Skessuhorn


Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 10. ApRíL 2019 15 FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Stykkishólmur 2019 Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu Dekk & Smur, Nesvegi 5 Mánudagurinn 15. apríl Þriðjudagurinn 16. apríl Miðvikudagurinn 17. apríl Allar stærðir ökutækja skoðaðar Tímapantanir í síma 438–1385 Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 SK E S S U H O R N 2 01 9 Næstu blöð af Skessuhorni: Þriðjudaginn 16. apríl Miðvikudaginn 24. apríl Miðvikudaginn 1. maí Vegna páskavikunnar sem framundan er verður útgáfa Skessuhorns á óvenju- legum degi í næstu viku. Verður blaðið gefið út degi fyrr en venjulega og kemur út þriðjudaginn 16. apríl. Fyrsta blað eftir páska kemur út miðvikudaginn 24. apríl. Aðsent efni og auglýsingar til birtingar óskast sendar með tilliti til þessara útgáfudaga. Þér býðst einstakt tækifæri á að gerast meðlimur í Riddara- reglu sem er fyrir bæði kyn. Hafir þú áhuga sendu okkur þá póst á netfangið hcotkt@gmail.com. Við hlökkum til að heyra frá þér. Fyllsta trúnaðar er heitið með allar persónulegar upplýsingar. Heimasíða reglunnar er www.templarpriests.weebly.com Vinnsla á hinu árlega Ferðablaði Vesturlands; Travel West Iceland 2019-2020, er nú lokið og búið að senda í prentsmiðju. Útgáfu- þjónusta Skessuhorns gefur blað- ið út, sem nú kemur út í 20. skipti, en í nánu samstarfi við Markaðs- stofu Vesturlands. Bæklingurinn er í A5 broti, 116 síður og í honum er að finna upplýsingar um á þriðja hundrað þjónustuaðila á Vestur- landi auk annarra gagnlegra upp- lýsinga; mynda og korta. Blaðið verður prentað í 60 þúsund eintök- um og dreift víðsvegar um landið auk þess sem hægt verður að nálg- ast það á Upplýsingamiðstöð Vest- urlands og í rafrænni útgáfu til að senda væntanlegum gestum í landshlutanum. Dreifing blaðsins hefst fyrir lok mánaðarins. mm Travel West Iceland bæklingur á leið í prentun Ingunn Valdís Baldursdóttir ritstjóri Travel West 2019-2020 og Tinna Ósk Grímars- dóttir grafískur hönnuður sem setti blaðið upp og hannar auglýsingar. Starfshópur um raforkumálefni garðyrkjubænda hefur skilað skýrslu sinni til ferðamála-, iðnaðar- og ný- sköpunarráðherra. „Starfshópurinn var skipaður vorið 2018 og var ætl- að að kortleggja þróun framleiðslu- kostnaðar garðyrkjubænda og hlut raforku í honum, þróun gjaldskrár- breytinga, taxta og niðurgreiðslna vegna raforkunotkunar garðyrkju- bænda, kanna möguleika til auk- innar nýsköpunar, þróunarverk- efna og samstarfs í greininni og skoða hvaða möguleikar og verð- mæti kunni að felast í kolefnisfót- spori garðyrkjunnar eða öðrum loftlagstengdum áherslum,“ segir í tilkynningu. Fram hefur komið í fréttum, meðal annars hér í Skessu- horni á liðnum misserum, að raf- orka til garðyrkjubænda hefur ver- ið það hátt verðlögð að þeir telja margir engan hag af raflýsingu. Af þeim sökum standa gróðurhús víða tóm á veturna, en grænmeti flutt til landsins í stórum stíl á sama tíma. í frétt ráðuneytisins um skýrslu starfsfhópsins segir að hún innihaldi tillögur að aðgerðum sem miða að aukinni nýsköpun og þróun í grein- inni en einnig tillögur er varða framkvæmd niðurgreiðslna raforku til garðyrkjubænda. „Meðal tillagna starfshópsins eru endurskoðun á heildarfjárhæð niðurgreiðslna vegna raforkukostnaðar, endurskilgreining á mörkum niðurgreiðsluhlutfallsins, ítarlegri skilgreiningar í búvöru- samningum um hvaða ræktun eigi rétt á niðurgreiðslu rafmagns til lýs- ingar, stofnun rannsókna- og þró- unarsjóðs garðyrkjunnar sem myndi veita styrki til verkefna á sviði fram- leiðniaukandi nýsköpunar, nýrra umhverfisvænna ræktunaraðferða og þróunar orkusparandi tækni fyr- ir garðyrkju, áhersla á aukna notk- un orkusparandi ljósgjafa og aðrar orkusparandi aðgerðir og kannaður fýsileiki þess að stofna Garðyrkju- klasa íslands. Allar eru þessar tillög- ur með fyrirvara um fjármögnun.“ Þá segir að skýrslan verði tekin tekin til frekari skoðunar í ráðu- neytinu og að hún verði m.a. mik- ilvægt framlag í matvælastefnu fyr- ir ísland þar sem áherslu er lögð á uppruna matvæla og kolefnisfót- spor við framleiðslu matvæla. „Hér er um mikilvægt loftlagsmál að ræða og að sama skapi undirstrik- ar skýrslan fjölbreytta möguleika á sviði nýsköpunar og tækniþróunar innan íslenskrar garðyrkju.“ mm Tillögur varðandi raforkusölu til garðyrkjubænda Þessi mynd var tekin í verslun Krónunnar á Akranesi síðari hluta marsmánaðar. Þarna má sjá úrval tómata, svo sem frá Marokkó, Spáni og Hollandi. Ein tegund íslenskra smátómata var þá til í versluninni, einn sextándi vöruframboðsins. Sölu- stjóri hjá Sambandi garðyrkjubænda staðfesti í samtali við Skessuhorn sama dag og myndin var tekin, að ástæðan væri sú að verulega skorti upp á framboð á íslenskum tómötum á þessum árstíma.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.