Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 10. ApRíL 2019 17
Hefur þú prófað nýju
kjúklingasteikurnar?
NÝTT OG
SPENNANDI
FRÁ HOLT
A
Aðalfundur
Við höldum 1. vetrardag hátíðlegan og
blásum til veislu í Kaupfélagi Borgfirðinga
laugardaginn 25. október 2008 kl. 12-15
Flugger litir veita ráðgjöf og verða með tilboð
Mjólka kynnir vörur sínar
Kynning á hreinsiefnum frá Kemi
Kynning og tilboð á Kerckhaert
járningavörum, umboðsmaður
á staðnum, býður upp á ís
* Vetrarskeifurnar með
breiða teininum komnar *
Tískusýning á vetrarfatnaði,
tilboð á fatnaði frá 66°N
10 - 50 % afsláttur af völdum vörum
í versluninni
Royal Canin, glaðningur fylgir
öllum pokum af hunda-og kattamat.
Umboðsmaður á staðnum
Kaffi og rjómaterta
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Aðalfundur Kaupféla s Borgfirði ga
verður haldinn að Hótel Borgarnesi
fimmtudaginn 11. apríl 2019 og hefst kl. 20:30
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum
félagsins.
2. Önnur mál.
Skv. 14. gr. samþykkta KB þá hafa allir félagsmenn aðgang að
fulltrúafundum og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
Borgarnesi, 30. mars 2019
Stjórn Kaupfélags Borgfirðinga
Snemma á þessu ári var fyrirtækinu
Habitus ýtt úr vör. Starfsemi fyrir-
tækisins snýr að innflutningi á til-
búnum húsum hingað til lands.
Það er Skagamaðurinn ísleifur Örn
Guðmundsson sem stendur að fyr-
irtækinu ásamt Arnbjörgu Bald-
vinsdóttur unnustu hans. „Húsin
eru í hæsta gæðaflokki, smíðuð við
bestu mögulegu aðstæður í verk-
smiðju Manta North í Lettlandi.
Þau afhendast fullkláruð að innan
sem utan og fær viðskiptavinurinn
húsin afhent innan við sex mánuð-
um frá pöntun. Allur frágangur fer
fram í verksmiðjunni áður en geng-
ið er frá húsunum fyrir flutninginn
til íslands. Hingað koma þau fullbú-
in, einangruð, með gólfefnum, inn-
réttingum, vatns- og rafmagns-
lögnum og full frágengin að innan
sem utan,“ segir ísleifur. „Það sem
viðskiptavinir þurfa að huga að eru
undirstöður, koma heitu og köldu
vatni að, ásamt heimtaug og rotþró
ef við á. Húsið er síðan híft á undir-
stöður, fest og tengt en þeirri vinnu
ætti að vera hægt að ljúka samdæg-
urs,“ bætir hann við.
Ódýr og umhverfisvænn
kostur
„Undanfarin misseri hefur í aukn-
um mæli verið kallað eftir ódýr-
um umhverfisvænum húsnæðis-
kostum, minni íbúðum sem hægt
er að reisa á styttri tíma en tíðkast
hefur. Með því að reisa minni hús
og stytta framkvæmdatímann má
lækka byggingakostnaðinn sem og
fjármagnskostnaðinn. Ófyrirséður
kostnaður, sem gjarnan fylgir smíði
húsa, er lítill sem enginn með því að
byggja húsið úti og flytja til lands-
ins. Fólk fær tilboð og það stend-
ur,“ segir ísleifur. „Byggingarefn-
ið er umhverfisvænt, húsin eru úr
timbri og burðarvirkið úr límtré.
Smíðin er öll mjög vönduð og allur
efniviður sem valinn er við smíðina
er hágæða, góð einangrun gerir það
síðan að verkum að húsin eru flokk-
uð í A klassa með tilliti til orku-
sparnaðar, samkvæmt evrópskum
stöðlum,“ bætir hann við. Þá seg-
ir ísleifur enn fremur að möguleiki
sé að snjallvæða húsin, svo stjórna
megi ljósum og öðrum rafbúnaði
í gegnum app í síma. „Fólk getur
stjórnað öllu í gegnum símann, til
dæmis slökkt og kveikt á ljósum og
sjónvarpi, stjórnað öllum tenglum
og rofum. Einnig er hægt að kveikja
á heita pottinum áður en lagt er af
stað í sumarbústaðinn þannig að
hann bíði eftir manni þegar mað-
ur mætir á staðinn. Við bjóðum líka
upp á Google Home aðstoðarkerfi
sem býður upp á marga skemmti-
lega möguleika,“ segir hann.
Hægt að tengja
húsin saman
Til að byrja með segir ísleifur að
flutt verði inn 25 fermetra og 48
fermetra hús, auk palla, heitra potta
og sánaklefa með húsunum. „Hægt
er að tengja húsin saman í stærri
einingar, til dæmis er hægt að tengja
25 fermetra og 48 fermetra hús-
in saman í eitt 73 fermetra,“ segir
hann. Von er á sýningareintaki til
landsins í maí sem áhugasamir geta
komið og skoðað. ísleifur kveðst
þegar hafa fundið fyrir töluverð-
um áhuga á húsunum, bæði frá ein-
staklingum og fyrirtækjum. „Núna
erum við að kynna ferðaþjónustu-
fyrirtækjum fyrir þessum minni
húsum, sem við teljum að séu góð-
ur kostur sem gistihús. Þá erum við
einnig að kynna húsin sem sumar-
bústaði, gesthús, starfsmannabú-
staði og lítil íbúðarhúsnæði. í fram-
tíðinni stefnum við á að geta tengt
saman enn fleiri einingar og mynd-
að þannig stærri hús eða fjölbýlis-
hús en tökum bara eitt skref í einu,
byrjum á þessum húsum áður en
við bætum þeim stærri við.“
En hvernig datt þeim ísleifi og
Arnbjörgu í hug að fara að flytja
timburhús til landsins? „Við vorum
að velta því fyrir okkur að fjárfesta.
Ég er að vinna í ferðaþjónustu og
hef tengsl í þeim geira. Höfðum
við látið okkur detta í hug að kaupa
lóð, reisa hús og leigja út gistingu.
Ég fór að skoða málið, fann álitleg-
ar lóðir og byrjaði að leita að hús-
um. Þá datt ég inn á heimasíðuna
hjá þessu fyrirtæki. Ég hafði sam-
band og það endaði með því að mér
var boðið að vera umboðsaðilinn á
íslandi. Við ákváðum að slá til og
settum aðrar hugmyndir á ís,“ seg-
ir hann. „Ég held að þetta sé fram-
tíðin. Fólk hættir ekkert að byggja
„Ég held að þetta
sé framtíðin“
- segir Ísleifur Örn Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Habitus
á gamla mátann en það er allt útlit
fyrir að þessi nálgun sé komin til að
vera. Núna er verið að byggja fjöl-
býlishús með þessu móti víða, til
dæmis í Þorlákshöfn, Reykjanesi og
auðvitað á Akranesi með góðum ár-
angri. Síðan er verið að tala um það
núna að draga úr verðtryggðum
lánum. Þá þarf að finna einhverjar
leiðir til að byggja minni íbúðir á
hagkvæman og góðan máta,“ segir
ísleifur að endingu.
kgk/ Ljósm. aðsendar.
Þannig gæti stofan í Gambi litið út.
Gambur er 48 fermetrar að stærð og eitt húsanna sem Habitus flytur fullbúið til landsins.
Ísleifur Örn Guðmundsson er
framkvæmdastjóri Habitus.