Skessuhorn - 16.04.2019, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 16. ApRÍL 2019 7
Móttaka heyrnarfræðinga
VESTURLAND
GRUNDARFIRÐI - FIM 2.maí
BORGARNESI – FÖS 3.maí
Staðsetning:
v/HEILBRIGÐISSTOFNANIR
HEYRNARMÆLING – RÁÐGJÖF – HEYRNARTÆKI
AÐSTOÐ OG STILLINGAR
BÓKANIR í síma 581 3855 og
í tölvupóst hti@hti.is • www.hti.is
Smiðjuvellir 32 - 300 Akranes - Sími 431 5090 - Fax 431 5091 - www.apvest.is
Gleðilega páska
Opið um páskana e
ins og venjulega.
Sama góða þjónust
an eins og alla hina
dagana.
Skírdagur, 12-14.
Föstudagurinn la
ngi, 12-13, vakt lyfja
fræðings.
Laugardagur 20.
apríl, 10-14.
Páskadagur, 12-1
3, vakt lyfjafræðings
.
Annar í páskum,
12-13, vakt lyfjafræð
ings.
Sími: 666 5110
smaprent@smaprent.is
www.smaprent.is Smáprent
Bolir
í mörgum litum
Við hönnum, prentum og merkjum fyrir þig og þína
Rekstur Snæfellsbæjar var jákvæð-
ur um 125,3 milljónir króna á síð-
asta ári, en gert hafði verið ráð fyrir
22,9 milljóna króna afgangi í fjár-
hagsáætlun. Rekstrarafkoman varð
því töluvert betri en gert hafði ver-
ið ráð fyrir, eða sem nemur 102,4
milljónum króna. Þetta kemur fram
á vef Snæfellsbæjar, en ársreikning-
ur bæjarfélagsins var til fyrri um-
ræðu á fundi bæjarstjórnar síðast-
liðinn fimmtudag. „Athygli vek-
ur að allar stofnanir Snæfellsbæjar
skila rekstri á eða undir áætlun, sem
er mjög ánægjulegt og eiga for-
stöðumenn hrós skilið fyrir árang-
urinn,“ segir í frétt Snæfellsbæjar.
Eigið fé sveitarfélagsins í árslok
nam rúmum 3,5 milljörðum króna
samkvæmt efnahagsreikningi, en
þar af nam eigið fé A hluta tæpum
2,7 milljörðum. Veltufé frá rekstri
var 259 milljónir króna og veltu-
fjárhlutfall er 1,55. Handbært fé
frá rekstri var 58,2 milljónir króna
í árslok 2018.
Heildareignir bæjarsjóðs námu
rúmum 4,2 milljörðum króna og
heildareignir sveitarfélagsins í sam-
anteknum ársreikningi námu rúm-
um 5,4 milljörðum króna í árslok.
Heildarskuldir bæjarsjóðs námu
1,54 milljörðum króna og 1,94
milljörðum í samanteknum árs-
reikningi. Skuldir hækkuðu milli
ára um 180,7 milljónir.
Eigið fé bæjarsjóðs nam 2,67
milljörðum og eigið fé í saman-
teknum reikningsskilum nam 3,5
milljörðum í árslok. Eiginfjárhlut-
fall er 63,43% en var 65,89% áður.
Fjárfest var fyrir 369 milljónir
á árinu í varanlegum rekstrarfjár-
munum. Ný lán voru tekin á árinu
2018 að upphæð 328,5 milljón-
ir. Greidd voru niður lán að fjár-
hæð 156,6 milljónir. „Rétt er að
taka fram að stærstur hluti þessarar
lántöku, eða 178.502.037- var tek-
inn vegna uppgreiðslu á samningi
milli ríkissjóðs og Snæfellsbæjar
um uppgjör lífeyrisskuldbindinga,“
segir á vef Snæfellsbæjar. Hlutfall
reglulegra tekna af heildarskuld-
um og skuldbindingum er 71,48%
í samanteknum ársreikningi en var
69,49% árið áður. Sem kunnugt er
má þetta hlutfall ekki vera hærra en
150% skv. sveitarstjórnarlögum.
„Fjárhagsstaða Snæfellsbæjar verð-
ur því að teljast afar góð,“ segir á
vef bæjarfélagsins. kgk
Frá Arnarstapa. Ljósm. úr safni.
„Fjárhagsstaða Snæfellsbæjar
verður að teljast afar góð“
Talsvert betri afkoma en áætlanir gerðu ráð fyrir