Skessuhorn - 16.04.2019, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 16. ApRÍL 2019 9
Fjölbreytileiki Fjöliðjunnar
Sýning þar sem framleiðsla og sköpunargleði
Fjöliðjunnar fær að njóta sín.
Sýningin er opin á afgreiðlsutíma Bókasafnsins
og stendur yfir til 15. maí.
mánudaga- föstudaga kl. 12-18 og
laugardaginn 27. apríl, kl 11-14
Verið velkomin
Bókasafn Akraness - Dalbraut 1 - s. 433-1200
bokasafn.akranes.is - bokasafn@akranessofn.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Fréttaveita Vesturlands
Fréttaveita Vesturlands
www.sk ssuhorn.is
Stjórn hjúkrunar- og dvalarheim-
ilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi
fjallaði á fundi sínum 4. apríl síð-
astliðinn um samskipti sín við heil-
brigðisráðuneytið og áhugaleysi
þess að koma til móts við þarf-
ir íbúa. „Stjórn Brákarhlíðar lýs-
ir miklum vonbrigðum með svör
heilbrigðisráðuneytisins við endur-
teknum erindum Brákarhlíðar varð-
andi annars vegar fjölgun hjúkrun-
arrýma og hins vegar óskum um að
breyta dvalarrýmum í hjúkrunar-
rými, eitt á móti einu. Stjórn Brák-
arhlíðar unir ekki slíkum úrskurð-
um,“ segir í ályktun sem send hefur
verið ráðuneytinu.
„Sú afstaða að hafna því að fjölga
heildaríbúðarrýmum í Brákarhlíð
er óskiljanleg, fyrst og síðast vegna
þess að það er viðvarandi skortur á
hjúkrunarrýmum og að það er yfir-
lýst markmiðið stjórnvalda að bæta
úr þeim skorti. En slíkt markmið
getur varla verið skilyrt því að al-
farið sé um að ræða glænýja stein-
steypu. Í Brákarhlíð eru öll íbúðar-
rými ný eða nýendurgerð skv. ítr-
ustu kröfum um hjúkrunarrými en
þar eru einnig vannýtt rými. Það
liggur fyrir að hægt er að bæta við
fjórum nýjum herbergjum sem
standast alla staðla varðandi gerð
og búnað fyrir verð eins, borið
saman við kostnaðarmat, aðgengi-
legt á heimasíðu ráðuneytisins. Auk
þess hefur ekki verið farið fram á að
ráðuneytið taki þátt í þeim kostn-
aði.“
Fram kemur í bréfi stjórnar að
biðlisti inn á Brákarhlíð er nú lang-
ur og þau rök að vísa til góðrar
stöðu í Heilbrigðisumdæmi Vest-
urlands standast ekki skoðun. „Slík
staða jafnar ekki út biðlista í Brák-
arhlíð. Einstaklingar úr öðrum
heilbrigðisumdæmum sækjast eftir
því að búa í Brákarhlíð og með til-
komu færni- og heilsumatsnefnda
á sínum tíma er vistun í hjúkrun-
arrými ekki bundin við íbúa hvers
umdæmis fyrir sig. Því er mikilvægt
að geta virt vilja hvers einstaklings
hvort sem hann kemur af höfuð-
borgarsvæðinu eða annars staðar
frá.“
Dvalarrýmum hefur fækkað
mikið á landsvísu en staðan í Brák-
arhlíð nú er sú að hlutfall dvalar-
rýma á móti hjúkrunarrýmum er
mjög hátt; 17 af 52 varanlegum
rýmum eru dvalarrými. Þá er rétt
að geta þess að 7 af þeim 17 ein-
staklingum sem nú eru á dvalar-
rýmum eru með hjúkrunarrýmis-
mat og fá þjónustu í þá veru. Það
að bjóða upp á að skipta út tveim-
ur dvalarrýmum fyrir hvert eitt
hjúkrunarrými er óásættanlegt,
ekki aðeins fyrir Brákarhlíð, held-
ur eins fyrir samfélagið allt, því að
með því stæðu auð rými, fullgild
hjúkrunarrými, sem annars stað-
ar er verið að bæta við samkvæmt
áformum stjórnvalda. Stjórn Brák-
arhlíðar skorar á Svandísi Svavars-
dóttur heilbrigðisráðherra að end-
urskoða afstöðu sína, nú og við
undirbúning fjárlaga komandi árs,
til erinda Brákarhlíðar um ofan-
greint og hvetur einnig alþingis-
menn NV-kjördæmis til þess að
leggja málinu lið, samfélaginu öllu
til heilla. mm
Stjórn Brákarhlíðar unir ekki
úrskurðum ráðuneytisins
Heyþyrla?
Við hjá Ergo erum engir sérfræðingar í heyverkun
en við fjármögnum hins vegar heyþyrlur.
Við fjármögnum flest milli himins og jarðar.
Kynntu þér möguleikana á ergo.is