Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 10. ApRíL 20196
Í fangelsi fyrir
sviptingarakstur
VESTURLAND: Karlmað-
ur var nýverið dæmdur í 30
daga fangelsi í Héraðsdómi
Vesturlands fyrir að aka bif-
reið eftir að hafa verið svipt-
ur ökuréttindum. Honum var
gefið að sök að hafa í nóvem-
berbyrjun 2018 ekið bifreið
sviptur ökuréttindum á Vest-
urlandsvegi við Hvalfjarðar-
göng og krafðist ákæruvaldið
refsingar. Ákærði játaði brot
sitt. í dómnum kemur fram að
maðurinn hafi frá árinu 2012
hlotið fimm dóma og tvíveg-
is gengið undir viðurlög með
lögreglustjórasátt, fyrir brot
gegn almennum hegningalög-
um, umferðarlögum og lögum
um ávana- og fíkniefni. „Refs-
ing ákærða þykir að broti hans
virtu hæfilega ákveðin fang-
elsi í 30 daga,“ segir í dómn-
um. Honum var einnig gert að
greiða þóknun verjanda síns
og ferðakostnað hans, samtals
tæpar 150 þúsund krónur.
-kgk
Dæmdur fyrir
snyrtivörustuld
VESTURLAND: Karlmaður
var í Héraðsdómi Vesturlands
dæmdur til að greiða tæpar 21
þúsund krónur í sekt auk vaxta
fyrir að stela snyrtivörum úr
verslun Lyfju í Borgarnesi
haustið 2016. Dómur var upp
kveðinn 29. mars síðastliðinn.
Maðurinn játaði brot sitt og
játning hans er studd sakar-
gögnum, að því er fram kem-
ur í dómi Héraðsdóms Vest-
urlands. Var honum ekki gerð
refsing, heldur gert að greiða
Lyfju tæpar 21 þús. krónur
auk vaxta, sem og málskostn-
að, þóknun verjanda síns og
ferðakostnað hans. -kgk
Vilja örva atvinnu-
uppbyggingu
BORGARBYGGÐ: Á fundi
byggðarráðs Borgarbyggðar í
liðinni viku var rætt um fyrir-
komulag gatnagerðargjalda á
atvinnulóðir í sveitarfélaginu.
Byggðarráð samþykkti að
hefja vinnu við endurskoðun
á gjaldskrá gatnagerðargjalda
og möguleika á tímabundnu
átaki, með það að markmiði
að örva uppbyggingu í sveit-
arfélaginu. Jafnframt ósk-
aði byggðarráð eftir minnis-
blaði frá sviðsstjóra fjármála-
og stjórnsýslusviðs um fyrir-
komulag þessara gjalda í ná-
lægum sveitarfélögum. -mm
Ekið í annarlegu
ástandi
VESTURLAND: Fjórir öku-
menn voru stöðvaðir í umdæmi
Lögreglunnar á Vesturlandi í
liðinni viku, grunaðir um akst-
ur undir áhrifum ávana- og
fíkniefna. Er það óvenjumikið
að sögn lögreglu. Enn frem-
ur voru þrír ökumenn stöðv-
aðir eftir að hafa sest ölvaðir
undir stýri. Tvö fíkniefnamál
komu upp í umdæminu í vik-
unni, en bæði minniháttar að
sögn lögreglu. Þá var tilkynnt
um fjögur umferðaróhöpp
í vikunni sem leið. Öll voru
óhöppin minniháttar að sögn
lögreglu og engin slys urðu á
fólki í neinu þeirra. -kgk
Hreinsunarátak í
þéttbýli
BORGARB: Á fundi umhverf-
is-, skipulags- og landbúnaðar-
nefndar Borgarbyggðar í liðinni
viku var ákveðið fyrirkomulag á
hreinsunarátaki í þéttbýli sveitar-
félagsins í vor. Um er að ræða ár-
legt árvekniátak til að hvetja íbúa
til að snyrta til í kringum sig.
Fyrirkomulag verður með þeim
hætti að á Hvanneyri, Varma-
landi, Kleppjárnsreykjum og Bif-
röst verður átakið dagana 30.
apríl – 5. maí. Þá verða ílát fyr-
ir gróðurúrgang, málma, timbur
og sorp á fyrrgreindum stöðum.
í Borgarnesi er hreinsunarátak-
ið nokkru síðar, eða dagana 7. –
12. maí. ílát fyrir gróðurúrgang
verði við Ugluklett, Klettaborg,
íþróttamiðstöð og grunnskólann.
Því til viðbótar verði ílát fyrir
sorp við íþróttamiðstöð. Þá sam-
þykkti nefndin að fela umhverf-
is- og skipulagssviði að kanna
möguleika á samstarfi við félaga-
samtök um hreinsun strand-
lengjunnar umhverfis Borgarnes
á norræna strandhreinsunardeg-
inum 4. maí. -mm
Fá 70 milljónir til
tækjakaupa
VESTURLAND: Heilbrigð-
isráðherra hefur ákveðið skipt-
ingu rúmlega 420 milljóna
króna af fjárlögum sem varið
verður til að efla tækjakost heil-
brigðisstofnana á landsbyggð-
inni þar sem endurnýjunarþörf
er orðin brýn. Rúmur helm-
ingur fjárins er föst fjárveiting
en 200 milljónir króna er tíma-
bundin fjárveiting ætluð til end-
urnýjunar á myndgreiningar-
búnaði stofnananna. Til Heil-
brigðisstofnunar Vesturlands
renna 70 milljónir króna. -mm
Rekstrarniðurstaða Hvalfjarðar-
sveitar var jákvæð um 74,9 millj-
ónir á síðasta ári. Ársreikningur
sveitarfélagsins fyrir árið 2018 var
afgreiddur á fundi sveitarstjórn-
ar 26. mars síðastliðinn. Tekjur A
og B hluta sveitarsjóðs námu 838,8
milljónum króna á síðasta ári, en
þar af námu rekstrartekjur A hluta
830,9 milljónum. Rekstrargjöld
samstæðunnar námu alls 781,3
milljónum króna. Veltufé frá rekstri
var 14,55% og veltufjárhlutfallið
1,95%. Heildareignir sveitarfélags-
ins námu um 2,4 milljörðum króna
í árslok og heildarskuldir sveitar-
félagsins voru 202,5 milljónir, þar af
110,9 milljóna langtímaskuldir. Eig-
ið fé Hvalfjarðarsveitar í árslok nam
2.205,5 milljónum króna samkvæmt
efnahagsreikningi og eiginfjárhlut-
fall sveitarfélagsins var 92%.
„Samanburður á fjárhagslegum
viðmiðum sveitarstjórnarlaga milli
áranna 2017 og 2018 eru að skulda-
viðmið sveitarfélagsins lækkar úr
34,8% árið 2017 í 13,8% árið 2018
enda voru langtímaskuldir sveitar-
félagsins greiddar niður um rúmar
100 m.kr. milli ára. Rekstrarjöfnuð-
ur sveitarfélagsins síðustu þriggja ára
(samanlögð rekstrarafkoma á þriggja
ára tímabili) hækkar um tæplega 85
m.kr.,“ segir Linda Björk pálsdóttir
sveitarstjóri í frétt á vef Hvalfjarðar-
sveitar.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Afgangur af rekstri
Hvalfjarðarsveitar
Búið er að tengja öll heimili í Borg-
arnesi við ljósleiðara. „Við tökum
fagnandi á móti þeim 370 heim-
ilum sem við áttum eftir að tengja
þarna og nú geta því íbúar tek-
ið upp símann og við lofum því að
tengja allt fljótt og vel,“ segir á Fa-
cebook síðunni Ljósleiðarinn. Allir
íbúar í Borgarnesi ættu því að geta
tengst internetinu í gegnum ljós-
leiðara núna, en til þess þurfa íbúar
að hafa samband við sitt símafyrir-
tæki og panta tengingu.
arg
Borgarnes nú tengt við ljósleiðara