Skessuhorn


Skessuhorn - 16.04.2019, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 16.04.2019, Blaðsíða 12
ÞRIÐJUDAGUR 16. ApRÍL 201912 Síðastliðinn föstudag bauð Borg- arverk í Borgarnesi starfsfólki sínu og öðrum gestum til heljar mik- illar veislu. Tilefnið var flutning- ur skrifstofu fyrirtækisins að Borg- arbraut 57. Húsakynnin voru sýnd en sjálf veislan var haldin í sal Hót- els B-59 þar sem borð svignuðu af veisluföngum. Þar flutti Gísli Ein- arsson tölu. Gerði óspart grín að stjórnendum Borgarverks og fleir- um við mikinn fögnuð viðstaddra. Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tilefni. mm Grundarfjarðarkirkja réði á dögun- um til sín kórstjóra og organista til starfa. Undanfarin ár hefur þurft að manna þessar stöður með aðkomu- fólki en nú þurfti ekki að leita langt í ráðningarferlinu. Linda María Nielsen tónlistarkennari er tekin við stjórn kórsins og Þorkell Máni Þorkelsson verður organisti. Linda María hefur búið í Grundarfirði undanfarin ár en Þorkell Máni er nýfluttur aftur í sinn uppeldisbæ en hann ólst þar upp og á ættir að rekja þangað. Lilja Magnúsdóttir gjald- keri sóknarnefndar var afskaplega ánægð með þessa lendingu. “Við höfum verið í vandræðum undan- farin ár með að manna þessar stöð- ur en nú er vonandi komin fram- tíðarlending í þessu,” segir Lilja í stuttu spjalli við fréttaritara. “Þetta er afar farsæl lausn fyrir sóknina,” bætir hún við. tfk Slysavarnaskóli sjómanna hlaut hvatningarverðlaun Samtaka fyrir- tækja í sjávarútvegi á ársfundi sam- takanna sem fram fór í Hörpu á föstudaginn. Í kynningu formanns SFS, Jens Garðars Helgasonar, við afhendingu verðlaunanna, kom fram að á fimmta þúsund manns hefðu farist í sjóslysum á Íslandi á 20. öldinni, en undanfarin tvö ár hafi ekkert banaslys orðið á sjó. Slysavarnaskóli sjómanna er í eigu Slysavarnafélagsins Landsbjargar, en hann var stofnaður árið 1985 til að sinna öryggisfræðslu fyrir sjó- menn. Skólinn hefur staðið frammi fyrir því að þurfa að kaupa nýj- an endurlífgunarbúnað sem not- aður er við kennslu á námskeið- um fyrir sjómenn. Verðlaunin í ár, sem Hilmar Snorrason skóla- stjóri veitti viðtöku, eru ein milljón króna, sem varið verður til þess að endurnýja búnaðinn. Hilmar sagði við móttöku verðlaunanna að þau væru hvatning til allra við skólann að gleyma sér ekki í unnum sigrum. Að ná tveimur árum án banaslyss á sjó væri stórfenglegur árangur sjó- manna sem hefðu tileinkað sér þá þekkingu sem skólinn hefði veitt þeim. mm Aðalfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi var haldinn síðastlið- inn föstudag. Þar var Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxa- fiskeldis kjörinn formaður. Við stofnun samtakanna í október 2014 var Jens fyrst kjörinn formaður og hefur því gegnt stöðu formanns frá stofnun. Aðrir í stjórn voru kosnir: Anna Guðmundsdóttir, fjármálastjóri. Gjögur hf. Ásgeir Gunnarsson, framkvæmdastjóri veiða og vinnslu. Skinney–Þinganes hf. Bergur Þór Eggertsson, aðstoðarframkvæmdastjóri. Nesfiskur ehf. Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri. Hraðfrystihús- ið-Gunnvör hf. Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri. FISK-Seafood ehf. Guðmundur Gíslason, stjórnarformaður. Fiskeldi Austfjarða hf. Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri. Guðm. Run- ólfsson hf. Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri. Síldarvinnsl- an hf. Hjálmar Kristjánsson, framkvæmdastjóri. KG Fiskverk- un hf. Jakob Valgeir Flosason, framkvæmdastjóri. Jakob Valgeir ehf. Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs. Samherji Ísland ehf. Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri. Rammi hf. Ólafur Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri. Hraðfrystihús Hellissands hf. páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri. Huginn hf. pétur H. pálsson, framkvæmdastjóri. Vísir hf. Sigurður Viggósson, stjórnarformaður. Oddi hf. Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri. Ísfélag Vest- mannaeyja hf. Ægir páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri. HB Grandi hf. mmÞjóðin eldist og samkvæmt töl- um Hagstofunnar mun fólki eldra en 80 ára fjölga um tæplega 6.000 eða 46% til ársins 2030. „Hætta á sjúkdómum eykst með hækkandi aldri og þar vega þungt ýmsir sjúk- dómar tengdir lífsstíl. Margþættur ávinningur felst í því að efla heilsu aldraðra og gera þeim kleift að búa sem lengst á eigin heimili. Með því er unnt að auka lífsgæði fólks, stemma stigu við auknum kostnaði heilbrigðiskerfisins og stuðla að meiri gæðum þjónustunnar í sam- ræmi við þarfir einstaklinganna,“ segir í tilkynningu frá ráðuneyti heilbrigðismála. Undanfarin ár hefur Embætti landlæknis stuðlað að heilsuefl- ingu landsmanna, m.a. með sam- starfssamningum við sveitarfélög um heilsueflandi samfélag og út- gáfu lýðheilsuvísa. „Heilsuefling er mikilvæg á öllum aldursskeið- um en ör fjölgun í elstu aldurshóp- unum kallar á að aldraðir fái sér- staka athygli. Skapa þarf aðstæður sem ýta sérstaklega undir heilsuefl- ingu og markvissar forvarnir með- al aldraðra. Einnig þarf að stór- efla félagslega aðstoð við aldraða í heimahúsum og sömuleiðis heima- hjúkrun. Fjölgun dagdvalarrýma er líka mikilvægur liður í þessu. Með þessu móti ætti að vera hægt að draga verulega úr þörf meðal aldr- aðra fyrir búsetu á hjúkrunarheim- ili.“ Á vegum ráðuneytisins hefur verið ákveðið að efna til samstarfs- verkefnis með áherslu á heilsuefl- ingu aldraðra og markvissari þjón- ustu við þá sem þurfa stuðning til að geta búið á eigin heimili vegna heilsubrests. Ríkisstjórnin sam- þykkti tillögu heilbrigðisráðherra þessa efnis á fundi sínum síðastlið- inn föstudag. Undirbúningur verk- efnisins verður á hendi ráðuneyta heilbrigðis, forsætis, félags, og fjár- mála, Sambands íslenskra sveitar- félaga og Embættis landlæknis og mun starfshópur þessara aðila skila tillögum um fyrirkomulag þess til heilbrigðisráðherra í júní næst- komandi. mm Borgar- verk bauð til veislu Kórstjóri og organisti ráðnir til Grundarfjarðarkirkju F.v. Guðrún Margrét Hjaltadóttir formaður sóknarnefndar, Lilja Magnúsdóttir gjaldkeri, Linda María Nielsen kórstjóri, Þorkell Máni Þorkelsson organisti og Runólfur Guðmundsson meðstjórnandi. Víðtækt samráð um heilsueflingu aldraðra Stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Jens Garðar Helgason, framkvæmda- stjóri Laxa-fiskeldis og formaður stjórnar SFS. Slysavarnaskóli sjómanna verðlaunaður Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.