000.
Verðlaun og kaffiveitingar að
spilamennsku lokinni.
Borgarbyggð -
föstudagur 22. mars
Fyrsta skóflustungan að nýju
húsi Björgunarsveitarinnar
Brákar verður tekin að
Fitjum við Vesturlandsveg í
Borgarnesi kl. 17:00.
Borgarbyggð -
föstudagur 22. mars
Björgunarsveitin Brák
fagnar 70 ára afmæli sínu.
Af því tilefni er boðið til
afmælisdagskrár kl. 18:00
á Hótel Borgarnesi. Boðið
up á súpu og afmælisköku.
Eldri félagar og aðrir félagar
sérstaklega hvattir til að koma
og samfagna með núverandi
félögum björgunarsveitarinnar.
Borgarbyggð -
föstudagur 22. mars
Fjórða og næstsíðasta mót
Vesturlandsdeildarinnar í
hestaíþróttum. Keppt verður
í fimmgangi í Faxaborg í
Borgarnesi. Húsið opnar kl.
19:00 og fyrsti hestur mætir í
braut kl. 20:00. Aðgagnseyrir
er kr. 1.000 en frítt fyrir 14
ára og yngri. Nóg af stigum
eftir í pottinum og allt
getur gerst bæði í liða- og
einstaklingskeppninni.
Akranes -
föstudagur 22. mars
ÍA mætir Njarðvík B í 2. deild
karla í körfuknattleik. Leikurinn
hefst kl. 19:30 í íþróttahúsinu
við Vesturgötu.
Akranes -
föstudagur 22. mars
Nemendafélag Fjölbrautaskóla
Vesturlands frumsýnir
söngleikinn Rock of Ages í
Bíóhöllinni kl. 20:00. Miðasala á
www.midi.is.
Nýfæddir Vestlendingar
Á döfinni
Leigumarkaður
Íbúð til leigu á Akranesi
Óskum eftir íbúð á Akranesi.
Erum par með fastar tekjur.
Dóttir kærastans kemur
til okkar aðra hvora helgi.
Skilvísum greiðslum heitið.
Áhugasamir hafi samband í
síma 695-8679.
Markaðstorg
Vesturlands
LEIGUMARKAÐUR
17. mars. Stúlka. Þyngd: 4.002
gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar:
Sigurborg Knarran Ólafsdóttir og
Thor Kolbeinsson, Grundarfirði.
Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.
18. mars. Stúlka. Þyngd: 3.916
gr. Lengd: 51 cm. Foreldrar:
Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir
og Þorkell Marvin Halldórsson,
Reykjavík. Ljósmóðir: Elísabet
Harles.
Hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps samþykkti á
fundi sínum þann 17. maí 2018 að auglýsa tillögu að
deiliskipulagi í landi Miðhrauns 2 skv. 1. mgr. 41. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagstillagan felur í sér
heimild til byggingar 20 frístundahúsa og eins þjónustu-
húss, tveggja fjárhúsa og breytinga á núverandi fjárhúsi.
Tillaga þessi er í samræmi við auglýsta tillögu að endur-
skoðuðu aðalskipulagi sveitafélagsins, þar sem deili-
skipulagið nær til reita með auðkenni VÞ-13 og L-1.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að
Hofsstöðum og er aðgengileg á vef sveitarfélagsins,
www.eyjaogmikla.is. Athugasemdir skulu vera skriflegar
og berast sveitarfélaginu í síðasta lagi 7. maí 2019,
annað hvort á skrifstofu sveitarfélagsins að Hofsstöðum,
311 Borgarnesi, eða á netfangið
eyjaogmiklaholtshreppur@vortex.is.
F.h. sveitarstjórnar,
Eggert Kjartansson oddviti
Deiliskipulag fyrir Miðhraun 2
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Borgarbyggð -
laugardagur 23. mars
Vor- og vinnufundur Skátafélags
Borgarness við Flugu í
Einkunnum kl. 10:00. Farið verður
í vorverkin í skálanum, smíðað og
lagað, unnið að færnimerkjum.
Flokkar skipuleggja eigin göngu.
Unnið verður að viðhaldi við
skálann og allar hjálparhendur
eru vel þegnar. Allir skátar,
foreldrar og áhugafólk um
uppbyggjandi skátastarf eru
boðnir velkomnir að hjálpa við
vorverkin.
Akranes -
laugardagur 23. mars
Ráðstefnan „Að sækja vatnið
yfir lækinn“ verður haldin í
Tónbergi. Húsið opnar kl.
11:30 og dagskrá hefst kl.
12:00. Þema ráðstefnunnar
er nýsköpun, lifandi samfélag
og öflugt atvinnulíf. Boðið
verður upp á léttar veitingar
að ráðstefnu lokinni. Það
eru Akraneskaupstaður,
Landbúnaðarháskóli Íslands
og Samtök sveitarfélaga á
Vesturlandi sem standa fyrir
ráðstefnunni. Skráning fer fram á
vef Akraneskaupstaðar.
Borgarbyggð -
laugardagur 23. mars
Skallagrímur mætir KR í Domino‘s
deild kvenna í körfuknattleik.
Leikið verður í íþróttahúsinu í
Borgarnesi frá kl. 16:30.
Stykkishólmur -
laugardagur 23. mars
Snæfell tekur á móti Haukum
í Domino‘s deild kvenna í
körfuknattleik. Mikilvægur
leikur í baráttunni um
sæti í úrslitakeppninni um
Íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn
hefst kl. 16:30 í íþróttahúsinu í
Stykkishólmi.
Borgarbyggð -
sunnudagur 24. mars
Bingó Kvenfélags Reykdæla í
Logalandi kl. 15:00. Spjaldið
kostar 1.200 kr. en athugið að
enginn posi verður á staðnum.
Veglegir vinningar og kaffi og
með því innifalið í verðinu.
Allur ágóðinn af bingóinu
rennur til gróðurhúsabyggingar
Brákarhlíðar. Allir velkomnir.