Skessuhorn


Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 10. ApRíL 201914 Héraðsdómur Vesturlands kvað á mánudaginn upp dóm sem snertir upprekstrarland á afrétti Þverhlíð- inga og Tungnamanna sem nær að hluta yfir jörðina Krók í ofanverð- um Norðurárdal. Deilur hafa stað- ið milli upprekstrarfélags bænda sem vísa til hefðarréttar og óþing- lýsts samnings frá árinu 1924 þar sem þáverandi landeigandi Króks afsalaði sér þeim hluta jarðarinn- ar sem var afréttarmegin við af- réttargirðingu til Upprekstrar- félags Þverárréttar. Þeim samn- ingi var hins vegar aldrei þinglýst og byggir núverandi eigandi kröfu sína á því. Málið höfðaði Borgar- byggð í ágúst 2017 gegn landeig- anda Króks og krafðist þess fyrir dómi að viðurkenndur verði réttur bænda í Upprekstrarfélagi Þverár- réttar til beitarafnota af þeim hluta jarðarinnar Króks samningurinn frá 1924 nær til. Með gagnstefnu í október 2017 höfðaði stefndi gagnsök í málinu og krafðist þess aðallega að viðurkennt verði að Borgarbyggð sé óheimilt að safna fé sem rennur af fjalli að hausti á land jarðarinnar Króks og reka fé til réttar um landareignina. Þar sé nú búið að girða af land og skóg- rækt stunduð af kappi. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Borgarbyggð eigi beitarafnotarétt að umræddu landi Króks og felst í þeim rétti, eðli málsins samkvæmt, einnig heim- ild til að reka fé um það sama land. Þar af leiðandi hafnaði dómurinn gagnsök eigenda Króks. Stefnda var gert að greiða málskostnað, 800 þúsund krónur. mm Borgarbyggð vinnur mál um beitarrétt Safnrekstur af Holtavörðuheiði. Ljósm. úr safni: Guðmundur Steinar Jóhannsson. Síðastliðinn föstudag skrifuðu Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Róbert A. Stefánsson, for- stöðumaður Náttúrustofu Vest- urlands, undir samning um rann- sóknir og vöktun Náttúrustofu Vesturlands á minkum. Markmið samningsins er að afla og vinna úr vísindalegum gögnum um mink í náttúru landsins, sem m.a. má nýta til að styðja við bætt skipulag og framkvæmd minkaveiða. í frétt Náttúrustofunnar um verkefnið kemur fram að minkur er framandi og ágeng tegund á ís- landi og hefur valdið skaða á lífríki landsins. „Mikilvægt er að halda tjóni af hans völdum í lágmarki, sem best verður gert í góðri sam- vinnu veiðimanna, rannsóknarað- ila og stjórnvalda. Náttúrustofan mun á næstunni leggja fram vökt- unaráætlun fyrir minkastofninn, í samráði við Náttúrufræðistofn- un íslands og Umhverfisstofnun. Leitað verður til veiðimanna um samvinnu við framkvæmd vökt- unar en þáttur þeirra er lykill að því að verkefnið heppnist vel. Þeir verða beðnir um að senda afla sinn til rannsókna á Náttúrustofunni, þar sem fram fara ýmsar mælingar og sýnataka úr minkunum. Greiðslur til Náttúrustofu Vest- urlands nema samtals 12 millj- ónum króna á samningstíman- um, sem er tvö ár. Rekstur Nátt- úrustofunnar hefur verið þung- ur undanfarin misseri og er þessi samningur því mjög kærkominn, að sögn Róbert A Stefánssonar forstöðumanns hennar. mm Við Stykkishólmshöfn að lokinni undirskrift síðastliðinn föstudag. F.v. Menja von Schmalensee, sviðsstjóri á Náttúrustofunni, Róbert A. Stefánsson, forstöðumaður, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar. Samið við Náttúru- stofu Vesturlands um minkarannsóknir Byggðarráð Borgarbyggðar hef- ur ákveðið að samið verði við Rík- iskaup um að annast útboð vegna væntanlegrar nýbyggingar fyr- ir leikskólann Hnoðraból á Klepp- járnsreykjum. Eins og ákveðið hef- ur verið mun starfsemi leikskól- ans verða flutt frá Grímsstöðum og komið fyrir í nýbyggingu sem reist verður á Kleppjárnsreykjum á sama stað og fyrrum heimavist og skóla- stjóraíbúð er nú. Sú bygging verður rifin. í bókun sem meirihlutafulltrú- ar í byggðarráði lögðu fram kem- ur fram að teikningar að væntan- legri byggingu líti vel út og að mik- il breyting til batnaðar verði á allri aðstöðu bæði leik- og grunnskóla á staðnum þegar ný bygging verð- ur tekin í notkun. Samkvæmt áætl- un sem kynnt var í byggðarráði er stefnt á að taka nýja leikskólabygg- ingu á Kleppjárnsreykjum í notkun í ágúst 2020. mm Ríkiskaupum falið að bjóða út nýbyggingu Hnoðrabóls Nýja viðbyggingin mun verða reist á sama stað og fyrrum heimavist og skóla- stjóraíbúð eru á í suðausturhluta grunnskólahússins. Ljósm. mm. í síðustu viku var kosið á þremur stöðum á starfssvæði Stéttarfélags Vesturlands um þrjú af sex sætum í stjórn félagsins til næstu tveggja ára. í fyrsta skipti frá stofnun félagsins árið 2006 barst mótframboð við til- lögu trúnaðarráðs og var því kosið milli A-lista og B-lista. Niðurstað- an varð sú að A-listinn bar sigur úr býtum, hlaut 50,9% atkvæða en B- listinn 48%. Auðir seðlar og ógildir voru tveir, eða 1,1% þeirra sem kusu. Kjörsókn var 17,3%, en 169 nýttu kosningarétt sinn af þeim 977 sem voru á kjörskrá. Réttkjörnir í stjórn Stéttarfélags Vesturlands 2019-2021 eru því fulltrúar A-lista, en hann skipuðu þau Signý Jóhannesdóttir formaður, Baldur Jónsson ritari og Jónína Heiðarsdóttir fyrsti meðstjór- nandi. mm Mjótt var á munum í kosningu til stjórnar Stéttarfélags Vesturlands Signý, Baldur og Jónína skipuðu A-lista til stjórnarkjörs í Stéttarfélagi Vestur- lands. Síðastiðinn föstudag veitti mark- aðsstofan Icelandic Lamb Award of excellence viðurkenningar til sam- starfsveitingaaðila sem þykja hafa skarað fram úr við framreiðslu á íslensku lambakjöti. í dómnefnd voru Eva Laufey Kjaran, Ólafur Örn Ólafsson og Andrés Vilhjálms- son. í ár voru 18 veitingastaðir sem þóttu skara framúr og þar af þrír af Vesturlandi: Bjargarsteinn í Grundarfirði, Gamla Kaupfélagið á Akranesi og Narfeyrarstofa í Stykk- ishólmi. Eftirfarandi veitingastaðir hlutu viðurkenningu: Apotek Res- taurant, Bjargarsteinn, Fiskfélag- ið, Gamla Kaupfélagið á Akranesi, Grillið – Hótel Sögu, Grillmark- aðurinn, Haust Restaurant, Höfn- in, Kol, íslenski Barinn, Lamb Inn Eyjafjarðarsveit, Lamb Street Food, Laugaás, Matakjallarinn, Múlaberg Bistro, Narfeyrarstofa, Von Mat- hús og VOX arg Skara fram úr í framreiðslu á íslensku lambakjöti Átján veitingastaðir fengu viðurkenningu frá markaðsstofu Icelandic Lamb.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.