Skessuhorn


Skessuhorn - 08.05.2019, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 08.05.2019, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 201912 „Ég tel að tvö mál séu þau allra mik- ilvægustu sem ég kem að í starfi mínu sem bæjarstjóri, þó að mörg séu þau mikilvæg. Annars vegar er það að framtíðaráherslur í menntun í skól- um Akraneskaupstaðar og hins veg- ar að vinna að atvinnuuppbyggingu í bæjarfélaginu til framtíðar. Og þetta tvennt hangir saman,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akra- nesi, í samtali við Skessuhorn. Vinnu við framtíðaráherslur í menntamálum Akraneskaupstaðar var ýtt úr vör í vetur, en einn liður í því var samtal við menntamálaráð- herra. „Þessi vinna sem komin er af stað snýr að því að móta heildarsýn á menntun í bæjarfélaginu til fram- búðar. Við viljum eiga samtal við fagfólk, bæjarbúa og við mennta- málaráðuneytið varðandi mennta- mál og áherslur þar, þannig að hér verðum við sem best undirbúin að takast á við framtíðina,“ segir Sævar. „Með framtíðinni á ég ekki síst við fjórðu iðnbyltinguna, sem mun hafa í för með sér mörg tækifæri fyrir fólk en líka miklar breytingar. Ýmis störf sem fólk gegnir í dag, einhæfari og ekki endilega spennandi störf, munu í framtíðinni verða leyst af vélmenn- um og hugbúnaðarlausnum eftir því sem gervigreindinni fleytir fram. Tæknimöguleikar til að takast á við umhverfisvandamál eða fyrirsjáan- legan matvælaskort heimsins þar sem t.d. líftækni, nanótækni og internet munu koma við sögu,“ segir hann. Mest um vert að vinnan sé hafin Að sögn bæjarstjórans er vinna við framtíðarmenntaáherslur Akranes- kaupstaðar í upphafsfasanum og mun geta liðið eitt til tvö ár í við- bót þar til henni verður að fullu lok- ið. Það sem mestu máli skiptir hins vegar er að vinnan er hafin. „Staðan í dag er sú að það er stutt í að þessi framtíð líti dagsins ljós. Við megum í raun engan tíma missa. Þess vegna er mikilvægt að við séum byrjuð að móta þessa stefnu og þegar hún er tilbúin að innleiða hana fyrst þar sem það er mikilvægast, það er að segja í menntastofnununum okkar,“ segir Sævar. „Leggja þarf áherslu á að nám í leik-, grunn- og framhals- skólum verði með öðrum hætti en áður var. Ekki verði lögð eins mik- il áhersla á utanbókarlærdóm og ver- ið hefur í gegnum tíðina. Ég veit að þróunin hefur verið töluvert í þá átt- ina undanfarið og það er lykilatriði að sú þróun haldi áfram,“ segir hann. Gera þarf hvers konar verkviti hærra undir höfði, eins og kennt er í verk- námi og til dæmis FabLab smiðj- um, samhliða listgreinum og bók- námi. Þannig mun fólk hafa meiri möguleika og fleiri tæki til að takast á við breytta framtíð. Samhliða verð- um við að vera tilbúin að auka vægi kennslu í hvers kyns tækni og for- ritun. Að því sögðu megum við hins vegar ekki blindast af því að það sé eina lausnin, heldur efla enn frekar kennslu í hæfni sem einkennir okkur sem manneskjur. Þar á ég við gagn- rýna hugsun og lausn vandamála og samvinnu milli ólíkra aðila. Mennt- un innan skóla og frístundastarfs þarf að einkennast af lipurð, aðlögunar- hæfni, frumkvæði, sköpun og frum- kvöðlahugsun. Hæfni í mannlegum samskiptum og hvernig við nálgumst og greinum upplýsingar verður enn mikilvægara og síðast en ekki síst for- vitni og ímyndunarafl. Þannig getum við undirbúið nemendur í að verða meistarar í að takast á við breytingar og læra allt sitt líf,“ segir Sævar. Vel í sveit sett Áður en lengra er haldið telur bæjar- stjórinn vert að staldra við og fara yfir hvar Akraneskaupstaður er staddur í dag þegar kemur að menntamál- um. „Hér í bæ erum við að mínum dómi einstaklega heppin og ástæðan er sú að leik- og grunnskólar og frí- stundastarf bæjarfélagsins er meðal þess besta á landinu. Það er ekki að- eins rökstutt af tilfinningasemi bæj- arstjórans heldur stutt af niðurstöð- um árlegra mælinga Gallup. Þar eru skólarnir okkar í öðru sæti á lands- vísu bæði þegar kemur að því hvernig staðið er við bakið á barnafjölskyld- um og þegar kemur að ánægju íbúa með þjónustuna sem og starfsánægju kennaranna sjálfra. Skólastjórar hér á Akranesi hafa um langt skeið veitt kennurum frelsi til að setja mark sitt á kennsluna og þá á ég ekki aðeins við núverandi stjórnendur heldur þá sem verið hafa undanfarna áratugi. Þann- ig að ekki aðeins eru íbúarnir ánægð- ir með þá þjónustu sem þeim er veitt, heldur eru þeir sem veita þjónustuna, í þessu tilfelli kennslu, einnig mjög ánægðir. Þetta hefur jafnframt skil- að sér í hagkvæmasta rekstri leik- og grunnskólum landsins,“ segir Sæv- ar. „Þegar hafa verið stigin lítil skref í átt til framtíðarinnar að frumkvæði kennara og skólastjórnenda. Flétt- aðar hafa verið saman námsgreinar í verkefnagerð og vali. Það á til dæm- is við um unglingadeild Grundaskóla og er fyrsti vísirinn að þeirri vegferð sem við erum að vinna að. Í fram- sæknu skóla- og frístundastarfi okk- ar er víðs vegar verið að taka skref í átt að þessari framtíð og upplifi ég mikinn metnað og áhuga þeirra sem starfa að þessum málum hér á Akra- nesi.“ Bærinn reki framhaldsskólann Akraneskaupstaður hefur átt samtal við Lilju Alfreðsdóttur menntamála- ráðherra um hugmyndir að menn- taáherslum á Akranesi. „Var ánægju- legt að finna þá jákvæðni sem ráð- herra hafði í garð hugmynda okk- ar og til þess starfs sem unnið er í skóla- og frístundastarfi á Akranesi,“ segir Sævar. Til fundar við hana snemma í vetur fóru auk bæjarstjór- ans þær Valgerður Janusdóttir, sviðs- stjóri skóla- og frístundasviðs Akra- neskaupstaðar og Elsa Lára Arnar- dóttir, formaður bæjarráðs, en hún er jafnframt grunnskólakennari. Á fundinum voru fimm hugmynd- ir bornar undir ráðherra. Í fyrsta lagi var lagt til að Akranes verði til- raunasveitarfélag í rekstri framhalds- skóla, það er að segja að bærinn taki yfir rekstur Fjölbrautaskóla Vestur- lands. „Þannig sjáum við fyrir okkur að halda betur utan um einstakling- inn og tryggja samfellu í námi allt frá að hann byrjar í leikskóla og þar til hann lýkur framhaldsskólagöngu,“ segir hann. „Til að svo megi verða þarf ýmsu að breyta, þar á meðal skilunum sem eru á milli skólastiga. Leyfisbréf kennara í dag sníða kenn- urum fremur þröngan stakk þeg- ar kemur að kennslu milli skólastig- anna. Við viljum gjarnan geta nýtt hæfni okkar hæfileikaríku kennara á fleiri en einu skólastigi,“ segir Sævar. „Til að svo megi verða þurfum við að hætta að hugsa þannig að skóli taki enda þar sem byggingin endar. Mik- ilvægast er að ræða hvað gert er inn- an veggjanna og þróun menntunar,“ segir hann. „Jafnframt viljum við búa til tengingu við atvinnulífið og vinna með framsæknum fyrirtækjum hér í bæ í því að bjóða raunhæf verkefni fyrir nemendur og stuðla þannig að því að skapa spennandi störf fyrir vel menntað fólk. Það mun nýtast fyrir- tækjunum í bænum, efla menntunar- stig bæjarins, frístundastarf og for- varnir.“ Endurskoðun námsgreina Í öðru lagi segir Sævar að fara þurfi í gegnum námsgreinarnar í samráði við kennara og stjórnendur. „Við þurfum að ræða opinskátt hvar þurfi að bæta í, hvar þurfi að draga úr, hvaða grein- ar þurfi að taka nýjar inn í kennsl- una og hvort hreinlega sé kominn tími til að hætta að kenna ákveðnar greinar. Hér erum við ekki að tala um breytingar á einni nóttu. Þetta þarf að vanda og skipuleggja mjög vel og mun væntanlega taka mörg ár,“ segir hann. „Í þriðja lagi stefnum við síð- an að frekari menntun og enn frek- ari valdeflingu kennara. Ef kemur að því að leggja niður ákveðnar grein- ar verðum við að bjóða kennurum sem hafa sérhæft sig í þeim að end- urmennta sig því við viljum að sjálf- sögðu njóta krafta þeirra áfram,“ seg- ir hann. Fjórða atriðið segir Sævar vera að vinna markvisst að því að fjölga leik- skólakennurum. Það megi m.a. gera með því að hvetja þá sem starfa við kennslu og eru ekki með leyfisbréf til að ljúka námi sínu meðfram vinnunni. „Fimmta atriðið er síðan þróunarstarf með þátttöku íbúa á Akranesi. Haldið verður íbúaþing í haust þar sem við köllum eftir áliti íbúa bæjarfélagsins. Þessi atriði sem ég hef farið yfir núna eru ekki meitluð í stein og munu taka breytingum. Við viljum vinna þetta allt saman í samráði og sátt við for- eldra,“ segir hann. „Það er mikil- vægt að við komum okkur saman um hvernig við ætlum að feta þennan veg, byrjum strax en gefum okkur engu að síður tíma til að móta þessa framtíð- arsýn. Viðbúið er að þessar breyting- ar geti reynst sumum erfiðar, bæði börnum, foreldrum og kennurum, en ef við hefjumst ekki strax handa þá verður mun harðari lending. Við þurfum að styðja hvort annað í þessu ferli sem framundan er og þá verður framtíð okkar á Akranesi björt,“ segir bæjarstjórinn. Íbúaþing í haust Liður í áframhaldandi vinnu við menntaáherslur Akraneskaupstaðar er annar fundur með Lilju mennta- málaráðherra. „Undirbúningur íbúa- þings um menntamál sem haldið verður í haust er í gangi en tilgang- ur þess er að eiga samtal við íbúana um það sem þeim þykir skipta máli í skóla- og frístundastarfi. Umræðan um skólamál vill stundum einkenn- ast af veggjunum utan um skólana. Þá þarf að tala um veggina og verður eflaust gert á þinginu, en fyrst og síð- ast þarf að beina sjónum að því starfi sem fram fer innan veggjanna. Nið- urstöðurnar verða síðan teknar sam- an og hafðar til hliðsjónar við áfram- haldandi vinnu við menntamál Akra- neskaupstaðar,“ segir Sævar Freyr Þráinsson að endingu. kgk/ Ljósm. úr safni. Vinna við framtíðaráherslur í menntamálum á Akranesi stendur yfir „Verðum sem best undirbúin að takast á við framtíðina“ Frá kennslu í rafsuðu í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi. Ljósm. kgk. Nemendur Brekkubæjarskóla um það bil að leggja upp í hinn árlega Brekkósprett sl. haust. Frá hjóladegi Grundaskóla fyrir nokkrum árum síðan. Leikskólabörn á Akranesi héldu söngskemmtun á Bókasafni Akraness á Írskum vetrardögum nú í marsmánuði.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.