Skessuhorn


Skessuhorn - 08.05.2019, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 08.05.2019, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019 25 skap giftingarárið sitt 1907, og þá á gömlu Grund, þar sem þrjú elstu börn þeirra fæddust. Frá 1910 til 1913 bjuggu þau á Háteigi, áður en þau fluttu í nýja húsið sitt nr. 47 við Vesturgötu, sem einnig var kallað Grund; þar fæddust yngri börnin, sex dætur. Ragnheiður Þórðardóttir, dótt- ir Emilíu og Þórðar, var húsmóðir á Grund frá 1933, fyrst á gömlu Grundinni, ásamt eiginmanni sín- um Jóni Árnasyni, síðar alþingis- manni, og börnum þeirra. Þor- steinn var á Grund þar til hann lést 1941. Um eða uppúr 1950 er gamla Grundarhúsið flutt ofar við Vesturgötu, nr. 111 B, og er enn búið í því (2019). Grund, Vesturgötu 47 Húsið Grund, Vesturgötu 47, er byggt 1913 af Emilíu Þorsteins- dóttur og Þórði Ásmundssyni. Húsið er í dag næst elsta varðveitta steinsteypuhúsið á Akranesi. Þar koma nýklassísk stíláhrif vel í ljós í húsformi og valmaþaki og kröpp- um undir þakskeggi. Grund er tvílyft steinhús og þótti veglegt á sínum tíma. Byggingameist- ari var Jón Sigurðsson á Vind- hæli, en hann hafði árið áður lok- ið við að byggja barnaskólann sem er byggður í sama stíl, og er elsta varðveitta steinsteypuhúsið hér. Einar Erlendsson arkitekt teikn- aði barnaskólann og Jens Eyjólfs- son byggingameistari byggði. Á þeim tíma var vatn sótt í brunn úti á túni, rétt hjá húsinu, en Þórð- ur lét fljótlega leggja vatnslögn úr brunninum inn í hús, en það var fátítt á þeim árum. Í húsinu var upphaflega ekkert þvottahús. En á innsta hluta lóðarinnar var reist einnar hæðar timburhús með valmaþaki og innihélt þvottahús, geymslu og þurrkhjall fyrir þvott- inn. Það hús, Hjallurinn svokall- aður, var rifinn 1964 þegar Sig- urður Ólafsson byggði sitt hús sem stendur við Deildartún 2. Þórður bjó á Grund þar til hann lést 1943, 58 ára gamall og Emilía þar til hún lést 1960, 74 ára. Pet- rea Ingibjörg, hálfsystir Emilíu bjó einnig í húsinu, allt frá 1934 og til 1966, en eftir það bjó hún á Deildartúni 2. Petrea lést árið 1972, 92ja ára að aldri. Mannmargt var á Grund alla tíð. Fjölskyldan var stór, hjónin og börnin 9 og Petrea. Auk þess var vinnufólk sem þar starfaði. Búðarmenn sem unnu í verslun- inni hjá Þórði handan götunnar. Fyrstu árin voru margir í fæði á Grund. Ávallt var gestkvæmt og allir boðnir velkomnir til mat- ar og drykkjar eða gistingar eftir því sem hverjum hentaði. Þórð- ur var vel látinn, ljúfur og góð- ur maður, söngelskur og félags- lyndur. Píanó kom snemma í húsið og oft var tekið lagið þeg- ar góðir gestir komu í heimsókn. Stundum kallaði hann í nokkra vini sína og sungu þeir þá saman sér til skemmtunar. Þórður söng með Karlakórnum Svönum og í Kirkjukór Akraneskirkju. Vegna fjölþættra starfa sinna var hann oft að heiman. Hann var hlé- drægur og vildi helst aldrei vera formaður í félögum, en starfsfús og virkur þar sem hann starfaði. Hann hvatti börn sín til félags- starfa og studdi þau dyggilega í hvers kyns starfi. Eiginkonan Emilía var eins og einn fastagest- anna komst að orði í minningar- grein: „mikil höfðingskona, svip- mikill persónuleiki, góð móðir og merkishúsfreyja.“ Má með sanni segja að þær systur Emilía og Pet- rea hafi verið það lím sem batt af- komendurna svo vel saman sem raun ber vitni. Grundarættin Afkomendur Þórðar og Emilíu á Grund eru fjölmargir, um fjögur hundruð talsins, en þar hafa sam- heldni og vinarhugur jafnan ver- ið í heiðri höfð. Nokkur ættarmót hafa verið haldin, en það næsta verður haldið í Golfskálanum nýja, laugardaginn 8. júní næst- komandi. Má gera ráð fyrir því að fáni Þorsteins á Grund verði dreginn að húni í tilefni dagsins. Ásmundur Ólafsson skráði Þorsteinn Jónsson á hestbaki. Ljósm. Ragheiður Þórðardóttir. Blóðvöllur. Þessi gamla mynd frá Akranesi sýnir sauðfjárslátrun, sennilega í túninu á Grund, um 1890-1895. Líklega er myndin tekin af Magnúsi Ólafssyni, ljósmyndara, sem bjó á Akranesi 1882-1900 og var faktor fyrir Thomsensverslun. Akraneskirkja er í byggingu (1895). Lengst til hægri sést í þakið á Neðri-Götu, sem var rifin 1906, en á þeim stað voru Grímsstaðirnir (Vesturg. 50) byggðir, sem síðar voru fluttir og eru nú nr. 71 B við Vesturgötu. Fyrir framan kirkjuna er Vinaminni, sem var byggt 1893-94 af Ásbirni Ólafssyni, snikkara, sem talinn er hafa haft forgöngu í kauptúninu um þann byggingarstíl sem er á húsinu; þ.e. brotið þak, svokallað Mansardþak. Þetta hús var rifið árið 1909. Næst sjást Syðri-Sandar (Vesturg. 55), sem voru byggðir 1895-96, hús sem síðar var flutt að Presthúsabraut 36. Á miðri mynd má sjá eldri Sanda húsin. Ekki er vitað hvaða fólk er á myndinni, þó má álykta svo að ráðsetti maðurinn til hægri sé sauðfjár- og hrossakaupmaður, e.t.v hinn skoski, John Coghill, sem lést nokkru síðar, 1896. Nýslátrað sauðfé liggur í túninu sem og stampar og trékassar sem ætlaðir voru undir slátur. Einn maður sést vera að flá sauð. Fjær, lengst til vinstri sjást nokkrir frágengnir kindaskrokkar sem hengdir hafa verið upp á rár. Ljósmynd í eigu Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Hjónin Þórður og Emilía á Grund ásamt þremur elstu börnum sínum. Frá v. Ólína Ása, Steinunn, sem lést fimm ára og Hans Júlíus. Þessi börn fæddust öll á gömlu Grundinni. Eftir að þau fluttu í nýja húsið bættust við sex dætur. Ljósmynd: Sæm. Guðmundsson. Systkinin á Grund, börn Þórðar og Emilíu, sem upp komust. Frá vinstri: Þóra, gift Ólafi Vilhjálmssyni, Ingibjörg Elín gift Ár- manni Ármannssyni, Arndís gift Jóni B. Ólafssyni, Emilía gift Páli R. Ólafssyni, Steinunn gift Árna H. Árnasyni, Ragnheiður gift Jóni Árnasyni, Hans Júlíus kvæntur Ásdísi Ásmundsdóttur og Ólínu Ása gift Ólafi Fr. Sigurðssyni. Myndin er tekin árið 1984 af Gunnari Ólafssyni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.