Skessuhorn - 16.04.2019, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 16. ApRÍL 2019 21
Eyja- og Miklaholtshreppur óskar eftir
að ráða starfsfólk við Laugargerðis-
skóla til að sjá um sundlaugarvörslu
ásamt því að sjá um tjaldsvæði
við Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi
sumarið 2019
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Leitað er eftir starfsfólki á aldrinum 20 – 35 ára í
laugarvörslu, afgreiðslu og tjaldsvæði. Starfstími
sem um ræðir er frá byrjun júnímánaðar til septem-
bermánaðar. Húsnæði á staðnum.
Hæfniskröfur:
Góð enskukunnátta.•
Góð þjónustulund.•
Áreiðanleiki.•
Áhugi á staðnum og nærumhverfi.•
Starfsmenn þurfa að ljúka skyndihjálparnámskeiði.•
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala-
og Snæfellsnessýslu.
Frekari upplýsingar fást í síma 865-2400
og eyjaogmiklaholtshreppur@vortex.is
Vinsamlegast sendið umsóknir á
eyjaogmiklaholtshreppur@vortex.is
fyrir 28. apríl 2019
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Laus störf hjá
Akraneskaupstað
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
Velferðar- og mannréttindasvið
Störf í stuðningsþjónustu
Skóla- og frístundasvið
Starf aðstoðarskólastjóra í Brekkubæjarskóla.
Starf íþróttakennara í Brekkubæjarskóla skólaárið 2019-2020
Starf umsjónarkennara á yngsta- og miðstigi í Brekkubæjarskóla
skólaárið 2019-2020
Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum
er að finna á www.akranes.is/lausstorf
SKEIFUDAGURINN
Hestamannafélagið Grani heldur Skeifudagaginn hátíðlegan
í 63. skipti, sumardaginn fyrsta kl 13 á Mið-Fossum í Borgarrði.
Kasala, happadrætti og verðlaunaaending eir sýningu á Hvanneyri.
MORGUNBLAÐSSKEIFAN - GUNNARSBIKARINN
- STÓÐHESTAHAPPADRÆTTI - REIÐSÝNING
25. APRÍL KL 13
FACEBOOK: GRANI LBHÍ / WWW.LBHI.IS
Dagana 30. ágúst til 1. septem-
ber næstkomandi stendur mikið til í
Reykholti í Borgarfirði. Félagsskap-
urinn Hurtswic mun þá standa fyr-
ir þriggja daga samfelldri járngerð
í þorpinu sem gestum og gang-
andi er boðið að taka virkan þátt í.
Unnið verður járn úr jarðveginum
og það mótað í ofnum sem kyntir
eru með mó, eins og gert var fyrr
á öldum.
Rannsaka bardagaað-
ferðir á víkingaöld
Hurtswic hópurinn hefur undanfar-
in 20 ár staðið fyrir ítarlegum rann-
sóknum á hverju því sem viðkemur
víkingabardögum, allt frá bardaga-
tækni til vopnagerðar. Viðburður-
inn í Reykholti í haust er einmitt
liður í þeim rannsóknum; að kom-
ast til botns í því hvernig járn var
gert hérlendis á söguöld. „Allar
heimildir benda til þess að járngerð
hafi verið öðruvísi háttað á þessum
tíma hér á Íslandi en í Skandinavíu
og annars staðar í Evrópu. Hvers
vegna vitum við ekki fyrir víst,
en okkur langar að vita það. Þess
vegna höfum við sett saman hóp
sérfræðinga sem ætlar að hittast í
Reykholti og prófa að búa til járn í
haust. Þar munum við prófa ýmsar
aðferðir til járngerðar, skrásetja og
mæla allan árangur ítarlega,“ segir
William Short, stjórnandi Hurts-
wic, í samtali við Skessuhorn. Með
honum í för er Reynir Alfreð Ósk-
arson, annar höfuðpaur hópsins.
„William starfaði áður sem prófess-
or við MIT háskólann í Bandaríkj-
unum, þar til einn daginn að hann
ákvað að það væri skemmtilegra að
verja tíma sínum í að rannsaka vík-
ingabardaga. Ég kynntist honum
fyrir tíu árum síðan og kom inn í
teymið sem sérfræðingur í bardaga-
list, en ég hef bakgrunn sem bar-
dagaþjálfari,“ segir Reynir. „Síðan
þá höfum við rannsakað ýmislegt
sem tengist bardögum og sagt er
frá í Íslendingasögunum. Það ger-
um við með því að framkvæma til-
raunir, vísindalegar tilraunir þar
sem hlutirnir eru einfaldlega próf-
aðir. Til dæmis höfum við prófað
að synda í hringabrynju og búa til
bogastreng úr mannshári,“ bætir
Reynir við.
Þriggja daga tilraun
Um þessar mundir vinna Willi-
am og Reynir hörðum höndum að
því að undirbúa viðburðinn í Reyk-
holti. Framundan eru fjölmargir
fundir og margir sem þarf að hitta.
„Þetta verður í rauninni hátíð;
þriggja daga samfelld járngerðar-
tilraun sem öllum er frjálst að taka
þátt í. Það er ýmislegt sem þarf að
gera og við tökum allri hjálp fagn-
andi,“ segir William. „Á kvöldin
verða fyrirlestrar frá hinum ýmsu
sérfræðingum um hvaðeina sem
viðkemur járngerð og járni,“ bætir
hann við. „Akkúrat núna er verið að
efnagreina mó frá Íslandi í Banda-
ríkjunum og næst á dagskrá hjá
okkur hér á Íslandi er að hitta forn-
leifafræðinga, járnsmiði, sr. Geir
Waage og fleiri,“ segja þeir Willi-
am og Reynir. „Undirbúningurinn
er kominn á fullt og við hlökkum
til að koma aftur í haust og búa til
járn í Reykholti. Það er mikil eft-
irvænting innan hópsins fyrir þess-
um viðburði eins og reyndar öllum
tilraununum okkar. Þetta er mjög
skemmtilegt. Við vitum aldrei hvað
gerist áður en við byrjum, því við
erum alltaf að fást við eitthvað sem
hefur ekki verið prófað með vís-
indalegum hætti áður, segja þeir
William og Reynir að endingu.
kgk
Reyna að ráða gátuna um
rauðablástur á Íslandi
Þriggja daga lifandi tilraun í Reykholti í haust
Hér eru félagar í Hurtswic hópnum að prófa sig áfram við járngerð. Ljósm. aðsend.
ReynirAlfreð Óskarsson og William Short, stjórnandi Hurtswic hópsins.
Ljósm. kgk.
Einfaldir ofnar eins og þessi verða
notaðir við rauðablásturinn. Ljósm.
aðsend.
Járngerð var öðruvísi háttað á Íslandi
á söguöld en í Skandinavíu og annars
staðar í Evrópu. Hvers vegna er ekki
vitað og aðferðin hefur ekki varðveist.
Hurtswic hópurinn vonast til að ráða
þá gátu í Reykholti í lok ágúst.
Ljósm. aðsend.