Skessuhorn - 08.05.2019, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 20192
Á laugardaginn verður Bifhjóla- og
Fornbílasýning Rafta og Fornbílafj-
elags Borgarfjarðar haldin í Brák-
arey í Borgarnesi. Þá er einnig rétt
að minna á að á sunnudaginn er
mæðradagurinn og þá er ekki úr
vegi að gleðja mæður sínar með
einhverjum hætti.
Á morgun er spáð norðaustanátt
5-13 m/s og dálítil él verða á Norð-
ur- og Austurlandi, en þurrt í öðr-
um landshlutum og bjart á köflum.
Hiti 0-8 stig, mildast sunnantil en
víða næturfrost. Á föstudag er út-
lit fyrir áframhaldandi norðlæga
átt með éljum en bjartviðri sunnan
heiða og hiti breytist lítið. Á sunnu-
dag er spáð vestlægri- eða breyti-
legri átt og dálítil él verða fyrir
norðan, annars bjart. Svalt veður
norðan heiða. Á mánudag er spáð
suðlægri átt með rigningu en þurrt
norðaustantil og hlýnar í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Hvernig ætlar þú að
verja sumarfríinu?“ 24% svarenda
ætla að gera sitt lítið af hverju, þ.e.
ferðast, vinna eða njóta frísins. 21%
sögðust ætla að vera á ferðalagi
innanlands og 17% ætla að ferðast
til útlanda. 16% svarenda ætla að
vera heima, 12% hafa ekki ákveð-
ið hvað þeir ætla að gera og 11%
sögðust ekki ætla að taka sumarfrí.
Í næstu viku er spurt:
Hvaða ferðamáta notar þú venju-
lega til að fara í vinnu eða skóla?
Gilbert Þór Jökulsson fór í eitt ár
sem skiptinemi til Japans. Hann
vildi mikla upplifun og reynslu í
skiptináminu svo hann valdi að fara
eins langt frá Íslandi og hann gat til
lands þar sem ekki er töluð enska.
Hægt er að lesa meira um upplifun
Gilberts á Japan hér í blaðinu. Gil-
bert er Vestlendingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Vilja Þjóð-
garðsmiðstöð á
Hvanneyri
BORGARBYGGÐ: Um-
hverfis- og samgöngu-
nefnd Alþingis sendi nýver-
ið til umsagnar sveitarfélaga
frumvarp til laga um Þjóð-
garðastofnun og þjóðgarða.
Byggðarráð Borgarbyggðar
samþykkti að senda umsögn
þar sem meðal annars segir
að með stofnun miðhálend-
isþjóðgarðs myndi stærð og
umfang þjóðgarða á Íslandi
aukast gríðarlega til viðbót-
ar. „Í því samhengi hefur ver-
ið rædd nauðsyn þess að setja
á stofn Þjóðgarðastofnun Ís-
lands. Sveitarstjórn Borg-
arbyggðar tekur undir þá
skoðun. Í því sambandi vill
byggðarráð Borgarbyggðar
skora á umhverfisráðherra
og þingmenn kjördæmis-
ins að beita sér fyrir því að
slík stofnun verði sett niður
á Hvanneyri í Borgarfirði.
Fyrir þeirri afstöðu liggja
margvísleg rök.“ Þá segir að
mikilvægt sé að fagstofnun
sem Þjóðgarðastofnun yrði
sé fundinn staður þar sem
hún yrði landfræðilega vel
staðsett, myndi starfa í nán-
um tengslum við meginvið-
fangsefni sitt og hefði fagleg-
an og samfélagslegan styrk af
sínu nánasta umhverfi. Allar
þessar forsendur eru til stað-
ar á Hvanneyri í Borgarfirði.
Nánar má lesa um rökstuðn-
ing Borgarbyggðar í fundar-
gerð byggðarráðs frá 2. maí.
-mm
Straumlaust
var 1. maí
SNÆFELLSNES: Raf-
magn fór af Laugargerð-
islínu á Snæfellsnesi síð-
degis á 1. maí. Vinnuflokk-
ur Rarik lauk klukkan 20:30
um kvöldið viðgerð. Raf-
lína hafði farið í sundur við
Rauðkollsstaði. Umfang bil-
unarinnar var umfangsmeira
en gert var ráð fyrir í fyrstu,
samkvæmt tilkynningu frá
Rarik, en straumlaust var á
stóru svæði á sunnanverðu
Snæfellsnesi.
-mm
Tilkynning um
straumleysi
HVALFJ.SV: Rarik boðar að
rafmagnslaust verður sunnan
Skarðheiðar föstudaginn 10.
maí frá miðnætti og til kl.
07:00 næsta morgun vegna
vinnu í aðveitustöðinni við
Brennimel. Um er að ræða
allt svæðið sunnan Skarðs-
heiðar, þ.e. Melasveit, Leir-
ársveit, Melahverfi, Hval-
fjörð, Hlíðarbæ, Hvalfjarð-
argöng, Innri Akraneshrepp
og Kjósina. „Hafið ekki við-
kvæm raftæki í notkun þeg-
ar rafmagnið fer af og hug-
ið að endurstilla öll tíma-
stillt raftæki sem kunna að
hafa breytt sér. Rarik biðst
velvirðingar á þeirri röskun
sem rafmagnsleysið hefur í
för með sér fyrir notendur,“
segir í tilkynningu.
-mm
Ferðablaðið Travel West Iceland -
Ferðast um Vesturland 2019-2020
kom út í síðustu viku. Blaðið er gef-
ið út af Skessuhorni en í nánu sam-
starfi við Markaðsstofu Vestur-
lands. Þetta er 20. árgangur þessa
blaðs, að þessu sinni 116 síður og
prentað í 60 þúsund eintökum. Það
er skrifað á ensku og íslensku og
hugsað sem gagnlegur leiðarvísir
fyrir ferðafólk sem sækir landshlut-
ann heim. Í blaðinu er fjöldi mynda,
kort og umfjallanir um áhugaverða
staði allt frá Hvalfirði, Akranesi,
Borgarfirði, Snæfellsnesi og end-
að í Dölum. Þessa dagana er unn-
ið að dreifingu blaðsins sem víðast
innan landshlutans, á höfuðborgar-
svæðinu og upplýsingamiðstöðvum
víða um landið. Ferðaþjónustuaðil-
ar geta auk þess nálgast blöðin til
endurdreifingar hjá Markaðsstofu
Vesturlands í Hyrnutorgi í Borgar-
nesi. mm/ Ljósm. glh.
Opinn ársfundur dvalar- og hjúkrun-
arheimilisins Brákarhlíðar var hald-
inn 30. apríl síðastliðinn. Til fundar-
ins mættu m.a. fulltrúar Lionsklúbbs
Borgarness, þeir Ari Björnsson for-
maður ásamt Páli S. Brynjarssyni og
Inga Tryggvasyni. Afhentu þeir Holl-
vinasamtökum heimilisins 500 þús-
und króna styrk til byggingar gróður-
húss. Það voru þau Jón G. Guðbjörns-
son formaður stjórnar Brákarhlíðar
og Halla Magnusdóttir forstöðumað-
ur þjónustusviðs sem eru með þeim á
myndinni en þau veittu þessum höfð-
inglega styrk móttöku. mm/ Ljósm. bbþ
Áhersla lögð á samvinnu á íbúaþingi
Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
Síðan voru hugmyndir deildar með öllum hópnum.
Íbúaþing á vegum Samtaka sveitar-
félaga á Vesturlandi, sem haldið var
í Hjálmakletti í Borgarnesi síðast-
liðinn mánudag, var vel sótt. Rétt
um 50 manns mættu til að deila
hugmyndum og skoðunum sínum
um hvernig þeir vilja sjá landshlut-
ann þróast næstu fjögur árin. Yfir-
skriftin var „Mótum framtíð Vest-
urlands í sameiningu“ og var mikill
velvilji hjá þátttakendum að koma
með uppbyggilegar og frumlegar
hugmyndir inn í umræðuna. Páll
S Brynjarsson, framkvæmdastjóri
SSV, setti fundinn og svo tóku við
samstarfsaðilar frá ráðgjafafyrir-
tækinu Capacent sem stýrðu þing-
haldinu.
Efla þarf hugtakið
Vestlendingur
Mikilvægi samvinnu sveitarfélaga á
landshlutanum var áberandi í um-
ræðunni og hugtakið „Vestlend-
ingur“ tekið fyrir en íbúar á Vest-
urlandi hafa ekki verið duglegir að
kalla sig Vestlendinga í samanburði
við til dæmis fólk af Vestfjörðum
sem kalla sig Vestfirðinga. Frekar
vill fólk kalla sig Skagamann, Borg-
firðing eða Snæfelling eftir því sem
við á hverju sinni. Áhersla er því
meðal annars lögð á að blása upp
Vesturlandsvitund og búa þannig
til sterkari samheldni meðal íbúa á
Vesturlandi. Rætt var hvað það væri
sem aðskilur og sameinar sveitar-
félögin og voru flestir sammála að
fjarlægð frá höfuðborg, óljós fram-
tíðarsýn og missterk bæjarímynd
aðskilji sveitarfélögin. Hins vegar
var dugnaður íbúa, samstarf stofn-
anna og öflugt íþróttastarf með-
al jákvæðra punkta sem sameinar
landshlutann.
Innlegg í vinnu við nýja
Sóknaráætlun
Síðasti íbúafundur af þessu tagi
var haldinn fyrir fjórum árum og
sagði Páll í samtali við Skessuhorn
að margar hugmyndir hafi kom-
ið fram á þeim fundi sem hafi síð-
an verið framkvæmdar með einum
eða öðrum hætti. Hann kvaðst því
bjartsýnn á að fundurinn á mánu-
daginn myndi gera slíkt hið sama
og að enn frekari tillögur myndi
líta dagsins ljós. Fundur þessi er
liður í að móta framtíð Vesturlands
og mun gagnast við endurskoðun
Sóknaráætlunar fyrir árin 2020 til
2024. Sóknaráætlunin er svo notuð
sem leiðarljós fyrir frekari þróun á
Vesturlandi.
glh
Um 50 manns sóttu þingið í Hjálmakletti.
Páll S Brynjarsson, framkvæmdastjóri
SSV, býður gesti velkomna. Fyrir aftan
hann stendur Héðinn Unnsteinsson
ráðgjafi.
Þátttakendur skrifuðu niður hugmyndir sínar í litlum hópum.
Ferðablað Vesturlands er komið út
Færðu Brákarhlíð veglega gjöf til
að byggja gróðurhús