Skessuhorn


Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 10. ApRíL 201910 Árlegur aðalfundur Samtaka sveit- arfélaga á Vesturlandi og ýmissa undirstofnana sem heyra und- ir sveitarfélögin í landshlutan- um, var haldinn á Hótel Hamri í Borgarnesi í síðustu viku. Á aðal- fundi SSV var samþykkt harðorð ályktun vegna áforma ríkisstjórn- arinnar um skerðingu tekna Jöfn- unarsjóðs sveitarfélaga. Mótmælt er fyrirhugaðri skerðingu eins og hún birtist í Fjármálaáætlun fyrir árin 2020-2024. „Það liggur ljóst fyrir að ef til þessarar skerðingar kemur þá verður tekjutap sveitar- félaga á Vesturlandi verulegt, en í samantekt frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er áætlað að hún verði rúmar 335 m.kr. fyrir árin 2020 – 2021. Verði af fyrirhuguð- um áformum mun það án efa leiða til skerðingar á þjónustu við íbúa, draga úr viðhaldi og framkvæmd- um á vegum sveitarfélaganna og gera þeim erfiðara fyrir varðandi lækkun skulda.“ Þá segir í ályktun SSV að um árabil hafi verið markvisst unnið að því að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga og tryggja að það ein- kennist af samráði og trausti eins og vera á um samskipti tveggja jafn rétthárra stjórnvalda. „Það skýtur því skökku við þegar ríkisvaldið ætlar sér einhliða að veikja tekju- stofna sveitarfélaga og því er um alvarlegt inngrip að ræða í fjár- hagslegt sjálfstæði sveitarfélaga og sjálfsákvörðunarrétt þeirra. Við það verður ekki unað. Aðalfund- ur Samtaka sveitarfélaga á Vest- urlandi hvetur því ríkisvaldið til þess að endurskoða vinnubrögð sín og að á ný verði tekin upp eðli- leg vinnubrögð í samskiptum rík- is og sveitarfélaga. Afar mikilvægt er að nú þegar hefjist viðræður að- ila um breytingar á fjármálaáætlun og þær leiði til þess að áform um skerðingu á framlögum til Jöfnun- arsjóðs verði dregin til baka.“ SSV og Atvinnuráðgjöf Á aðalfundi SSV kom meðal ann- ars fram í kynningu Eggerts Kjart- anssonar, formanns stjórnar SSV, að á skrifstofu samtakanna eru í dag 6,6 stöðugildi starfsmanna og að síðastliðið haust hafi verið ráð- ið í starf verkefnisstjóra sem sinn- ir fjármálum, Uppbyggingarsjóði og upplýsingamálum. Reglulegir fundir fóru fram á árinu með öðr- um landshlutasamtökum og Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga, fund- ir með þingmönnum Norðvestur- kjördæmis, ráðherrum og þing- nefndum og þá fundaði ríkisstjórn íslands í Langaholti á árinu og bauð þá sveitarstjórnarfólki til fund- ar við sig. Atvinnuráðgjöfin hef- ur löngum verið stærsti þátturinn í starfsemi SSV en fjórir ráðgjaf- ar eru nú starfandi þar í 3,4 stöðu- gildum. Fjölmörg og fjölbreytt er- indi berast ráðgjöfum á hverju ári. Nýr samningur við Byggðastofnun var undirritaður á liðnu ári. Unnið var að sex verkefnum á sviði Sókn- aráætlunar árið 2018. Það voru: Nýsköpun og frumkvöðlar, Mat- arauður Vesturlands, Innviðir á Vesturlandi, Ungmennaþing, Efl- ing ferðaþjónustu og Menningar- starf. Uppbyggingarsjóður Vestur- lands úthlutaði styrkjum að upp- hæð 56,8 m.kr til 93 verkefna. í máli páls S. Brynjarssonar, framkvæmdastjóra SSV, kom fram að reksturinn var í stórum dráttum með svipuðum hætti og undanfarin ár, en umsjón með Sóknaráætlun Vesturlands er sífellt vaxandi verk- efni. Rekstrarniðurstaða SSV var jákvæð um 5,6 m.kr. að teknu tilliti til taps á hlutdeildarfélaginu NVB ehf. sem heldur utan um almenn- ingssamgöngur á Vesturlandi og víðar. Rekstur þjónustusvæðis um málefni fatlaðra var í jafnvægi, en veruleg tekjuaukning varð á árinu sem skýrist af hærra framlagi Jöfn- unarsjóðs sveitarfélaga. Starfsendurhæfing í kynningu Thelmu H Sigur- björnsdóttur hjá Starfsendurhæf- ingu Vesturlands kom fram að reksturinn hafi gengið ágætlega á síðasta ári og stóðu tekjur und- ir gjöldum. Fækkun varð á þjón- ustuþegum á árinu 2018 en fjöldi þjónustuþega er þó breytilegur á milli ára og misjafnt hversu mikla þjónustu hver og einn einstakling- ur þarf. Nokkur umræða varð um skiptingu þeirra sem eru í endur- hæfingu á milli svæða, en flestir koma af Akranesi og úr Borgarfirði en mun færri af Snæfellsnesi. Símenntunarmiðstöð Inga Dóra Halldórsdóttir hjá Sí- menntunarmiðstöðinni á Vestur- landi kynnti starfsemi miðstöðv- arinnar á síðasta ári. Fram koma að viðsnúningur varð í rekstrin- um eftir hagræðingaraðgerðir sem ráðist var í eftir taprekstur tveggja ára þar á undan. í ársskýrslunni er einnig komið inn á að loks virðist hylla undir að fjármagni á fjárlög- um til símenntunarmiðstöðvanna verði úthlutað samkvæmt ákveðnu reiknilíkani árið 2020 en hingað til hefur verið mikið misræmi í út- deilingu fjármuna og Vesturland hefur hingað til borið skarðan hlut frá borði. Sorpurðun Niðurstaða rekstrar Sorpurðun- ar Vesturlands sýndi 46 milljóna króna hagnað og mun hann að stórum hluta verða nýttur til fjár- festinga á svæðinu. Töluverð um- ræða varð um framtíð urðunarstað- arins í Fíflholtum, stækkun urðun- arreinar, móttöku sorps frá Suð- urlandi, áhrif foks á umhverfið og íbúafund sem haldinn var nýverið í Lyngbrekku. Frá því hefur verið greint í umfjöllun Skessuhorns á síðustu vikum. Meðal annars kom fram að vinna þarf nýtt mat á um- hverfisáhrifum fyrir urðun sök- um aukins magns á síðasta ári sem meðal annars helgast af einskipt- ismagni vegna niðurrifs Sements- verksmiðjunnar á Akranesi. Heilbrigðiseftirlit í ársskýrslu Heilbrigðisnefndar Vesturlands kemur fram að kosin var ný stjórn eftir síðustu sveitar- stjórnarkosningar. Heilbrigðiseft- irlitið er lítil starfseining, með ein- ungis tvo starfsmenn og aðsetur í Hvalfjarðarsveit. Sinnir stofnun- in eftirliti á stóru landsvæði með mikinn fjölda eftirlitsskyldra að- ila. Vinnuálag á starfsmenn er því mikið og hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Stjórnsýslu- kröfur á heilbrigðiseftirlit sveitar- félaga fara auk þess vaxandi. Má í því sambandi nefna nýlegar breyt- ingar á lögum um hollustuhætti og megnunarvarnir sem og breyt- ingar á reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og meng- unarvarnaeftirlit. Vesturlandsstofa páll S Brynjarsson fór yfir verk- efni Vesturlandsstofu. Annars veg- ar snérist hann um rekstur upp- lýsingamiðstöðvar í Hyrnutorgi í Borgarnesi sem opin er alla virka daga og lengur yfir sumartímann. Árið 2018 komu um ellefu þús- und gestir í miðstöðina en rekstur hennar er fjármagnaður af ríkinu, Borgarbyggð og SSV. Einn starfs- maður sinnir upplýsingamiðstöð. Meginverkefni Vesturlandsstofu er hins vegar rekstur Markaðsstofu Vesturlands. Hlutverk hennar er að samþætta markaðssetningu á Vesturlandi, styrkja ímynd Vestur- lands og kynna landshlutann sem ákjósanlegan áningarstað. Fram kom í máli páls að landshlutinn hefur fengið fjölmargar góðar við- urkenningar á undanförnum árum og eiga þær vafalítið þátt í því að ferðafólki er að fjölga á Vestur- landi umfram aðra landshluta. Á síðasta ári var lokið við Áfanga- staðaáætlun Vesturlands, stöð- ugreiningu ferðaþjónustu, stefnu- mótun og aðgerðaráætlun fyrir áfangastaði ferðamanna eða svæði á Vesturlandi. Það stóra plagg mun nýtast í allri stefnumótun og upp- byggingu ferðaþjónustu í lands- hlutanum. mm Fleygur rekinn í samskipti ríkis og sveitarfélaga Aðalfundur SSV og aðildarstofnana samtakanna var í síðustu viku Vesturland hefur á liðnum árum fengið fjölmargar viðurkenningar sem tengjast ferðaþjónustu. Nú síðast sem Vetrará- gangastaður ársins, tilfnefndur af Luxery travel guide 2018. Svipmyndir af aðalfundi SSV. Ljósm. kgk.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.