Skessuhorn


Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 10. ApRíL 2019 13 Sunnubraut 13, 300 Akranesi • Sími: 430-9900 SUMARÚTHLUTUN ORLOFSHÚSA SUMARIÐ 2019 -UMHVERFISVÆNNI UMSÓKN- Þetta árið sendum við ekki umsóknareyðublöð og bæklinga á alla félagsmenn VLFA, eins og fyrri ár. Umsóknir og bæklinginn má nálgast á skrifstofu VLFA. Rafræn umsókn er inni á félagavefnum okkar: www.vlfa.is Opnum fyrir umsóknir þann 5. apríl Frestur til að skila inn umsóknum er 14. apríl. Fyrsta úthlutun fer fram þann 15. apríl Auðarskóli Ábyrgð – Ánægja – Árangur SK ES SU H O R N 2 01 9 Auðarskóli óskar eftir að ráða í eftirfarandi stöður skólaárið 2019-2020 Kennarar í Auðarskóla Við Auðarskóla er laus 77% staða kennara á unglingastigi og 100% staða kennara á miðstigi fyrir skólaárið 2019-2020. Kennsla á unglingastigi Smíðar Enska Danska Kennsla á miðstigi Stærðfræði Samfélagsfræði Danska Upplýsingatækni Mikilvægt er að umsækjendur búi að: Færni í samskiptum Frumkvæði í starfi Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð Góð íslenskukunnátta Einnig þurfa umsækjendur að vera tilbúnir að vinna eftir stefnu Auðarskóla í teymiskennslu. Umsóknarfrestur er til 12. apríl 2019. Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til þess að kenna í grunn- skóla. Umsóknir um starfið berist á netfangið hlodver@audarskoli.is. Í umsókninni þarf að vera ferilskrá og ábendingar um meðmælendur. Upplýsingar um starfið veitir Hlöðver Ingi skólastjóri í síma 4304757. Auðarskóli Ábyrgð – Ánægja – Árangur SK ES SU H O R N 2 01 9 Auðarskóli óskar eftir að ráða tónlistarkennara Tónlistarkennari Við Auðarskóla er laus 100% staða tónlistarkennara við tónlistar- deild skólans frá og með 1.ágúst 2019. Mikilvægt er að umsækjendur búi að: Færni í samskiptum Frumkvæði í starfi Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð Góð íslenskukunnátta Umsóknarfrestur er til 12. apríl 2019. Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til þess að kenna í grunn- skóla. Umsóknir um starfið berist á netfangið hlodver@audarskoli. is. Í umsókninni þarf að vera ferilskrá og ábendingar um með-mæ- lendur. Upplýsingar um starfið veitir Hlöðver Ingi skólastjóri í síma 4304757.Starfshópur undir forystu Frosta Sigurjónssonar, sem félagsmálaráð- herra skipaði í lok síðasta árs, hefur skilað tillögum sínum. Lagðar eru til fjórtán tillögur og breytingar á þeim úrræðum sem fyrir eru til að auðvelda ungu fólki og tekjulágum að komast inn á húsnæðismarkað- inn. Tillögur hópsins voru kynnt- ar í húsakynnum íbúðalánasjóðs á föstudaginn. Þær miða m.a. að því að auðvelda fyrrnefndum hópum að safna fyrir útborgun í íbúð og létta hjá þeim afborgunarbyrði lána. Meðal tillagna starfshópsins eru tvær nýjar tegundir húsnæðislána; startlán og eiginfjárlán. Með start- lánum myndi ríkið veita viðbótar- lán með háum veðhlutföllum og hagstæðum vöxtum til afmarkaðra hópa sem eiga sérstaklega erfitt með að eignast húsnæði. Startlán verði háð því að um hagkvæmt hús- næði sé að ræða sem er í samræmi við þarfir lántaka. Tiltekinn hluti startlána gæti verið tengdur nýjum íbúðum til þess að auka framboð nýs, hagkvæms húsnæðis. Með eiginfjárláni myndi ríkið veita lán sem geta numið 15-30% af kaupverði og eru án afborgana. Eiginfjárlán lækka bæði þrösk- uld útborgunar og greiðslugetu og gætu nýst t.d. þeim hópi sem ekki ræður við greiðslubyrði startl- ána. Eiginfjárlán verði afmörkuð við hagkvæmt húsnæði og hægt að nota þau til að skapa aukinn hvata til byggingar slíks húsnæðis. Höf- uðstóll eiginfjárlána tekur breyt- ingum með markaðsvirði íbúðar- innar. Lánið endurgreiðist við sölu íbúðar eða eftir 25 ár. Lántaki má greiða lánið upp fyrr á matsvirði eða í áföngum og hefur hvata til þess því eftir fimm ár reiknast hóf- legir vextir á lánið. Á meðal annarra tillagna er að tekjulágir geti fullnýtt skattfrjálsan húsnæðissparnað, að skilyrði um fyrstu kaup verði rýmkuð, að fresta megi afborgunum af námslánum LíN um fimm ár, að vaxtabótum verði beint að tekjulægri hópum og að afsláttur af stimpilgjaldi við fyrstu kaup verði 200 þúsund kr. Um er að ræða fyrstu drög að til- lögum en með fyrirvörum um nán- ari útfærslu, greiningu á kostnaði og áhrifum. Þröskuldur enn of hár Samkvæmt niðurstöðu starfshópsins er þröskuldur ungs fólks og tekju- lágra inn á húsnæðismarkað enn of hár, þrátt fyrir aukinn kaupmátt og sögulega lága raunvexti. íbúðaverð hefur hækkað umfram ráðstöfun- artekjur sem gerir fólki erfiðara að safna fyrir kaupum á íbúð. Þá hafa ráðstöfunartekjur ungs fólks hækk- að minna en annarra aldurshópa og verð lítilla íbúða, sem henta fyrstu kaupendum, hefur hækkað mest. Stór hluti leigjenda vill kom- ast í eigin íbúð en er í raun fastur á leigumarkaði. Hlutfall fólks sem býr í leiguhúsnæði er nú hærra en fyrir áratug síðan og hlutfall lág- tekjufólks í þeim hópi hefur farið hækkandi. Langflestir leigjendur segjast myndu kjósa að búa í eigin húsnæði en vísbendingar eru um að það sé óyfirstíganlegur þrösk- uldur fyrir marga leigjendur að safna eigin fé til íbúðakaupa, með- al annars vegna mikillar hækkunar leiguverðs. Hlutfall fólks á þrítugs- aldri sem býr í foreldrahúsum hef- ur einnig hækkað á undanförnum áratug. Meirihluti þeirra sem hafa keypt sína fyrstu íbúð á undanförn- um árum hafa fengið til þess fjár- hagslega aðstoð frá ættingjum eða vinum. „Húsnæðismálin eru stórt vel- ferðarmál. Sveiflur á húsnæðis- markaði undanfarinna ára hafa leitt til þess að hópur fólks hefur setið eftir og býr við minna húsnæðisör- yggi en aðrir og þá sérstaklega ungt fólk og tekjulægri einstaklingar. Af þeirri ástæðu setti ég þessa vinnu af stað. Tillögurnar ríma vel við nið- urstöður kjarasamninga. Ég ber þá von í brjósti að þær muni hafa mikla þýðingu fyrir þá hópa sem á þurfa að halda,“ sagði Ásmundur Einar þegar tillögur starfshópsins voru kynntar. mm Tillögur til að auðvelda ungu fólki og tekjulágum að eignast húsnæði Frosti Sigurjónsson formaður, starfshópsins, kynnti tillögurnar á blaðamannafundi í húsnæði Íbúðalánasjóðs.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.