Skessuhorn


Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 10. ApRíL 20198 Skoða nafna- samkeppni um skólann BORGARNES: Byggðar- ráð Borgarbyggðar tók til umræðu á fundi í síðustu viku þær miklu endurbæt- ur sem nú eiga sér stað á Grunnskólanum í Borg- arnesi. „Jafnframt voru ræddar þær hugmynd- ir sem komið hafa upp að í sambandi við hinar miklu endurbætur á skólanum sem standa yfir hvort eigi að efna til hugmyndasam- keppni um a) nýtt nafn á skólanum og b) nafn á nýja salnum.“ Byggðarráð fól skólastjórnendum Grunn- skólans í Borgarnesi og sviðsstjóra fjölskyldusviðs að taka málið til úrvinnslu. -mm Vantar móts- haldara fyrir Landsmót 50+ LANDIÐ: Landsmót UMFí fyrir fimmtíu ára og eldri hefur verið haldið víða um land frá 2011. Það verður í Neskaupstað dag- ana 28. – 30. júní í sum- ar og í Borgarnesi sum- arið 2020. Nú er kom- ið að því að finna móts- stað árið 2021 og auglýsir UMFí eftir áhugasömum sveitarfélögum í það verk- efni. Landsmót UMFí 50+ er blanda af íþróttakeppni og skemmtun þar sem fólk á besta aldri blómstr- ar í hreyfingu. „Landsmót UMFí 50+ skiptir máli fyrir fólk sem hefur bæði gaman af því að hreyfa sig og hitta aðra. Það er gam- an að sjá fólk koma á mót- ið sem hefur ekki stundað íþróttir síðan í æsku og rifja upp hvað það var gaman að stunda íþróttir og hreyfa sig með öðrum. Á mót- um UMFí verða til góð- ar minningar fyrir þátttak- endur. Landsmót UMFí 50+ hefur mikla þýðingu fyrir samfélagið og ætti það að skilja eftir sig uppbygg- ingu og þekkingu í sveitar- félaginu sem heldur mót- ið,“ segir Auður Inga Þor- steinsdóttir, framkvæmda- stjóri UMFí. Þá segir Auður Inga að Landsmót UMFí 50+ sé frábært tæki- færi fyrir mótshaldara til að vekja athygli á lýðheilsu og möguleikunum í sveitarfé- lagi sínu. Gera verður ráð fyrir allt að þúsund þátt- takendum á mótinu frá öllu landinu. -mm Þjóðkjörnir hækka ekki LANDIÐ: Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sent efnahags- og viðskipta- nefnd Alþingis minnisblað, með samþykki ríkisstjórnar- innar, þar sem lagðar eru til tvær breytingar á frumvarpi til breytinga á lögum vegna brottfalls laga um kjararáð, sem nú er til meðferðar Al- þingis. Sú fyrri lýtur að því að gerð verði breyting til bráða- birgða þannig að launahækk- un 1. júlí 2019 komi ekki til framkvæmda gagnvart þjóð- kjörnum fulltrúum. Fjár- mála- og efnahagsráðherra verði hins vegar veitt heim- ild í eitt skipti til að hækka laun þjóðkjörinna fulltrúa 1. janúar 2020 til samræmis við áætlaða breytingu á launum þann 1. júlí 2020. -mm Aflatölur fyrir Vesturland dagana 30. mars - 5. apríl Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: 5 bátar. Heildarlöndun: 54.761 kg. Mestur afli: Eskey ÓF: 26.536 kg í fimm róðrum. Arnarstapi: Engar landanir á tímabilinu. Grundarfjörður: 9 bátar. Heildarlöndun: 672.573 kg. Mestur afli: Málmey SK: 208.896 kg í einni löndun. Ólafsvík: 17 bátar. Heildarlöndun: 521.090 kg. Mestur afli: Steinunn SH: 113.088 kg í fimm róðrum. Rif: 14 bátar. Heildarlöndun: 616.673 kg. Mestur afli: Magnús SH: 125.965 kg í fjórum lönd- unum. Stykkishólmur: 3 bátar. Heildarlöndun: 4.641 kg. Mestur afli: Sjöfn SH: 2.826 kg í fimm róðrum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Málmey SK - GRU: 208.896 kg. 2. apríl. 2. Drangey SK - GRU: 113.755 kg. 31. mars. 3. Sigurborg SH - GRU: 70.243 kg. 3. apríl. 4. Hringur SH - GRU: 64.378 kg. 3. apríl. 5. Saxhamar SH - RIF: 50.750 kg. 2. apríl. -kgk Á sameiginlegu vísindaþingi skurð-, svæfinga- og fæðingar- og kvensjúkdómalækna, sem hald- ið var 29. mars síðastliðinn, fluttu nokkrir læknanemar á fjórða ári er- indi sem byggð eru á BS verkefn- um þeirra frá síðasta ári. Þrjár ung- ar konur unnu til verðlauna fyr- ir bestu vísindaerindin og skákuðu þar með reynslumeiri unglæknum í sérnámi. Þetta voru Oddný Rún Karlsdóttir sem fékk verðlaun fyr- ir besta veggspjaldið um framköll- un fæðinga og keisaraskurði, Lilja Dögg Gísladóttir sem greindi frá skurðaðgerðum við brjóstakrabba- meini og Berglind Gunnarsdótt- ir sem fjallaði um greiningu alvar- legra meðfæddra hjartagalla á ís- landi. Skemmtilegt er að segja frá því að tvær þeirra eiga sterka teng- ingu á Vesturland. Berglind er eins og kunnugt er úr Stykkishólmi og jafnframt ein fremsta körfuknatt- leikskona landsins og tengdafólk Lilju Daggar er búsett á Hvann- eyri. mm/ Ljósm. Landspítali.is Efnilegir læknanemar Guðni Th. Jóhannesson, forseti ís- lands, er verndari átaksins „íslenskt – gjörið svo vel“ sem hófst um helgina. Innlendir matvælafram- leiðendur og verslanir hafa tekið höndum saman og ætla að vekja at- hygli á úrvali íslenskra vara í fjöl- mörgum verslunum víða um land fram til 20. apríl næstkomandi. Að baki átakinu íslenskt – gjörið svo vel standa Samtök iðnaðarins, Samtök atvinnulífsins, Samtök verslunar og þjónustu og Bændasamtök íslands. Átakið hófst í nóvember síðastliðn- um þegar landsmönnum gafst kost- ur á að fara inn á vefsvæðið gjo- ridsvovel.is til að setja saman lista yfir þær íslensku vörur sem ætti að bjóða erlendum gestum. Tilgang- ur átaksins er að efla vitund íslend- inga á íslenskum vörum en átök sem þessi hafa verið reglulega und- anfarin ár. Fyrirtæki sem framleiða eða selja íslenskar vörur geta tekið þátt í átakinu. Miðað er við vörur sem uppfylla þau skilyrði sem fram koma í fánalögum. Þau fyrirtæki og þeir framleiðendur sem taka þátt í átakinu fá aðgang að myndmerki þess og geta nýtt það á umbúð- ir, heimasíður, samfélagsmiðla eða annað kynningarefni sitt. mm Á íslenskum dögum er athyglinni beint að innlendri framleiðslu Frá setningu Íslenskra daga, talið frá vinstri; Karl Eiríksson og Valentína Björnsdóttir, eigendur Móður Náttúru, Margrét Kristín Sigurðardóttir frá SI, Hörður Vilberg frá SA, Árni Sigurjónsson, varaformaður SI, Guðni Th. Jóhannes- son, Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónus, Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI og Elín Edda Alexandersdóttir, verslunarstjóri Bónus í Garðatorgi. Kröftug vorlægð gekk yfir norð- vestanvert landið síðastliðinn mið- vikudag. í Grundarfirði gustaði hressilega, en ekki er vitað til að skemmdir hafi orðið í rokinu. Með- fylgjandi mynd tók Tómas Freyr Kristjánsson fréttaritari Skessu- horns í höfninni um miðjan dag- inn. Aldan í höfninni lamdi á Sig- urborgu og Farsæl þar sem skipin lágu bundin við bryggju. mm Gustaði um menn og málleysingja

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.