Skessuhorn - 16.04.2019, Blaðsíða 1
arionbanki.is Arion appið
Nú geta allir notað
besta bankaappið*
*MMR 2018
Hlökkum til
að sjá þig,
kæri nágranni!
Dalbraut 1
Sími: 512 4090
www.apotekarinn.is
Opið virka daga
kl. 10–18
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 16. tbl. 23. árg. 16. apríl 2019 - kr. 750 í lausasölu
Gleðilega páska!
Þessir frísku ungar bíða spenntir komandi páskahátíðar, líkt og börn sem fullorðnir. Skessuhorn óskar lesendum sínum gleðilegra páska. Ljósm. Jóhanna G Harðardóttir.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og
barnamálaráðherra, svaraði nýverið
á þingi fyrirspurn Ingu Sæland, for-
manns Flokks fólksins, þar sem hún
spurði ráðherra um lífeyrisgreiðslur
almannatrygginga. Flokkur fólks-
ins hefur lagt fram á Alþingi frum-
varp um breytingu á lögum um al-
mannatryggingar þess efni að ellilíf-
eyrisþegar njóti 100.000 kr. sérstaks
frítekjumarks vegna lífeyristekna.
Frumvarpið er nú í skráningarferli
Alþingis. Í svari ráðherra kom fram
að ef ellilífeyrisþegum yrði veitt 100
þúsund króna frítekjumark gagnvart
lífeyristekjum þá myndi það kosta
ríkissjóð 16 milljarða króna á ári. Ef
fallið yrði frá öllum skerðingum á
ellilífeyrisþega þá myndi það kosta
ríkissjóð 42,4 milljarða króna ár-
lega. Ef öryrkjum er bætt við þá tölu
hækkar kostnaður, eða eftir atvikum
sparnaður ríkisins, í alls 46,5 millj-
arða króna. Í svari Ásmundar Ein-
ars kom einnig fram að ævisparnað-
ur lífeyriseigenda meðal ellilífeyris-
þega veitir ríkissjóði svigrúm til að
spara sér 37,5 milljarða á ári með því
að skerða lífeyrisgreiðslur almanna-
trygginga vegna tekna úr lífeyris-
sjóði.
Undirbúa málsókn gegn
íslenska ríkinu
Á aðalfundi Landssambands eldri
borgara, sem fram fór í liðinni viku,
var kynnt að aðgerðahópur Gráa
hersins undirbýr nú málsókn gegn
íslenska ríkinu. Stofnaður hefur ver-
ið sérstakur málssóknarsjóður til að
vera fjárhagslegan bakhjarl máls-
höfðunar. VR, fleiri stéttarfélög og
Félag eldri borgara í Reykjavík hafa
lagt baráttunni til fjárstuðning. Bar-
átta hópsins mun snúast um það sem
kallað er; óréttlát og yfirgengileg
tekjutenging í lífeyriskerfi almanna-
trygginga. „Þessar miklu tekjuteng-
ingar hjá okkur eru einsdæmi og
hvergi í nálægum löndum getur það
gerst að regluverkið þurrki alveg
út grunnlífeyri fólks frá hinu opin-
bera. Hér gera brattar tekjutenging-
ar eða skerðingar það að verkum, að
löngu áður en aðrar tekjur einstak-
lings ná því að slaga upp í miðlungs-
tekjur í landinu, þá hafa tekjuteng-
ingar almannatryggingakerfisins
þurrkað út allar lífeyrisgreiðslur frá
því opinbera. Af þessu leiðir einn-
ig að hvergi í nálægum löndum er
hlutur hins opinbera í eftirlaunum
aldraðra minni en hér á landi. Hér
var hann 2,6% af vergri landsfram-
leiðslu á árinu 2017 en á sama tíma
var hann frá 5,4 til 11% af VLF á
hinum Norðurlöndunum og meðal-
tal OECD landa var 8,2%.“
Þetta kom fram í kynningu Gráa
hersins sem undirbýr nú málsókn
gegn íslenska ríkinu, enda er í senn
talið nauðsynlegt og sjálfsagt að láta
á það reyna fyrir dómstólum hvort
þessar miklu skerðingar í almanna-
tryggingakerfinu standist stjórn-
arskrá og almenn mannréttinda-
ákvæði, t.d. um eignarrétt, jafnræði,
meðalhóf og aflahæfi einstakling-
anna. Næsta skref í verkefni Gráa
hersins verður að senda öllum fé-
lögum eldri borgara póst, með boði
um að gerast stofnaðilar.
mm
Ríkissjóður sparar 42 milljarða árlega
með að skerða tekjur lífeyrisþega
Landnámssetrið
Borgarnesi
sími 437-1600
Njálssaga
Síðasta sýning laugardaginn
27.apríl kl 20:00
Veitingahúsið opið alla páskahelgina
frá 10:00-21:00
Nánar um dagskrá og miðasala á
landnam.is/vidburdir
Gleðilega páska