Skessuhorn - 16.04.2019, Blaðsíða 8
ÞRIÐJUDAGUR 16. ApRÍL 20198
Ekið á kött
AKRANES: Ekið var á kött
á Þjóðbraut á Akranesi í vik-
unni sem leið. Tilkynnt var
um slysið og dýraeftirlits-
maður Akraneskaupstað-
ar kom á vettvang og fjar-
lægði hræið. Í tilfellum sem
þessum er kannað hvort dýr-
in séu merkt og eigendur þá
látnir vita.
-kgk
Aflatölur fyr-
ir Vesturland
6.-12. apríl
Tölur (í kílóum) frá Fiski-
stofu
Akranes: 10 bátar.
Heildarlöndun: 36.969 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF:
13.774 kg í fjórum róðrum.
Arnarstapi: Engar landanir
á tímabilinu.
Grundarfjörður: 5 bátar.
Heildarlöndun: 278.110 kg.
Mestur afli: Farsæll SH:
89.307 kg í tveimur lönd-
unum.
Ólafsvík: 15 bátar.
Heildarlöndun: 332.617 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
93.891 kg í sex róðrum.
Rif: 14 bátar.
Heildarlöndun: 498.897
kg.
Mestur afli: Magnús SH:
134.952 kg í fimm lönd-
unum.
Stykkishólmur: 1 bátur.
Heildarlöndun: 2.778 kg.
Mestur afli: Sjöfn SH:
2.778 kg í fimm róðrum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Sigurborg SH - GRU:
66.156 kg. 9. apríl.
2. Hringur SH - GRU:
64.346 kg. 9. apríl.
3. Örvar SH - RIF:
49.276 kg. 10. apríl.
4. Farsæll SH - GRU:
47.249 kg. 11. apríl.
5. Helgi SH - GRU:
47.248 kg. 7. apríl.
-kgk
Síðastliðinn föstudag var á Bóka-
safni Akraness opnuð sýning þar
sem lögð er áhersla á framleiðslu
og sköpunargleði sem á sér stað í
Fjöliðjunni á Akranesi. 35 ára af-
mælisár er nú hafið hjá Fjöliðj-
unni, en þar er boðið upp á vernd-
aða vinnu og endurhæfingu fyr-
ir þá sem þess þurfa og leita eft-
ir þjónustu. Í Fjöliðjunni fer fram
fjölbreytt vinna og starfsfólkið
tekst á við mörg ólík verkefni og
gefur að líta afraksturinn á sýn-
ingunni. Meðal annars er sýn-
ingarbás þar sem sýnt er hand-
verk, munir og nytjahlutir unn-
ir úr íslenskum viði. Fjöliðjan er
í samstarfi við Ólaf Oddsson sem
starfar sem útbreiðslustjóri hjá
Skógræktinni. Ólafur hefur hald-
ið námskeið sem ber nafnið Les-
ið í skóginn. Tilgangur þess er að
fara með starfsfólk Fjöliðjunnar
út undir bert loft, ná sér í fersk-
an við og vinna úr honum með
tálgun og sköpun. Að sögn Guð-
mundar páls Jónssonar forstöðu-
manns Fjöliðjunnar er verkefnið
með Ólafi enn í mótun en bundn-
ar miklar vonir við að það muni
auka fjölbreytni og um lífsgæði
starfsfólks Fjöliðjunnar.
Sýningin Fjölbreytileiki Fjöliðjun-
nar verður opin á opnunartíma Bók-
safnsins til 15. maí næstkomandi. mm
Á sýningunni má sjá ýmsa framleiðslu starfsfólks Fjöliðjunnar,
jafnt nytjahluti sem handverk og list.
Fjöliðjan opnar afmælissýningu á Bókasafni Akraness
Við opnun sýningarinnar í Bókasafni Akraness á föstudaginn var stór hluti starfsfólks mættur.
Ólafur Oddsson og Erlingur Birgir Magnússon við sýnin-
garkassa þar sem gefur að líta ýmsa muni úr íslenskum
viði.
Tugir ungmenna sátu í liðinni viku
ráðstefnu í Borgarnesi sem Ung-
mennaráð UMFÍ stóð fyrir. Yf-
irskrift ráðstefnunnar í ár var;
„hvernig get ég verið besta útgáf-
an af sjálfum mér?“ Á ráðstefnuna
tóku um 80 ungmenni á aldrinum
14-25 ára þátt en þau sitja í ung-
mennaráðum víðs vegar um landið.
Þarna koma þau saman á ópólitísk-
um vettvangi og ræddu málefni líð-
andi stundar.
Við setningu þingsins á fimmtu-
daginn flutti Þórdís Kolbrún R
Gylfadóttir ráðherra ávarp. „Fólk á
alltaf að treysta eigin innsæi en samt
vera tilbúið til að hlusta á gagn-
rýni og vera tilbúið til að skipta
um skoðun. Fullorðnu fólki finnst
mjög erfitt að vera það sjálft. En
maður má ekki tapa gleðinni held-
ur vera maður sjálfur,“ sagði hún. Í
ávarpi sínu vitnaði Þórdís til forn-
gríska heimspekingsins Sókrates-
ar sem uppi var fyrir um þrjú þús-
und árum, en hann var dæmdur til
dauða fyrir að hvetja unga karlmenn
til þess að hugsa á gagnrýninn hátt.
Rifjaði hún upp að sjálf hafi hún
eitt sinn unnið fyrir Ólöfu Nor-
dal. Hjá Ólöfu hafi hún m.a. lært að
hlusta á maga sinn, fylgja innsæinu
og vera gagnrýnin. Á sama tíma á
fólk ekki að gefa sér að allir viti bet-
ur en það sjálft. Þar skipti innsæið
mestu máli.
Betra að stökkva
Þórdís er sjálf brautryðjandi á ýms-
um sviðum. Hún er yngsti vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins og
yngsta konan til að gegna emb-
ætti ráðherra hér á landi. Hún hafi
heyrt að ungt fólk eigi að bíða með
að koma sér áfram og spyrja spurn-
inga. Hún viðurkenndi að í fyrstu
hafi sér fundist eins og hún hafi átt
að passa inn í ákveðið form, form
sem hamli því að fólk hagi sér eða
framkvæmi á annan hátt en tíðkist.
Það hamli framförum og gagnrýn-
inni hugsun. „Ég sé stundum fyr-
ir mér piparkökukarl í formi. En
maður þarf að taka plássið sem þarf.
piparkökukallinn er ekki endilega
svarið.“ Þórdís hvatti þátttakendur
á ráðstefnunni til að vera óhrædda
við að hugsa á gagnrýninn hátt
og vera óhræddir að betrumbæta
heiminn. Ungt fólk sé framtíðin.
„Besta dæmið um þessar mund-
ir er hin sænska Greta Thunberg,
sem vakið hefur fólk um allan heim
til umhugsunar um mikilvægi lofts-
lagsmála. Afstaða hennar að ferðast
ekki með flugvélum hefur mótað
fólk,“ sagði Þórdís og hvatti þátt-
takendur til að láta til sín taka, ekki
hlusta á úrtöluraddir og þora að
taka áhættu: „Það er mjög gott að
spyrja, stundum ekki endilega gáfu-
lega. Við þurfum ekki að hafa svör-
in heldur kunna að spyrja spurn-
inganna. Ég hef verið rökföst, fylgt
minni sannfæringu og verið ég sjálf.
Ef það er eitthvað sem ég get ráð-
lagt ykkur er að grípa öll þau tæki-
færi sem gefast. Líka þau sem virð-
ast of stór. Ef þið standið frammi
fyrir því að hrökkva eða stökkva, þá
mæli ég með því að stökkva. Það
skilar manni lengra,“ sagði Þórdís
Kolbrún í ávarpi sínu til íslenskra
ungmenna. mm
Ungmennaráðstefna fór fram í Borgarnesi
Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir ræddi við ungmennin við setningu þingsins.