Skessuhorn


Skessuhorn - 10.04.2019, Side 26

Skessuhorn - 10.04.2019, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 10. ApRíL 201926 Næstkomandi laugardag frá klukkan 12-16 mun sölufólk frá verkefninu „Við stólum á þig“ verða í anddyri verslunar Nettó í Borgarnesi og bjóða umhverfisvæna ruslapoka og margnota innkaupatösku til sölu. Tilgangur verkefnisins er að safna fé til aðstoðar einstaklingum sem orð- ið hafa fyrir því að lamast eftir slys eða veikindi og þurfa að notast við hjólastól um ókomna framtíð. Á ís- landi eru u.þ.b. 7000 einstaklingar í hjólastól. Söfnunarfé verður nýtt til að veita styrki til breytinga á heimilum þeirra einstaklinga sem notast við hjóla- stól. Um er að ræða t.d. að breikka hurðaop, fjarlægja þröskulda, setja pumpur á efri skápa í eldhúsi og í baðherbergi, breyta baði og salern- isaðstöðu og eftir atvikum laga að- gengi að húsinu. Fólk sem verður fyrir því áfalli að lamast eftir slys eða veikindi og þarf að notast við hjólastól „situr“ frammi fyrir því að þurfa að kosta til háum fjárhæðum við breytingar á heimili sínu. Það er ekki á allra færi. Tryggingabætur eru ekki ætlaðar til þess háttar verkefna. Boðnir verða til sölu umhverf- isvænir heimilisruslapokum (3x20 stk.) framleiddir úr maíssterkju og trjákvoðu. Þeim fylgir auk þess stór margnota innkaupataska. mm Pokasala til stuðnings verk- efninu „Við stólum á þig“ Á ráðstefnu sem haldin var í Tón- bergi á Akranesi 23. mars síðast- liðinn voru undirritaðir samning- ar um Nýsköpunarsetur á Grund- artanga. Að setrinu standa Nýsköp- unarmiðstöð íslands, Elkem ísland, Akraneskaupstaður, Hvalfjarðar- sveit og Þróunarfélagið Grundar- tanga. Að Þróunarfélagi Grund- artanga standa Akraneskaupstað- ur, Borgarbyggð, Faxaflóahafnir sf., Hvalfjarðarsveit, Reykjavíkur- borg og Skorradalshreppur, en fé- lagið var stofnað árið 2016 í þeim tilgangi að móta framtíðarsýn og stefnu fyrir Grundartangasvæðið. „Tilgangur með stofnun og rekstri Nýsköpunarsetursins á Grundartanga er að styðja við ný- sköpun í atvinnulífi. Nýsköpunar- setrinu er ætlað að auðvelda frum- kvöðlum með hugmyndir að ný- sköpun að raungera viðskiptahug- myndir sínar og hraða ferlinu frá því að hugmynd verður til og þar til rekstur hefst. Hugmyndir skulu tengdar nýsköpun á sviði orku eða umhverfismála og hafa það að mark- miði að leiða til verðmætasköpunar fyrir núverandi eða framtíðarstarf- semi á Grundartanga þjóðinni til heilla,“ segir í samningnum. Þá seg- ir að Elkem ísland muni leggja til húsnæði undir starfsemi Nýsköp- unarsetursins. Þrír einstaklingar skulu skipa stjórn Nýsköpunarset- ursins, einn fulltrúi frá Nýsköpun- armiðstöð íslands, einn fulltrúi frá Elkem ísland og einn fulltrúi sem er tilnefndur sameiginlega af Akra- neskaupstað, Hvalfjarðarsveit og Þróunarfélagi Grundartanga. arg Nýsköpunarsetur á Grundartanga F.v. Gestur Pétursson forstjóri Elkem, Linda Pálsdóttir sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness, Guðjón Steindórsson framkvæmda- stjóri Þróunarfélags Grundartanga og Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköp- unarmiðstöðvar eftir að búið var að skrifa undir samning um Nýsköpunarsetur á Grundartanga. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra vottaði samninginn. Áskorun á föstunni: #sjöfimmtudagar Hestamannafélagið Grani á Hvanneyri býður til sannkallaðr- ar veislu á Sumardaginn fyrsta, 25. apríl nk., á Mið-Fossum í Borgar- firði. Þann dag verður Skeifudag- urinn haldinn hátíðlegur í sextug- asta og þriðja skipti. Hátíðin hefst í hestamiðstöðinni Mið-Fossum kl 13:00 og eru allir velkomnir að líta við og fylgjast með dagskrá. Nem- endur sýna afrakstur vetrarins og velvalin sýngaratriði verða í boði. Að dagskrá lokinni verður kaffisala í Ásgarði á Hvanneyri og hið vin- sæla folatollahappdrætti þar sem vinningar eru gjafabréf fyrir hand- hafa að leiða hryssu sína undir hina ýmsu stóðhesta og búa til framtíð- argæðinga. í Ásgarði verður einnig hægt að kynna sér nám við Land- búnaðarháskólann sem og námsað- stæður nemendagarðanna á svæð- inu. Upphaf Skeifudagsins má rekja til stofnunar Hestamannfélags- ins Grana á Hvanneyri árið 1954 en það var Gunnar Bjarnason, sem þá var kennari við skólann, sem stofnaði félagið ásamt nemendum við Bændaskólann á Hvanneyri, sem áhuga höfðu á hestamennsku. Gunnar var upphafsmaður kennslu í reiðmennsku og tamningum við skólann árið 1951. Mikill áhugi var meðal nemenda á þessháttar námi þó að aðstaða og húsakynni hefðu ekki verið upp á marga fiska í upp- hafi. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og í dag hefur Grani að- gang að frábærri aðstöðu að Mið- Fossum auk þess sem að allir nem- endur Landbúnaðarháskólans hverju sinni eru fullgildir meðlim- ir í hestamannafélaginu Grana. Fé- lagið stendur reglulega fyrir hin- um ýmsu viðburðum yfir skóla- árið jafnt fyrir hestaunnendur sem og aðra. Sem dæmi má nefna þrí- þraut Grana, árlega óvissuferð og hefðbundin hestaíþróttamót auk Skeifudagsins. Skeifudagurinn er sannkölluð uppskeruhátíð nemenda í reið- mennskuáföngum skólans þar sem veitt eru hin ýmsu verðlaun. Þar má nefna Gunnarsbikarinn, sem fer til þess nemenda sem fær hæstu einkunn í fjórgangskeppni, ásetu- verðlaun Félags tamningamanna og Morgunblaðskeifuna sem fer til þess nemenda sem hlýtur hæstu meðaleinkunn úr verklegum reið- mennskuprófum. Morgunblaðs- skeifan hefur verið veitt árlega síð- an 1957, en mikill heiður þykir að hljóta Skeifuna og hafa sumir hand- hafar hennar seinna meir orðið ein- hverjir ástsælustu hestamenn lands- ins. -fréttatilkynning Skeifudagurinn að venju upphaf sumars Kannski er langt síðan öll plön voru niðurnegld. Skólafríin hefj- ast um helgina og páskafríið kær- komið. Kominn tími til að skipta um árstíð. Tíminn líður hratt. Tilfinning fyrir inntaki siðanna hnignar. Í það minnsta þeim sem kaupmenn geta ekki gert að sinni söluvöru. En form þeirra aðlagast; fagurlega skreyttir páskaung- ar og vorboðar æskunnar gleym- ast kannski í geymslum en páska- eggjaúrvalið í búðinni eykst ár frá ári. Fígúrurnar og skreytið elt- ir tíðarandann, táknin og merk- ing þeirra missa vægi og renna úr vitund almennings; ef við gætum ekki að okkur. Af hverju páska- egg? Af hverju páskahéri? Og hver mótmælir ef vinsæll lífstíls- áhrifavaldur tilkynnir að páskalit- urinn í ár sé óransbleikur? Tímavillur og samsull Við erum alltaf að reyna að finna þennan stað þar sem við finnum fyr- ir frið í sálinni, ímynda ég mér, en getum þó um leið mörg hver sagst hafa ágæta ró. Það er helst að flest okkar fullorðnu séum einhuga í að hafa áhyggjur af yngri kynslóðum og hvernig þeim mun reiða af í ver- öld sem við sjálf eigum fullt í fangi með að ná utanum. Sjálf erum við að verða tímavillt; hálf inní fram- tíð sem kom of snemma en samt eins og álfar á síðustu öld, í leit að gildum til að brúka fyrir staf. Hvað er til stuðnings þegar eng- in fær stöðvað tímans þunga nið? Fær maður sér bara tappa í eyrun? Uppfærir maður bara húmorinn? Æ, það er blessun að geta fast- að á lögmál heimsins um leið og maður fastar á að gerast dóm- ari yfir viðhorfum annarra; það er áskorun en nærir mildi, ræktar hógværð, temur sjálfsaga. Að mæta páskum er að skoða sátt heims og manns. Við áttum okkur eftir því sem fram vindur, á að við erum ekki vélar og uppbygging sjálfsmyndar og lífs getur ekki orðið að ferli í sjálfshjálparbók; við verðum ekki öll steypt í sama mótið. Mæli- kvarði á heilbrigði getur ekki mót- ast af metnaði og hégóma. Met- ingur bíður öfund og ófullnægju heim. Að sjá með innri augum Það er lítið mál að fara í gegnum lífið ósáttur. Það kostar bara það að vera sífellt að finna að öðrum og keppast eftir fleiri hlutum, geta sýnt frammá að maður sé meira virði en aðrir. En það villir okk- ur sýn og fjarlægir okkur því að sjá virðið í náunganum og meta ávexti æðruleysisins. Með innri augum andans getum við séð að það er ekki virði asnans sem undirstrikar merkingu þess viðburðar að Jesús kom til Jerúsalem á pálmasunnu- dag, í upphafi dymbilviku. Það er fögnuður þeirra sem horfa með innri augum á möguleikann á því að lögmáli heimsins verði snúið á hvolf. Að asninn sé verðugur. Að andinn sigri efnið og að lífið sigri dauðann. Að hið niðurlægða verði upp reist til tignar. Eitt af því sem við viljum ekki að tapist í tímans stríða straumi, er að við lærum af og vöxum af reynslu. Að áföll og erfiðleikar séu ekki merkingar sem skilgreina okkur í styrkleikaflokk. Við þurfum að muna að virði okkar er ómetanlegt því að möguleikarnir eru ófyrir- séðir. Og þá er einmitt svo mikil- vægt að muna hvers vegna það er ekki hægt að reikna allt út; hvers vegna lögmáli heimsins er valt að treysta. Vonin nær út yfir allt lög- mál því að vonin er innri veru- leiki. Vonin er opið hjarta, vonin er brum á grein. Hátíð vonar og styrks trúar Hringrás tímans var og er heilög, hún er fyrirsjáanleg því við höfum áttað okkur á lögmáli tímans, árs- tíðanna og eiginleika þeirra. Við treystum og þreyjum þess vegna í gegnum eitt tímabil, markað sið- um sem helga hringrásina. Fæð- ingu og fögnuði fylgir dauði og sorg, upprisunni fylgir von og styrkur trúar. páskaeggið táknar gröfina þar sem undrið hefur átt sér stað. Hérinn táknar Krist sem sprett- ur fram úr hýði sínu og heilsar vori. Ef við munum það, þá gild- ir einu hvort það er órans-bleikt eða gult. Bara að páskaliturinn í ár fangi kjarna lífisins, kraftinn, trúnna og von upprisunnar. Arnaldur Máni Finnsson Höf. er sóknarprestur á Staðastað Óransbleiku páskaplönin

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.