Skessuhorn - 20.03.2019, Page 30
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 201930
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Ætlar þú að fylgjast með því
þegar strompurinn verður feld-
ur á fimmtudaginn? Og; hvað
finnst þér um að strompurinn
sé að hverfa af sjónvarsviðinu?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Sigurvin Sigurjónsson
Já, ég ætla að fylgjast með og
það er bara mjög gott að hann
sé að fara.
Lára Björk Gísladóttir
Ég verð í vinnunni og get ekki
fylgst með. En það er fínt að
hann sé að fara.
Magnfríður Þórðardóttir
Það getur verið að ég fylgist
með en ég get séð strompinn
út um gluggann heima hjá mér.
Það er bara allt í góðu að hann
sé að hverfa.
Anna Júlía Þorgeirsdóttir
Nei, ég verð í vinnunni. Mér
þykir það bara gott mál að hann
sé að hverfa.
Skagamenn þurfa að sigra í loka-
leik 2. deildar karla og treysta á
hagstæð úrslit í öðrum leikjum til
að komast í úrslitakeppni deildar-
innar. Þeir léku tvisvar í vikunni
og töpuðu báðum leikjunum. Fyrst
máttu þeir játa sig sigraða gegn
Leikni R. á Akranesi 108-118 þeg-
ar liðin mættust á þriðjudag.
Skagamenn léku svo aftur á
sunnudaginn þegar þeir mættu
liði KV á útivelli. Í þeim leik hefði
hvort liðið sem er geta farið með
sigur af hólmi, því þegar lokaflaut-
an gall munaði aðeins einu stigi
á liðunum. Skagamenn þurftu að
bíta í hið súra epli og játa sig sigr-
aða, 102-101.
ÍA situr í fimmta sæti deildar-
innar með 16 stig og á einn leik
eftir á mótinu. Skagamenn eru
tveimur stigum á eftir KV, sem
sömuleiðis eiga einn leik eftir, en
tveimur stigum á undan Leikni R.
sem á tveimur leikjum meira eft-
ir. Skagamenn þurfa því að sigra
sinn leik og treysta á hagstæð úr-
slit annarra leikja til að eiga mögu-
leika á að komast í úrslitakeppni 2.
deildar.
kgk/ Ljósm. úr safni/ jho.
Þurfa á sigri að halda
Snæfellingar gerðu góða ferð austur
til Hornafjarðar og sigruðu Sindra,
63-69, í lokaleik Hólmara í 1. deild
karla í körfuknattleik á fimmtu-
dagskvöld.
Liðin fylgdust að framan af fyrsta
leikhluta og staðan var jöfn, 9-9,
eftir sex mínútna leik. Þá náðu
Snæfellingar góðum kafla og höfðu
þægilegt forskot eftir upphafsfjórð-
unginn, 25-12. Hólmarar voru
áfram sterkari í öðrum leikhluta.
Þeir juku forystuna lítið eitt fram
að hálfleiknum og leiddu með 18
stigum í hléinu, 44-28.
Snæfellingar áttu erfitt uppdrátt-
ar í þriðja leikhluta og skoruðu
aðeins tíu stig allan leikhlutann.
Sindramenn minnkuðu muninn á
meðan og alla leið niður í fimm stig
seint í fjórðungnum. Snæfellingar
áttu hins vegar lokaorðið í leikhlut-
anum og fóru með níu stiga forskot
inn í fjórða leikhlutann. Þar voru
þeir sterkari framan af, en heima-
menn voru ekki af baki dottn-
ir, minnkuðu muninn í fjögur stig
þegar þrjár mínútur voru eftir og
hleyptu spennu í leikinn. Snæfell-
ingar stigu hins vegar ekki feilspor
á lokamínútunum og fóru að lokum
með sigur af hólmi, 63-69.
Dominykas Zupkauskas var
stigahæstur í liði Snæfellinga með
25 stig, Ísak Örn Baldursson skor-
aði 19 stig og reynsluboltinn Dar-
rel Flake skoraði ellefu stig og reif
niður 18 fráköst.
Ivan Kekic fór fyrir liði Sindra
með 21 stig og sex fráköst, Gísli
Þórarinn Hallsson skoraði 13 stig
og tók fimm fráköst, Matic Macek
skoraði 13 stig og gaf fimm stoð-
sendingar og Nikolas Susa skoraði
tíu stig og gaf átta fráköst.
Snæfellingar ljúka leik í 1. deild
karla með fjögur stig í næstneðsta
sæti deildarinnar, tveimur fyrir ofan
botnlið Sindra.
kgk
Snæfellingar enduðu
mótið á sigri
Dominykas Zupkauskas og félagar hans í Snæfelli sigruðu lokaleik vetrarins gegn
Sindra. Ljósm. sá.
Á myndinni eru fimm ættlið-
ir í beinan kvenlegg, en ættmóð-
irin er Steinunn Kolbeinsdóttir
(1928) á Akranesi, frá Stóra-Ási í
Hálsasveit. Dóttir hennar er Ásta
Ingvarsdóttir (1954), þá Theodóra
Arndís Berndsen (1977), Alex-
andra Dögg Berndsen (1997) og
Sólrún Hervör Heinisen Pálsdótt-
ir 18. desember 2018. ki
Fimm ættliðir í
beinan kvenlegg
Efnt verður til fyrirlesturs um
heilsueflingu íbúa 60 ára og eldri
í Snæfellsbæ í dag, miðvikudaginn
20. mars. Fyrirlesturinn fer fram í
Félagsheimilinu Klifi og hefst hann
kl. 14:00. Viðburðurinn er hald-
inn að frumkvæði velferðarnefnd-
ar og öldrunarráðs Snæfellsbæj-
ar. Þar mun Janus Guðlaugsson frá
Janus heilsueflingu fjalla um verk-
efnið Fjölþætt heilsuefling 65+ í
sveitarfélögum. Það byggist á dokt-
orsverkefni Janusar, en hann er
með PhD í íþrótta- og heilsufræði.
Verkefnið hefur þegar verið innleitt
í tveimur sveitarfélögum hér á landi
með góðum árangri, að því er fram
kemur á vef Snæfellsbæjar.
„Farið er yfir markmið verk-
efnis og hvað það inniheldur. Þá
er farið yfir nýlegar niðurstöður
úr verkefninu í bæði Reykjanesbæ
og Hafnarfirði en árangur er ein-
staklega góður sem af er. Verkefnið
hefur einnig verið innleitt á Spáni
og Litháen í samvinnu við Evrópu-
ráðið og Embætti landlæknis og
hefur vakið mikla athygli,“ segir á
vef Snæfellsbæjar.
Verkefnið er raunprófanlegt en
farið er yfir helstu mælingar sem
lagðar eru til og framkvæmdar áður
en heilsueflingin er hafin. Þá er
einnig fjallað um helstu niðurstöð-
ur mælinga í áðurnefndum sveitar-
félögum, en þær hafa verið endur-
teknar á sex mánaða fresti frá því
verkefnið hófst. Um er að ræða
mælingar eins og líkamssamsetn-
ingu, blóðþrýstingsmælingar, af-
kasta- og hreyfigetumælingar, mæl-
ingar sem tengjast áhættu á hjarta-
og æðasjúkdómum og mælingar á
lífsgæðum og áhrif heilsueflingar á
framangreindar mælingar. „Að lok-
um er fjallað um breytingu á ald-
urssamsetningu íbúa landsins og
þau áhrif sem slíkt getur haft á ein-
staklinga og samfélagið í heild á
næstu árum. Að auki verður kom-
ið inn á ávinning af verkefninu til
lengri ti´ma auk þess sem spurn-
ingum er svarað um verkefnið og
heilsutengdan ávinning þess.“ kgk
Fyrirlestur um heilsu-
eflingu 60+ í Snæfellsbæ
Janus Guðlaugsson frá Janus heilsueflingu flytur fyrirlesturinn.
Ljósm. Snæfellsbær.
Þjálfarar U15 ára lands-
liða drengja og stúlkna í
körfuknattleik hafa valið 18
manna lokahópa fyrir sum-
arið 2019. Bæði landsliðin
munu keppa á Copenhag-
en Invitational mótinu sem
fram fer í Danmörku seinni
part júní í sumar.
Vestlendingar eiga þrjá
fulltrúa í hópunum, alla í
U15 ára landsliði drengja.
Þeir eru Alexander Finns-
son úr Skallagrími, Aron El-
var Dagsson frá ÍA og Jónas
Bjarki Reynisson úr Skal-
lagrími. kgk
Þrír Vestlendingar valdir
í drengjalandsliðið