Skessuhorn - 16.04.2019, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. ApRÍL 2019 5
Fimmtudaginn 17. apríl: Opið frá kl. 12-18
Föstudaginn 18. apríl: Opið frá kl. 12-16
Laugardaginn 20. apríl: Opið frá kl. 10-18
Sunnudaginn 21. apríl: Lokað
Mánudaginn 22. apríl: Opið frá kl. 10-18
Fimmtudaginn 25. apríl: Opið frá 12-20
Páskaopnun í Guðlaugu
Hlökkum til að sjá þig!
Evert Víglundsson, eigandi og yf-
irþjálfari CrossFit Reykjavíkur og
upphafsmaður CrossFit á Íslandi,
verður með fyrirlestur þriðjudag-
inn 23. apríl klukkan 20 á Akranesi
um hvernig við getum orðið besta
útgáfan af sjálfum okkur. Evert
mun í fyrirlestrinum fara yfir mik-
ilvægi svefns, næringar, hreyfing-
ar, félagsskapar og streitustjórnun-
ar. „Vilt þú verða betri í einhverju
í lífinu? Þá er þessi fyrirlestur fyrir
þig,“ segir í tilkynningu.
Fyrirlesturinn verður í húsnæði
Crossfit Ægis á Vesturgötu 119 á
Akranesi og eru allir velkomnir.
Frítt er fyrir meðlimi Crossfit Ægis
en aðrir borga 1.500 krónur. Nán-
ari upplýsingar er hægt að sjá í aug-
lýsingu hér í blaðinu. arg
Hjónin Ingibjörg Kristleifsdóttir
og Halldór Gísli Bjarnason opn-
uðu síðastliðinn sunnudag kaffi-
húsið Heimskringluna. Það er til
húsa í gamla Héraðsskólahúsinu í
Reykholti og gengið inn um aðal-
inngang hinnar reisulegu bygging-
ar. Hátíðarsalurinn, sem byggður
var á sínum tíma yfir sundlaugina,
verður nýttur fyrir gesti kaffihúss-
ins. Þar er jafnframt hangandi uppi
sýning Óskars Guðmundssonar;
„Árið 1918 í Borgarfirði“ sem opn-
uð var í hátíðarsalnum á 100 ára af-
mæli fullveldisins. Þau Ingibjörg
og Halldór segjast ætla að leggja
áherslu á veitingar úr hráefni sem
framleitt er í héraðinu. Þá verða
bakaðar vöfflur og annað sætabraut
einnig á boðstólnum. Aðspurð
segjast þau ætla að aðlaga opnun-
artímann að umferðinni, en mik-
ill fjöldi gesta sækir Reykholt heim
á hverju ári. Rekstur kaffihússins
Heimskringlunnar er tilraunaverk-
efni þeirra í sumar í samstarfi við
Snorrastofu, en húsnæðið hafa þau
á leigu út september.
Þau Halldór Gísli og Ingibjörg
fluttu í Reykholt á síðasta ári eft-
ir að hafa keypt þar íbúðarhús við
Hallveigartrögð og selt íbúð sína
í Reykjavík. Þeirra aðal starfsemi
hefur verið námskeiðahald og
rekstur Litlu Menntabúðarinnar -
lifandi menntunar þar sem kenn-
arar læra. Ingibjörg er leik- og
grunnskólakennari og hefur starf-
að sem formaður Félags stjórnenda
leikskóla síðastliðinn áratug. Auk
þess að semja um kaup og kjör og
gæta hagsmuna félagsmanna hefur
Ingibjörg tekið þátt í samstarfi um
ýmis málefni, m.a. um starfsþróun
kennara og skólastjórnenda og efl-
ingu leikskólastigsins. Hún hefur
einnig tekið virkan þátt í alþjóða-
samskiptum með kennurum og
stjórnendum um praktík og póli-
tík.
Halldór Gísli er menntaður
grunn- og framhaldsskólakenn-
ari og hefur mestalla sína starfs-
ævi sinnt sérkennslu. Hann er einn
af frumkvöðlum að stofnun starfs-
eða sérnámsbrauta á framhalds-
skólastigi og síðustu 14 árin hefur
hann kennt við Fjölbrautaskólann
við Ármúla.
Þau Halldór og Ingibjörg störf-
uðu við ferðaþjónustu á Húsafelli
öll sumur fram til síðustu aldamóta
samhliða námi og starfi, en Ingi-
björg er systirin í hópi fimm barna
Kristleifs Þorsteinssonar og Sig-
rúnar Bergþórsdóttur á Húsafelli.
Þau segjast í samtali við Skessu-
horn hafa ákveðið það á síðasta ári
að flytja á æskuslóðir Ingibjargar
og vilja nú leyfa öðrum kennurum
og starfsfólki menntastofnanna að
njóta menntunar, menningar og
upplyftingar á líkama og sál um leið
og gestir njóta tilverunnar á hinum
fornfræga mennta- og menningar-
stað. Í sumar munu þau hins veg-
ar leggja áherslu á móttöku ferða-
manna og þjónustu í gamla Hér-
aðsskólahúsinu. mm
Halldór Gísli og Ingibjörg í anddyri gamla Héraðsskólahússins. Á vegg aftan við
þau er mynd af gamla Reykholtsbænum og lágmynd af Þóri Steinþórssyni skóla-
stjóra til hægri.
Opna kaffihúsið
Heimskringluna í Reykholti
Fyrirlestur um að vera besta
útgáfan af sjálfum sér