Skessuhorn - 16.04.2019, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 16. ApRÍL 2019 13
- Sund og sól í Borgarfirði -
Íþróttamiðstöðin Borgarnesi Íþróttamiðstöðin Kleppjárnsreykjum Íþróttamiðstöðin Varmalandi
Virka daga frá kl. 06.30 – 21.00 Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13.00 – 21.00 Mánudaga og miðvikudaga kl. 13.00 – 21.00
Um helgar frá kl. 09.00 – 18.00 Miðvikudaga og föstudaga kl. 13.00 – 18.00 Fimmtudaga og föstudaga kl. 13.00 – 18.00
Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00 – 18.00 Laugardaga og sunnudaga kl. 13.00 – 18.00
Lokað mánudaga Lokað þriðjudaga
Velkomin í sund!
Opnunartími um Páskana í
Sundlaugum Borgarbyggðar 2019
Sundlaugin í Borgarnesi
Sími 433 7140
18. apríl skírdagur 0pið frá kl. 9-18
19. apríl föstudagurinn langi LOKAÐ
20. apríl laugardagur opið frá kl. 9-18
21. apríl páskadagur LOKAÐ
22. apríl annar í páskum opið frá kl 9-18
25. príl sumardaginn fyrsta opið frá 9-18
1. m í Verkalýðsdagurinn LOKAÐ
Sundlaugin Kleppjárnsreykjum
Sími 435 1140
18. apríl skírdagur LOKAÐ
19. apríl föstudagurinn langi LOKAÐ
20. apríl laugardagur opið frá kl. 13-18
21. apríl páskadagur LOKAÐ
22. apríl annar í páskum opið frá kl 13-18
25. apríl sumardaginn fyrsta LOKAÐ
1. m í Verk lýðsdagurinn LOKAÐ
Sundlaugin á Varmalandi
Sími 437 1401
Lokað
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Viltu vinna
með börnum?
Leitað er eftir dagforeldrum til starfa á Akranesi
fyrir komandi haust.
Dagforeldrar starfa eftir reglugerð Félagsmálaráðuneytis um
daggæslu barna í heimahúsi. Dagforeldrar eru sjálfstæðir
verktakar en Akraneskaupstaður hefur umsjón og eftirlit með
starfsemi þeirra.
Réttindanámskeið fyrir verðandi dagforeldra hefur verið haldið
af Námsflokkum Hafnarfjarðar og Akraneskaupstaður
niðurgreiðir hluta af námsgjaldi.
Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri á skóla- og frístundasviði
Akraneskaupstaðar í síma 433-1000, einnig er hægt að senda
fyrirspurnir á netfangið skoliogfristund@akranes.is
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Alls varð 826 milljóna króna af-
gangur af rekstri Akraneskaupstað-
ar á síðasta ári. Er það 631 millj-
ón króna betri afkoma en áætlað
var í fjárhagsáætlun ársins 2018 að
teknu tilliti til viðauka hennar. „Það
skýrist af 668 milljóna króna hærri
tekjum en áætlað var vegna launa-
tekna íbúa, meiri umsvifa í sveit-
arfélaginu og söluhagnaði eigna,“
segir í frétt á vef Akraneskaupstað-
ar. Rekstrargjöldin voru 59 millj-
ónum hærri en gert hafði verið ráð
fyrir og skýrist það fyrst og síðast
af gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga
sveitarfélagsins.
Skatttekjur bæjarins voru 424
milljónum króna hærri í fyrra en
árið á undan. Framlög Jöfnunar-
sjóðs hækkuðu um 155 milljónir
milli ára og aðrar tekjur jukust um
123 milljónir. Auk þess kom til 71
milljón vegna sölu eigna. Í árslok
var heildarvirði eigna Akraneskaup-
staðar 14.192 milljónir og jókst um
1.102 milljónir á milli ára. Skuld-
ir og skuldbindingar námu sam-
tals 6.683 milljónum og hækkuðu
um 193 milljónir milli ára. Lang-
tímaskuldir jukust um 167 milljón-
ir króna, lífeyrisskuldbinding sveit-
arfélagsins hækkaði um 240 millj-
ónir en skammtímaskuldir lækkuðu
um 214 milljónir. Veltufé frá rekstri
samstæðu A og B hluta bæjarsjóðs
var 19,5% af heildartekjum, eða
1.490 milljónir króna.
„Traust fjárhagsstaða“
„Ársreikningur Akraneskaupstað-
ar sýnir ábyrga fjármálastjórn og
trausta fjárhagsstöðu. Ljóst er að
Akraneskaupstaður hefur fulla
ástæðu til að vera sveitarfélag í
sókn,“ er haft eftir Sævari Frey
Þráinssyni bæjarstjóra á vef Akra-
neskaupstaðar. „Fjárhagsstaða bæj-
arins hefur styrkst með hverju ári
sem líður og nú eru tvö ár í röð þar
sem afkoma gefur tilefni til að auka
við þjónustu, í viðhaldi innviða og
frekari fjárfestinga í uppbyggingu,“
segir bæjarstjórinn.
Fjárfestingar Akraneskaupstaðar
námu 563 milljónum króna á síð-
asta ári. Helstu framkvæmdir voru
breytingar á húsnæði Brekkubæjar-
skóla fyrir 23 milljónir, uppbygg-
ing Guðlaugar við Langasand fyrir
71 milljón, uppbygging frístunda-
miðstöðvar og kaup á vélaskemmu
við golfvöllinn, samtals 203 millj-
ónir króna og fimleikahús fyrir
61 milljón króna. Þá var 31 millj-
ón varið til gatna og göngustíga
auk þess sem gjaldfært var vegna
gatnaramkvæmda svo sem á Vest-
urgötu. „Rekstur Akraneskaup-
staður er agaður og borin er virð-
ing fyrir skattfé bæjarbúa. Fjölgun
íbúa kallar á nauðsynlega uppbygg-
ingu innviða samhliða mikilvægu
viðhaldi á öllum eignum bæjarins.
Með ábyrgum rekstri undanfarinna
ára eru allar undirstöður rekstrar
bæjarfélagsins í góðu lagi og bær-
inn hefur burði til að takast á við
þær áskoranir sem kunna að felast í
kælingu efnahagslífsins ef þess ger-
ist þörf. Við horfum því bjartsýn
fram á veginn,“ segir Sævar Freyr
Þráinsson.
kgk
Guðlaug við Langasand á Akranesi er meðal nýframkvæmda í bæjarfélaginu.
Ljósm. úr safni.
„Rekstur Akraneskaupstaðar er agaður“
Samtals 826 milljóna króna afgangur af rekstri bæjarfélagsins