Skessuhorn - 08.05.2019, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 20198
Stungið af
frá tjóni
AKRANES: Ekið var á
mannlausan bíl við Dalbraut
á Akranesi í vikunni sem
leið. Ökumaðurinn sem olli
tjóninu lét sig síðan hverfa
af vettvangi óhappsins. Mál-
ið er til rannsóknar hjá Lög-
reglunni á Vesturlandi.
-kgk
Bílvelta
á Nesinu
SNÆFELLSNES: Bílvelta
varð á Snæfellsnesvegi við
Eiðssund síðdegis á fimmtu-
daginn. Ökumaður bíls-
ins reyndist eitthvað slasað-
ur. Kallað var eftir sjúkrabíl
og ökumanni komið til að-
hlynningar hjá lækni. Árekst-
ur varð í Borgarnesi á mánu-
dag, í hringtorginu á gatna-
mótum Snæfellsnesvegar
og Vesturlandsvegar. Engin
meiðsl urðu á fólki.
-kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
27. apríl - 3. maí
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 27 bátar.
Heildarlöndun: 335.753 kg.
Mestur afli: Fríða Dagmar
ÍS: 90.858 kg í sjö löndun-
um.
Arnarstapi: 15 bátar.
Heildarlöndun: 104.057 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
84.185 kg í átta róðrum.
Grundarfjörður: 18 bátar.
Heildarlöndun: 655.963 kg.
Mestur afli: Drangey SK:
175.439 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 26 bátar.
Heildarlöndun: 510.687 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
108.855 kg í fjórum róðrum.
Rif: 21 bátur.
Heildarlöndun: 509.692 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
103.054 kg í tveimur lönd-
unum.
Stykkishólmur: 4 bátar.
Heildarlöndun: 29.521 kg.
Mestur afli: Rán SH: 13.608
kg í sex róðrum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Drangey SK - GRU:
175.439 kg. 28. apríl.
2. Málmey SK - GRU:
145.430 kg. 30. apríl.
3. Rifsnes SH - RIF:
68.091 kg. 2. maí.
4. Hringur SH - GRU:
65.378 kg. 2. maí.
5. Tjaldur SH - RIF:
62.966 kg. 2. maí.
-kgk
Gert er ráð fyrir því að skemmti-
ferðaskip komi 22 sinnum til Flat-
eyjar á Breiðafirði í sumar. Áætl-
aðar eru 13 komur frá skipi á veg-
um Gáru, Cruise Iceland og þá
stendur til að Ocean Diamond,
sem siglir í kringum landið, komi
níu sinnum við í eyjunni. RÚV
greinir frá.
Reykhólahreppur samþykkti ný-
verið að byrja að innheimta hafn-
argjöld vegna skemmtiferðaskipa í
Flatey. Hingað til hafa þau kom-
ið við í eyjunni án þess að það sé
skráð sérstaklega eða greidd fyrir
það hafnargjöld. Samhliða nýrri
gjaldskrá hefur Reykhólahreppur
hug á því að ráða hafnarvörð til að
taka á móti skipum sem koma til
Flateyjar.
Í frétt RÚV segir að samkvæmt
upplýsingum frá Gáru hafi kostn-
aður ekki stýrt því hvort skemmti-
ferðaskip komi við í Flatey. Fyrir-
tækin sem geri skipin út vilji hafa
hafnarvörð sem tekur á móti skip-
unum og annist gæslu.
kgk
Á fundi fræðslunefndar Dalabyggð-
ar 29. apríl síðastliðinn lagði Þur-
íður Jóney Sigurðardóttir fram til-
lögu um að frá og með næsta hausti
verði staðfesting á að barn hafi verið
bólusett, samkvæmt skipulagi sem
sóttvarnarlæknir leggur fram, gert
að skilyrði fyrir dagvistun í leik-
skóladeild Auðarskóla. „Fræðslu-
nefnd er sammála um mikilvægi
bólusetninga. Leggja þarf áherslu
á fræðslu um mikilvægi þess að öll
börn séu bólusett. Foreldrar verði
hvattir til að bólusetja börn sín þeg-
ar þeir sækja um leikskólavist,“ seg-
ir í fundargerð.
arg
Fimmtudagskvöldið 9. maí ætla
nokkrir kaupmenn á Akranesi að
fagna sumri og hafa langa opnun
og tilboð í verslunum sínum. Bjóða
þeir gestum að upplifa stemninguna
og lofa að gera vel við viðskiptavini
í verslun og þjónustu. Opið verð-
ur til klukkan 22 um kvöldið. Þetta
eru:
Verslunin Bjarg, @Home, Nína,
Ozone, Lindex, Hans og Gréta,
Model og Snotra. -fréttatilkynning
Bíll með erlendu ferðafólki fór út af
veginum rétt austan við Grundar-
fjörð seinni partinn á fimmtudag-
inn. Að sögn lögreglu gengur það
kraftaverki næst að ökumaður og
farþegi sem í bílnum voru sluppu
með skrámur, miðað við hvern-
ig bíllinn var útlítandi, en hann er
talinn gjörónýtur. Sjúkrabíll flutti
ökumann og farþega til skoðunar á
heilsugæsluna í Grundarfirði.
af
Kaupmenn á
Akranesi fagna sumri
á fimmtudagskvöld
Frá Flatey á Breiðafirði. Ljósm. úr safni.
Áætlaðar 22 skemmtiferðaskipakomur í Flatey
Hvetja foreldra til að bólusetja
Sluppu
vel frá
bílveltu