Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 10. ApRíL 201920
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggð-
ar í liðinni viku lágu tvö erindi frá
formanni sóknarnefndar Borgar-
sóknar. í fyrsta lagi var óskað eft-
ir að hirðing kirkjustaðarins að
Borg verði færð í umsjón sveitar-
félagsins. Byggðarráð samþykkti að
hafna erindinu þar sem það fellur
ekki undir hlutverk sveitarfélagsins.
Hins vegar var framlagt erindi þar
sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi
fyrir drenlögn í skurð sem liggur
norðan núverandi kirkjugarðs sem
taka á við vatni frá Borginni norð-
an garðs og prestsseturs. Byggðar-
ráð vísaði erindinu til hlutaðeig-
andi nefndar.
mm
Ekki hlutverk sveitarfélags
að hirða kirkjulóðir
Árshátíð Brekkubæjarskóla á Akra-
nesi var haldin þrjá daga í síðustu
viku. Þar stigu á svið allir nemendur
úr 1. – 6. bekk og sýndu atriði. Eins
og hefð er fyrir lásu nemendur í 7.
bekk ljóð. Unglingarnir áttu einnig
stóran þátt í sýningunni en þeir sáu
um tæknimál og voru sviðsmenn
auk þess sem þeir fluttu tónlistarat-
riði. Þá voru unglingarnir með lít-
il atriði sem sprottin voru úr Leit-
inni, leikriti sem þau settu upp í vet-
ur, þar sem þau kynntu atriðin inn á
svið undir því yfirskini að þau væru
að leita að árshátíð Brekkubæjar-
skóla. „Þetta var mjög vel heppnað,
það var troðfullt hús á öllum fimm
sýningunum og allir stóðu sig mjög
vel. Við vorum einnig með nem-
endasýningu sem var hugsuð fyr-
ir alla krakkana í skólanum að fá
að horfa á sýningu. Svo buðum við
elstu börnunum af leikskólunum á
sérsýningu sem var aðeins styttri,“
segir Hallbera Jóhannesdóttir sem
hefur séð um skipulagningu árshá-
tíðarinnar mörg undanfarin ár.
arg/ Ljósm. Ragnheiður H. Guð-
jónsdóttir.
Vel
heppnuð
árshátíð
Brekku-
bæjarskóla
Allir nemendur í 1. – 6. bekk stigu á svið á árshátíð Brekkubæjarskóla.
Þessar flottu stelpur tóku þátt í sýningu á árshátíð Brekkubæjarskóla.
Frá sýningu á árshátíð Brekkubæjarskóla.
Flottir taktar frá árshátíðinni.
Á sumardaginn fyrsta, fimmtudag-
inn 25. apríl nk., standa Tónlist-
arskóli Borgarfjarðar og Safnahús
Borgarfjarðar fyrir tónleikum þar
sem nemendur skólans flytja eigin
tónsmíðar við ljóð Böðvars Guð-
mundssonar. Um 20 lög verða
frumflutt. Tónleikarnir hefjast kl.
15.00 og eru opnir öllum. Vonast
er til að sem flestir líti við í Safna-
húsinu þennan dag og fagni sumri
með unga tónlistarfólkinu.
Þetta er í sjöunda sinn sem
Safnahúsið og Tónlistarskólinn
standa saman að slíku verkefni sem
ber vinnuheitið „Að vera skáld og
skapa“. Hefur þetta fengið sér-
staklega jákvæð viðbrögð, bæði
hjá nemendum skólans og fjöl-
skyldum þeirra, svo og hjá sveit-
arstjórn Borgarbyggðar og íbúum
í héraðinu. Það byggir á ákvæði í
menningarstefnu Borgarbyggðar
um frumkvæði, sköpun og menn-
ingararf.
Um 160 nemendur stunda nú
nám við Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar sem starfað hefur í rúm
fimmtíu ár. Safnahús hefur ver-
ið við lýði síðan um
1960. Vinna stofnan-
irnar að þessu verk-
efni þvert á fagsv-
ið sín og verkefnis-
stjórar eru Guðrún
Jónsdóttir, forstöðu-
maður Safnahúss og
Theodóra Þorsteins-
dóttir, skólastjóri
Tónlistarskólans.
Á árinu 2019
liggja ljóð Böðvars
Guðmundssonar til
grundvallar og verð-
ur hann viðstaddur
tónleikana. Dagskrá-
in tekur um klukku-
tíma og boðið verður
upp á sumarkaffi að
henni lokinni.
í Safnahúsi eru
sýningar af ýmsum
stærðum og gerð-
um og verður tón-
leikagestum boðinn
ókeypis aðgangur að
þeim þennan dag.
-fréttatilkynning
Að vera skáld og skapa -
dagskrá á fyrsta sumardag
Á sumardaginn fyrsta munu ljóð Böðvars Guðmunds-
sonar liggja til grundvallar vinnu nemenda í verkefninu
Að vera skáld og skapa. Böðvar mun verða viðstaddur
samkomuna í Safnahúsinu.
Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði
verður haldin á Hótel B59 í Borg-
arnesi á morgun og föstudag. Um
80 ungmenni á aldrinum 14-25 ára
frá ungmennaráðum alls staðar að
af landinu koma saman á ópólitísk-
um vettvangi og ræða saman mál-
efni líðandi stundar. Yfirskrift ráð-
stefnunnar í ár er „Hvernig get ég
verið besta útgáfan af sjálfum mér?“
Og verður þar m.a. fjallað um geð-
heilbrigðismál sem hafa verið mik-
ið í umræðunni undanfarið. Setn-
ingarathöfn verður á morgun, 11.
apríl, þar sem ráðherrarnir Ás-
mundur Einar Daðason og Þór-
dís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
flytja ávarp ásamt Salvöru Nordal,
umboðsmanns barna.
arg
Ungt fólk og lýðræði
í Borgarnesi
Útgerðin var opnuð í pakkhúsinu í
Ólafsvík síðastliðinn föstudag. Þar
fæst nú handverk, sælkeravörur, ís-
lensk hönnun og léttar veitingar svo
sem boozt, skyr, vefjur og fleira. Að
sögn Rutar Ragnarsdóttur eiganda
Útgerðarinnar mættu 150 manns
fyrsta daginn og var hún ánægð með
það. Rut segist enn vera að finna
taktinn með opnunartíma og mun á
næstunni opna alla daga klukkan 10
og hafa opið eitthvað frameftir degi.
Hún ætlar einnig að hafa opið um
páskana en að fastur opnunartími
verði ákveðinn síðar.
þa
Útgerðin opnuð í
Pakkhúsinu
Mæðgurnar Rut Ragnarsdóttir og Aðalheiður Aðalsteinsdóttir munu standa
vaktina í Útgerðinni.