Skessuhorn - 16.04.2019, Blaðsíða 20
ÞRIÐJUDAGUR 16. ApRÍL 201920
Síðastliðinn fimmtudag var hald-
inn lokafundur vinnuhóps sem
skipaður var af Borgarbyggð í
janúar til að fylgja eftir verkefni
um lagningu þriggja fasa rafmagns
á Mýrarnar. Hópurinn var skipað-
ur í kjölfar þess að Þórdís Kolbrún
R Gylfadóttir iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra hafði lýst yfir vilja
til að flýta áformum um þrífös-
un rafmagns á Mýrunum og fylgdi
því eftir á fundi ríkisstjórnarinn-
ar 6. febrúar síðastliðinn. Í fjár-
málaáætlun ríkisstjórnarinnar fyr-
ir árin 2020 – 2024 er tekið mið
af framangreindu og áhersla lögð
á að ljúka þrífösun á Mýrum og í
Skaftárhreppi. Gert er ráð fyrir 80
milljónum króna í fimm ára fjár-
málaáætlun, yfir þriggja ára tíma-
bil, sem framlag frá ríkinu í formi
svokallaðs flýtigjalds. Með tilkomu
þeirra fjármuna verður mögulegt
að nýta samlegðaráhrif með lagn-
ingu ljósleiðara í Borgarbyggð og
leggja þriggja fasa rafmagn og ljós-
leiðara um Mýrarnar á árunum
2019 – 2022. Samkvæmt verkáætl-
un Rarik er svæðinu skipt upp í þrjá
aðskilda verkhluta sem koma til
framkvæmda á jafn mörgum árum.
Í eldri verkáætlun RARIK var ekki
gert ráð fyrir þessum framkvæmd-
um fyrr en um 2035.
Með fundinum síðastliðinn
fimmtudag lauk vinnuhópurinn
störfum. Á honum afhenti pétur
Þórðarson forstjóri Rarik, fulltrúa
Búnaðarfélags Mýrarmanna verk-
áætlun og Ingvi Már pálsson skrif-
stofustjóri atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytisins afhenti honum
skjöl sem staðfesta fjármuni ríkis-
valdsins til verkefnisins. Nú tek-
ur við sú vinna að ljúka fullnaðar-
hönnun lagnakerfis ljósleiðara um
Mýrar og mun Guðmundur Daní-
elsson halda utan um þá vinnu í
samstarfi við Halldór Jónas Gunn-
laugsson frá Búnaðarfélagi Mýra-
manna og fulltrúa Rarik. Almenn
ánægja var meðal hópsmeðlima um
samstarfið enda hefur árangurinn
ekki látið á sér standa og áætlað er
að hefja framkvæmdir á Lamba-
stöðum í byrjun maí á þessu ári.
Starfshópurinn var skipaður
Lilju Lilja Björg Ágústsdóttur for-
seta sveitarstjórnar, sem jafnframt
var formaður, auk péturs Þórðar-
sonar forstjóra RARIK, Ingva Más
pálssonar skrifstofustjóri atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytis-
ins, Hólmfríði Sveinsdóttur sér-
fræðings hjá samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðuneytinu, Halldóri
Jónasi Gunnlaugssyni frá Búnaðar-
félagi Mýrarmanna og Guðmundi
Daníelssyni ráðgjafa. Stafsmaður
hópsins var Gunnlaugur Júlíusson,
sveitarstjóri í Borgarbyggð.
mm
Ingvi Már Pálsson, skrifstofustjóri atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins,
Pétur Þórðarson, aðstoðarforstjóri RARIK og Halldór Jónas Gunnlaugsson, fulltrúi
Búnaðarfélags Mýrarmanna. Ljósm. kg.
Lagning þriggja fasa rafmagns
hefst í vor á Mýrunum
Ársþing Íþróttabandalags Akra-
ness var haldið 75. sinni síðastliðið
fimmtudagskvöld. Ársskýrsla fram-
kvæmdastjórnar var lögð fram af
Marellu Steinsdóttur, formanni ÍA.
Fram kom á fundinum að rekstur
ÍA og aðildarfélaga er með ágæt-
um og bjartsýni gætir fyrir kom-
andi tíð. „Sérstaklega þegar litið er
til þeirra miklu framkvæmda sem
nú eru á íþróttamannvirkjum bæj-
arins,“ segir í frétt á vef ÍA.
Að þessu sinni voru ellefu sæmd-
ir Bandalagsmerki ÍA fyrir vel unn-
in störf í þágu íþróttahreyfingar-
inanr á Akranesi. Þeir sem heiðr-
aðir voru að þessu sinni eru; Dipu
Gosh, Guðný Tómasdóttir, Guð-
rún Guðmundsdóttir, Halldór
Jónsson, Helgi Magnússon, Jó-
hannes Guðjónsson, Jónas Hall-
grímur Ottósson, Jón Ármann Ein-
arsson, Kristmar páll Sigurðsson,
Ólöf Guðmundsdóttir og Sigurður
Arnar Sigurðsson.
Þá tók Þráinn Hafsteinsson,
fulltrúi frá Íþróttasamandi Íslands,
til máls og veitti Sigurði Arnari,
Eydísi Líndal Finnbogadóttur og
Trausta Gylfasyni gullmerki ÍSÍ
fyrir mikil og vel unnin störf í þágu
ÍA og íþróttahreyfingarinnar á Ís-
landi. Helga Sjöfn Jóhannesdóttir
var enn fremur sæmd silfurmerki
ÍSÍ fyrir vel unnin störf í þágu ÍA.
Tveir samningar
undirritaðir
Á þinginu var skrifað undir tvo
samninga milli Akraneskaupstað-
ar og ÍA. Annars vegar heildar-
samning um rekstur og samskipti
bæjarfélagsins og ÍA, en hins veg-
ar um leigu og rekstur líkams-
ræktarstöðvarinnar að Jaðarsbökk-
um og á Íþróttahúsinu við Vestur-
götu. Samningarnir gilda til ársloka
2022. Það voru Sævar Freyr Þráins-
son, bæjarstjóri á Akranesi og Mar-
ella Steinsdóttir, formaður ÍA, sem
undirrituðu samningana.
Kostnaðaraukning Akraneskaup-
staðar vegna þessara samninga er
4,9 milljónir á ársgundvelli, en verð-
ur samtals 3.750 þús. á árinu 2019.
Aukningin er til komin vegna al-
mennrar hækkunar styrks til rekst-
urs ÍA, úr 3,1 milljón í 4,5 milljónir
Ársþing ÍA var haldið á fimmtudag
og vegna samstarfs bæjaryfirvalda
og ÍA um Heilsueflandi samfélag.
Akraneskaupstaður leggur til 3,5
milljónir króna til verkefnastjórn-
unar við innleiðingu verkefnisins,
sem verður í höndum ÍA sem og
framkvæmd verkefnisins. Heildar-
kostnaður samninganna á ári er átta
milljónir króna.
Samningurinn um rekstur og
samskipti Akraneskaupstaðar og
ÍA snýr að því að viðhalda sam-
starfi bæjarfélagsins og ÍA. Mark-
miðið er að íþróttastarf á Akranesi
verði áfram þróttmikið, æsku og al-
menningi til heilla. Sérstök áhersla
er lögð á forvarnir og uppeldis-
gildi íþrótta og virkrar samvinnu
íþróttahreyfingarinnar við skóla og
almenning.
Samningurinn um leigu og rekst-
ur líkamsræktarstöðvar gildir fyrir
bæði Jaðarsbakka og Vesturgötu.
ÍA sér um rekstur líkamsræktar-
stöðvanna, þ.e.a.s. stendur straum
af kostnaði við uppsetningu, við-
hald tækja og viðgerðir. Allur bún-
aður sem ÍA setur upp er eign
bandalagsins. Leigufjárhæð samn-
ingsins er tengd veltunni, en 80%
af tekjum rekstrarins renna til ÍA
en 20% til Akraneskaupstaðar. ÍA
fær samhliða samningnum afnot af
búningsklefum mannvirkjanna fyr-
ir iðkendur sína.
kgk/ Ljósm. ÍA.
Hörður Ó. Helgason þingforseti í
ræðustól.
Þau voru sæmd Bandalagsmerki ÍA fyrir vel unnin störf í þágu íþróttahreyfingarinnar á Akranesi.
Sigurður Arnar Sigurðsson, Eydís Líndal Finnbogadóttir, Helga Sjöfn Jó-
hannesdóttir og Trausti Gylfason voru heiðruð af ÍSÍ fyrir störf í þágu íþróttahreyf-
ingarinnar. Með þeim á myndinni er Þráinn Hafsteinsson frá ÍSÍ.
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi og Marella Steinsdóttir, formaður
ÍA, undirrituðu tvo samninga milli Akraneskaupstaðar og ÍA.
Ragnheiður Inga Aðalsteinsdóttir og Pálmi Haraldsson viku úr varastjórn ÍA. Í
stað þeirra koma Hallbera Jóhannesdóttir og Gísli Karlsson ný inn í varastjórnina.
Hér eru þau Ragnheiður Inga og Pálmi ásamt Marellu Steinsdóttur, formanni ÍA.